Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Syngjandi sveifla í sirkustjaldi

Söng­leik­ur­inn Slá í gegn er sýndur um þessar mundir í Þjóð­leik­hús­inu en verkið byggir á lögum eftir hljóm­sveit­ina Stuðmenn.

Syngjandi sveifla í sirkustjaldi

Það er óhætt að segja að öllu sé tjaldað til á Stóra sviði Þjóð­leik­húss­ins þar sem söng­leik­ur­inn Slá í gegn fylgir titli sínum.

Þrátt fyrir þunnan og fyr­ir­sjá­an­legan sögu­þráð nær hug­vit­sam­leg leik­stjórn Guðjóns Davíðs Karls­sonar að draga fram það besta í öllum lista­mönnum sýn­ing­ar­innar á réttum augna­blikum.

Verkið segir frá þeim Binna og Helgu sem reka far­ands­s­irkus við litla ánægju einka­dótt­ur­innar Hörpu Sjafnar sem neyð­ist til að ferð­ast með þeim um landið í veikri von um að upp­fylla æsku­draum föður henar um sirkus­stjórn. Þegar hér er komið sögu á sirkus­inn leið um fáfarið bæj­ar­fé­lag þar sem þorps­búa dreymir jafn­framt stóra drauma. Litla áhuga­leik­húsið þar í bæ er um það bil að leggja loka­hönd á upp­færslu sína á Gullna hlið­inu en æfing­arnar ganga væg­ast sagt illa. Þar fer sjálf­skip­aður leik­stjóri hóps­ins, Sigurjón digri, fremstur í flokki en sjálfur vill hann helst leika öll hlut­verkin. Í gagn­kvæmu von­leysi ákveða fylk­ing­arnar tvær, það er að segja leik­fé­lagið og lista­menn sirkuss­ins að leiða saman hesta sína í þeirri ein­lægu von um að setja eitt­hvað stór­feng­legt á svið og frum­flytja fjöl­lista­gjörn­ing. Þegar sjálfur for­set­inn boðar komu sína setur hóp­ur­inn svo allt í botn og þrátt fyrir heldur von­leys­is­lega byrjun fer sagan að sjálf­sögðu vel.

Leikmynd Finns Arnars Arn­ars­sonar er hreint út sagt meiri­háttar og bún­ingar Maríu Th. Ólafs­dóttur hver öðrum fal­legri. Eflaust eru það sirku­sá­hrifin sem slá ryki í augun en hér voru allar erkitýp­urnar mættar til leiks með skeggj­uðu kon­una og tattú­ver­aða mann­inn í broddi fylk­ingar.

Sú nýbreytni und­an­farin ár að fá á svið lista­menn úr öðrum list­greinum tekst ein­stak­lega vel upp í sýn­ingu sem þess­ari þar sem fjöl­lista­fólkið fær notið sín eðli sögu­þráð­ar­ins sam­kvæmt.

Það er jafn­framt mik­ill fengur í dans­höf­und­inum Chantelle Carey sem stýrir nú, meðal ann­arra nokkrum af þeim hæfi­leik­a­ríkju drengjum sem blésu eft­ir­minni­legu lífi í ball­ett­dreng­inn Billy hér um árið í öðru leik­húsi. Það verður spenn­andi að sjá þessa stráka stækka á svið­inu á kom­andi árum.

Lýsing Magnúsar Arnars Sig­urð­ar­sonar, sjón­gerv­ingar Inga Bekk sem og aðrar leik­hús­lausnir eru listi­lega leystar og þá sér­stak­lega töfra­bragðið í lok sýn­ing­ar­innar. Töfrar og leik­hús eru svo sann­ar­lega bann­væn blanda.

Tón­listin heldur sýn­ing­unni svo uppi með tón­list­ar­stjór­ann Vigni Snæ Vig­fús­son fremstan í flokki en allir lista­menn­irnir skila þessum sígildu slög­urum með stakri prýði.

Það felst ákveðin spenna í sýn­ingum sem þessum þegar hand­ritið er óþekkt og eft­ir­vænt­ingin hvort upp­á­halds­lagið muni koma, nær áþreif­an­leg eftir því sem líður á kvöldið. Hápunkt­arnir voru margir þó að loka­senan standi lag­sam­lega upp úr.

Umfjöll­unin kom fram í 14.tbl Vikunnar.

Mynd / Hörður Sveins­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina