Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Óvenjulegar erfðaskrár

Margir gera erfða­skrár til að koma hinsta vilja sínum á fram­færi. Ýmsar skraut­legar og óvenju­legar óskir hafa verið settar í erfða­skrár og hér má lesa um nokkrar þeirra.

Óvenjulegar erfðaskrár
Eleanor E. Ritchey arf­leiddi hunda sína að 4,5 millj­ónum doll­ara þegar hún lést árið 1968 í Flórída.

Millj­ónir í hundana
Eleanor E. Ritchey arf­leiddi hunda sína að 4,5 millj­ónum doll­ara þegar hún lést árið 1968 í Flórída. Deilt var um erfða­skrána en hún var stað­fest. Fimm árum seinna hafði sjóð­ur­inn bólgnað og fengu hund­arnir 9 milljón doll­ara en þegar erfða­skráin var end­an­lega stað­fest var sjóð­ur­inn kom­inn upp í 14 millj­ónir. Þá voru aðeins 73 hundar enn á lífi. Þegar sá síð­asti stökk á vit feðra sinna rann sjóð­ur­inn til Auburn-háskól­ans, í rann­sóknir á dýra­sjúk­dómum.

Engin pynt­inga­tól á gröf­ina!
Leik­rita­skáldið George Bernard Shaw lést árið 1950. Hann var mik­ill áhuga­maður um enska tungu og hafði búið til 40 stafa staf­róf sem hann taldi að gerði alla staf­setn­ingu mun auð­veld­ari. Hann vildi að hluti eigna hans rynni í þetta verk­efni en dóm­ari sagði það síðar óger­legt. Fénu var skipt í þrennt og rann til British Museum, National Gallery of Ireland og Royal Academy of Dramatic Art. Hinsta ósk hans var að jarð­ar­för hans yrði ekki gerð að kristnum sið og að á leg­steini hans yrði ekki kross eða neins konar tól tengd pynt­ingum eða tákn um blóð­ugar fórnir.

Kvöld­verður fyrir þau látnu
John Bowman lést árið 1891. Hann var ekk­ill og dætur hans tvær voru einnig látnar. John var full­viss um að fjöl­skyldan myndi í sam­ein­ingu end­ur­holdg­ast síðar. Hann stofn­aði sjóð með 50 þús­und doll­urum til að hægt væri að borga þjón­ustu­fólki til að halda yfir 20 her­bergja setri hans við. Síðasta ósk hans var að kvöld­verður yrði eld­aður og fram­reiddur dag­lega ef þau væru glor­hungruð þegar þau sneru aftur. Ósk hans var upp­fyllt þar til sjóð­ur­inn var upp­ur­inn sem var árið 1950.

Brjálað partí
Janis Joplin söng­kona lést árið 1970, 27 ára gömul. Tveimur dögum fyrir dauða sinn breytti hún erfða­skrá sinni. Hún vildi að 2500 doll­arar færu í sér­stakt „eftir dauða-partí“ fyrir 200 manns. Það ætti að standa heila nótt á upp­á­halds­pöbbnum hennar í San Anselmo í Kali­forníu. „… svo vinir mínir geti djammað ærlega eftir að ég er farin.“

Hinsta ósk George Bernard Shaw var að jarð­ar­för hans yrði ekki gerð að kristnum sið og að á leg­steini hans yrði ekki kross eða neins konar tól tengd pynt­ingum eða tákn um blóð­ugar fórnir.

„… fyrir alla þá ást og góð­vild sem hún sýndi mér aldrei“
Anthony Scott: „Til fyrstu eig­in­konu minnar, Sue, sem ég lof­aði alltaf að minn­ast á í erfða­skrá minni: Halló, Sue!“

Edith S frá Walsall: „Börn mín, Roger, Helen og Patricia, fá 50 þús­und pund í sinn hlut og mega ekki eyða þeim í hæg­fara hesta eða hrað­skreiðar konur og bara örlitlu í áfengi.“

Sara Clarke frá Bournmouth: „Ég arf­leiði dóttur mína að einu sterl­ingspundi, fyrir alla þá ást og góð­vild sem hún sýndi mér aldrei.“

Henry Budd, d. 1862: „Ég arf­leiði syni mína tvo að 200 þús­und pundum með því skil­yrði að þeir láti sér aldrei vaxa yfir­vara­skegg.“ Annar maður, Matthias Flemming (d. 1869), hafði andúð á slíkum skeggjum og arf­leiddi hvern skegg­lausan starfs­mann sinn að tíu pundum en þeir sem voru með yfir­vara­skegg fengu þó fimm pund hver í sinn hlut.

Ónefndur maður arf­leiddi starfs­menn sína að einum skild­ingi svo þeir gætu keypt sér bók um mannasiði.

Amy T. frá Doncaster arf­leiddi dýra­vernd­un­ar­fé­lag að 500 pundum og bað um að pen­ing­arnir yrðu not­aðir til að gefa hundum í þess umsjá dýr­lega jóla­mál­tíð.

Norman Earnest Digweed átti verð­mæta hús­eign sem metin var á 26 þús­und pund árið 1893 þegar hann lést. Hann arf­leiddi Jesú Krist að henni ef svo færi að Jesús sneri aftur innan 80 ára. Nokkrir Jesúsar gerðu til­kall til húss­ins sem engu að síður rann til breska rík­is­ins árið 1977, þegar 80 ár voru liðin frá dauða Normans.

Kona nokkur arf­leiddi heittelskaðan kött sinn að eigum sínum, meðal ann­ars hús­eign. Jarð­ar­för kon­unnar var haldin á fal­legum sum­ar­degi. Arf­þeg­inn lá og sól­aði sig í inn­keyrsl­unni þegar einn syrgj­end­anna ók óvart yfir hann á leið í erfi­drykkj­una.

Aðalmynd: Ýmsar skraut­legar og óvenju­legar óskir hafa verið settar í erfða­skrár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina