Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Markmiðið að geta gengið fyrir þrítugt

Dagurinn 13. júlí 2015 mun seint líða Tinnu Guðrúnu Bark­ar­dóttur úr minni. Hún var 29 ára gömul, í blóma lífs­ins. Þennan örlaga­ríka dag breytt­ist til­vera hennar var­an­lega þegar hún fékk heila­blóð­fall sem nærri kost­aði hana lífið. Tinna hefur tek­ist á við erf­ið­leik­ana af æðru­leysi og dugn­aði, en hún gagn­rýnir íslenska heil­brigð­is­kerfið harð­lega, og segir óásætt­an­legt að almenni­leg þjón­usta eftir álíka áföll snú­ist um pen­inga.

Markmiðið að geta gengið fyrir þrítugt

Það var mánu­dags­morg­unn og Tinna á leið í vinnu, en hún starf­aði sem yfir­flokk­stjóri í Vinnu­skól­anum á þessum tíma. Helginni hafði hún varið með vin­konum sínum á Akureyri. Þegar komið var að því að gera sig til fyrir vinn­una fór hún inn á bað­her­bergi þar sem hún datt skyndi­lega beint fram fyrir sig og lenti á and­lit­inu á bað­her­berg­is­flís­unum. Blóð­tappi hafði skot­ist upp í heila. Seinna kom í ljós að Tinna var með op á milli hjarta­gátta, óhreinsað blóð komst þar í gegn og fór með slagæð upp í höf­uðið.

Tinna missti ekki með­vit­und við fallið og lá áfram á gólf­inu og reyndi að átta sig á stöð­unni. Hún gat sig hvergi hreyft en vissi að hún þyrfti að halda sér vak­andi. Seinna sögðu læknar henni að flestir hefðu í þess­ari stöðu lokað aug­unum, en hefði hún gert það hefði hún dáið. Hund­ur­inn hennar, Dimma, lá í dyra­gætt­inni en eina reglan sem gilti á heim­il­inu var að hún færi ekki inn á bað­her­bergi.

Tíminn leið og sím­arnir hennar, vinnu­sím­inn og hennar eigin, byrj­uðu að hringja til skiptis. „Ég man eftir að hafa hugsað „hvaða aum­ingjar eru þetta sem vinna hjá mér, eru bara allir að hringja sig inn veika í dag.“ Mér datt ein­hvern veg­inn ekki í hug að fólk væri að hringja til að athuga með mig,“ segir Tinna þegar hún rifjar upp þennan örlaga­ríka morgun. „Ég átt­aði mig ekki á hvað hefði gerst, en var viss um að ég væri dáin. Þarna fékk ég gríð­ar­lega langan tíma til að hugsa, og mjög skrítnar hugs­anir sóttu á mig. Mig lang­aði til dæmis að kom­ast í heima­bank­ann minn til að milli­færa yfir á for­eldra mína svo þau þyrftu ekki að borga jarð­ar­för­ina. Það sem hélt líka í mig var samn­ingur sem ég hafði gert nokkru áður við góða vin­konu mína. Þá töl­uðum við um að við þyrftum að ákveða tölu og lit, og þegar önnur okkar dæi færi hin til mið­ils til að athuga hvort þetta stæð­ist.“

Í vinn­unni var fólk farið að undr­ast um Tinnu. Það var mjög óvana­legt að hún væri ekki mætt til vinnu og ekk­ert hefði heyrst frá henni.

Upp úr hádegi hringdi vin­kona hennar og sam­starfs­fé­lagi í móður hennar og sagð­ist halda að eitt­hvað hefði komið fyrir. Eitthvað væri ekki í lagi, hvort hún ætti að fara heim til hennar og athuga með hana eða hvort þau, for­eldrar hennar, vildu fara. Ákveðið var að pabbi Tinnu og yngri systir, Fanney, færu til að athuga með hana. Þegar þau komu og börðu að dyrum kom eng­inn til dyra, en þau heyrðu í Tinnu fyrir innan þar sem hún reyndi af veikum mætti að kalla til þeirra. Eftir að hafa reynt að sparka upp hurð­inni án árang­urs, hljóp pabbi hennar út og náði á ein­hvern undra­verðan hátt að stökkva upp á sval­irnar, en íbúð Tinnu var á annarri hæð. „Það skilur ennþá eng­inn hvernig hann fór að þessu. Sval­irnar eru lok­aðar og ekk­ert til að grípa í. En maður hefur stundum heyrt sögur af ótrú­legum krafti sem kemur yfir for­eldra þegar börnin þeirra eru í hættu, eins og þegar konur geti skyndi­lega lyft bílum til að bjarga barn­inu sínu undan þeim. Þetta var eitt­hvað svo­leiðis, hann stökk þarna upp og stakk sér svo inn um 30 sentí­metra glugga.“

Þegar pabbi hennar var kom­inn inn í íbúð­ina og búinn að opna fyrir Fanneyju, fundu þau Tinnu á bað­her­berg­is­gólf­inu. Þar hafði hún legið í rúmar sex klukku­stundir. Hún var blóðug eftir að hafa fallið á and­litið, og þeirra fyrsta hugsun var að hún væri dáin. Tinna man vel eftir þessum and­ar­tökum. „Það var mjög sér­stök til­finn­ing að liggja þarna, ég hélt ennþá að ég væri dáin, en vissi af fólk­inu mínu þarna og fann það stumra yfir mér og athuga hvort ég and­aði. Þau hringdu svo á sjúkra­bíl sem kom nokkrum mín­útum síðar.“

//

Svona hefst frá­sögn Tinnu Guðrúnar Bark­ar­dóttur af deg­inum sem breytti lífi hennar fyr­ir­vara­laust. Hún hefur tek­ist á við veik­indi sín af miklu æðru­leysi, en er stað­ráðin í því að ná bata og hefur meðal ann­ars leitað út fyrir land­stein­ana að lækn­ingu. Hún gagn­rýnir íslenska heil­brigð­is­kerfið harð­lega og segir sorg­legt að góð þjón­usta eftir álíka áföll þurfi að snú­ast um pen­inga.
Lestu ítar­legt við­tal við Tinnu í nýjasta tölu­blaði Vikunnar. 

Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir
Myndir: Hallur Karlsson
Förðun: Björg Alfreðs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina