Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Skildi hluta af hjartanu eftir á Balí

Linda Sæberg hefur ein­staka hæfi­leika til að njóta augna­bliks­ins, grípa tæki­færið og meta litlu hlut­ina í líf­inu. Í henni blundar mikil ævin­týra­þrá en hún eyddi fæð­ing­ar­or­lof­inu á ferða­lagi um Balí ásamt fjöl­skyldu sinni. Fegurðin, menn­ingin og íbúar lands­ins hittu hana í hjarta­stað og það voru þung spor að snúa til baka til Íslands.

Skildi hluta af hjartanu eftir á Balí

Í haust flutt­ist Linda til Egils­staða með unnusta sínum, Steinari Inga, sem er þaðan. Fyrir áttu þau hvort sína dótt­ur­ina, Önju Sæberg og Móeiði, en saman eign­uð­ust þau Esjar Sæberg fyrir einu og hálfu ári. Linda er heima með Esjar eins og er, þar sem hún sinnir ýmsum verk­efnum sem hún tekur að sér ásamt því að reka og dekra við vef­versl­un­ina Unalome. Þegar Linda varð ólétt af Esjari kom í ljós að hún var sett á tíu ára afmæl­is­dag dóttur sinnar, Önju, þann 21. nóv­em­ber.

„Ég mundi eftir því að hafa verið frekar mikið inni­lokuð yfir þessa erf­iðu vetr­ar­mán­uði þegar ég var í fæð­ing­ar­or­lofi með hana, svo ég sagði snemma við mann­inn minn að ég vildi endi­lega létta á þessum dimmu mán­uðum með því að fara aðeins erlendis í sól­ina. Hann tók strax vel í það og vorum við þá helst að hugsa um Suður-Evrópu og kannski 3-4 vikur. Við ferð­uð­umst um sveitir Suður-Frakk­lands þegar ég var ólétt og vorum algjör­lega kol­fallin fyrir þeim, en það var ekki nógu heitt fyrir okkur yfir vetr­ar­tím­ann þar svo við leit­uðum lengra og á stað þar sem var ein­stak­lega ódýrt að lifa. Útreikn­ingur fæð­ing­ar­or­lofs sýndi lága tölu og sáum við fram á að mað­ur­inn minn gæti ekki verið heima með okkur lengur en fyrsta mán­uð­inn og fæð­ing­ar­or­lofið yrði mikið basl. Okkur fannst það virki­lega lítið heill­andi til­hugsun.“

Héldu til Balí með one-way-ticket í vasanum

Eftir nokkra útreikn­inga kom í ljós að það myndi ganga upp að ferð­ast til Asíu og lifa á fæð­ing­ar­or­lofi Lindu og náms­lánum Steinars, þar sem hann var í fjar­námi við Háskóla Íslands. Mæðgurnar Linda og Anja höfðu lengi verið dol­fallnar yfir Balí og smit­uðu Steinar af því þegar hann kom í líf þeirra, svo Balí var á ofar­lega á lista fjöl­skyld­unnar yfir staði sem hún vildi heim­sækja. Linda segir að í miðju skipu­lagi og í æsingnum hafi upp­haf­lega áætl­unin breyst og stefnan var sett á Balí í óákveð­inn tíma í stað þess sem átti að vera 3-4 vikna ferða­lag um Suður Frakk­land.

„Eftir að hafa ráð­fært okkur við lækn­inn okkar og fengið að flýta þriggja mán­aða bólu­setn­ingu Esjars um tvær vikur, pakkað búslóð­inni okkar og leigt út íbúð­ina, lögðum við af stað til Balí, með one-way-ticket í vas­anum, nokkrum dögum áður en Esjar varð þriggja mán­aða. Ég var óstjórn­lega stressuð að fara út með hann svona lít­inn og spurði sjálfa mig margoft á leið­inni hvað í ósköp­unum ég væri að gera.“

/ Lestu allt um Balí ævin­týrið og ítar­legra við­tal við Lindu í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Myndir: Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina