Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gulu vestin höfðu sitt fram en vilja meira

Þau mót­mæltu bens­ín­hækkun og rík­is­stjórnin gaf eftir. Þau mót­mæltu bágum kjörum lág­stétt­ar­innar og lág­marks­laun voru hækkuð. Þau mót­mæltu auknum álögum á eldri borg­ara og þær voru dregnar til baka. Í flestum meg­in­at­riðum hafði hreyf­ingin sem kennir sig við gulu vestin náð fram breyt­ingum sem voru langt umfram vonir. En gulu vestin vilja meira og óvíst er hvort franskt sam­fé­lag og efna­hagur þolir meira.

Gulu vestin höfðu sitt fram en vilja meira
|||

Eftir fjög­urra vikna mót­mæli um allt Frakk­land, þar sem tveir lágu í valnum og hund­ruð særð­ust, ávarp­aði Emmanuel Macron, for­seti lands­ins, þjóð sína á mánu­dags­kvöld og við­ur­kenndi mis­tök og lof­aði um leið bót og betrun.

Emanuel Macron var kjör­inn til valda í fyrra á grund­velli lof­orða um að nútíma­væða franskan efna­hag sem hefur glímt við stöðnun í langan tíma. Macron hefur náð árangri en engan veg­inn í takt við vænt­ingar.

Áður hafði umdeild elds­neyt­is­hækkun, sem var rót mót­mæl­anna, verið dregin til baka en það hafði ekk­ert gert til að draga úr ólg­unni sem hafði beinst að öðrum meinum sam­fé­lags­ins. Í ávarpi sínu for­dæmdi Macron það ofbeldi sem fylgdi mót­mæl­unum en um leið sagð­ist hann skilja djúp­stæða reiði almenn­ings sem að mörgu leyti væri lög­mæt reiði. Hann við­ur­kenndi jafn­framt að margir þjóð­fé­lags­hópar upp­lifðu sig afskipta­lausa og að það hefði í allt of langan tíma verið látið við­gang­ast.

„Gul vesti og skatta­rétt­læti. Ef hann vill verða for­seti á næsta ára­tug, þá verður Macron að koma aftur á eigna­skatti og nota tekj­urnar til þess að koma til móts við þá sem verða verst úti af kolefn­is­skatti, sem verður að ger­ast.“ – Thomas Piketty hag­fræð­ingur.

Macron boð­aði 7 pró­senta hækkun lág­marks­launa, afnám skatta­hækk­ana á elli­líf­eyr­is­þega, afnám skatt­heimtu á yfir­vinnu og hvatti til þess að laun­þegar fengju skatt­frjálsan jóla­bónus. Macron ætlar þó ekki að falla frá umdeildu afnámi eigna­skatts sem hann segir nauð­syn­legt til að örva franskt efna­hags­líf. Þetta voru meiri til­slak­anir en fyrir fram hafði verið búist við og í raun mik­ill sigur fyrir gulu vestin sem höfðu kallað fram grund­vall­ar­breyt­ingar á franskri efna­hags­stefnu á met­tíma. Talað hefur verið um að þetta séu ein­hver áhrifa­mestu mót­mæli síð­ari tíma.

Reiðin og óánægjan kraumar enn undir og fleiri hópar hafa hoppað á vagn­inn.

En reiðin og óánægjan kraumar enn undir og fleiri hópar hafa hoppað á vagn­inn. Búist er við fimmtu mót­mæl­unum næst­kom­andi laug­ar­dag. Mótmælin hafa þegar kostað Frakk­land gríð­ar­legar fjár­hæðir. Pakkinn sem Macron kynnti hljóðar upp á 15 millj­arða evra og þá er ótal­inn beinn og óbeinn kostn­aður vegna mót­mæl­anna sjálfra. Sam­bæri­legar aðstæður – mis­skipt­ing auð­æfa, óþreyja gagn­vart elít­unni, afskipta­lausar milli- og lág­stéttir í dreif­býli o.s.frv. – hafa leitt popúlista og öfga­menn til valda ann­ars staðar í heim­inum. Í Banda­ríkj­unum, Ítalíu, Brasilíu, Ung­verja­landi, á Fil­ipps­eyjum og víðar. Þá fyrst kemur í ljós á hversu styrkum stoðum franskt lýð­ræði hvílir.

Sam­fé­lags­meinin mörg
Fyrstu og fjöl­menn­ustu mót­mælin, sem fljótt brut­ust út í óeirðir, þann 17. Nóvember, beindust gegn fyr­ir­hug­uðum hækk­unum á álögum á elds­neyti sem var ein af aðgerðum rík­is­stjórnar Frakk­lands í bar­átt­unni gegn loft­lags­breyt­ingum. Rík­is­stjórnin dró hækk­an­irnar til baka í byrjun des­em­ber en það gerði lítið til að lægja öld­urnar því þá þegar höfðu mót­mælin einnig tekið að bein­ast að öðrum vanda­málum fransks sam­fé­lags. Þar bar hæst auk­inn ójöfn­uður, bæði á milli hinna best og verst settu sem og milli þétt­býlis og dreifð­ari byggða. Mótmælin hafa stór­skaðað franskan efna­hag. Bæði nemur tjónið vegna þeirra skemmda sem mót­mæl­endur urðu valdir af millj­ónum evra, auk þess sem áætlað er að franskir smá­salar hafi tapað upp undir millj­arði evra vegna minni sölu í kringum óeirð­irnar.

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum og Rúss­landi hafa notað óeirð­irnar í París til að hampa eigin póli­tískum hags­munum.

Frakk­land er risi í hæga­gangi
Emanuel Macron var kjör­inn til valda í fyrra á grund­velli lof­orða um að nútíma­væða franskan efna­hag sem hefur glímt við stöðnun í langan tíma. Macron hefur náð árangri en engan veg­inn í takt við vænt­ingar. Ríkustu þjóð­fé­lags­hóp­arnir hafa efn­ast hratt á sama tíma og lág­stéttar- og milli­stétt­ar­hópar hafa setið eftir á sama tíma og fram­færslu­kostn­aður hefur hækkað. Hag­vöxtur mælist 1,8 pró­sent en er mikið til bund­inn við París og aðrar stór­borgir og þótt atvinnu­leysi undir stjórn Macrons hafi farið niður í 9,1 pró­sent úr 10,1 pró­senti er það enn tvö­falt meira en í Þýska­landi. Franskur vinnu­mark­aður er afar ósveigj­an­legur og rétt eins og fyrri leið­togum Frakk­lands hefur Macron gengið afar illa við að ná fram breyt­ingum sökum harðrar and­stöðu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem nota hvert tæki­færi til að mót­mæla og boða til verk­falla.

Þórð­ar­gleði í Washington og Moskvu
Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum og Rúss­landi hafa notað óeirð­irnar í París til að hampa eigin póli­tískum hags­munum. Donald Trump sagði mót­mælin sýna að ákvörðun hans um að draga Banda­ríkin úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu hafi verið rétt. Eftir ítrek­aðar færslur á Twitter sá utan­rík­is­ráð­herra Frakk­lands sig til­neyddan til að biðja Trump um að láta af afskiptum á mál­efnum Frakk­lands. Rúss­neskir fjöl­miðlar, hlið­hollir stjórn­völdum í Kreml, hafa sömu­leiðis lagt ofur­kapp á að greina frá mót­mæl­unum og flutt margar fréttir sem er bein­línis upp­spuni, til að mynda þær að lög­reglu­lið hafi gengið í lið með mót­mæl­endum. Þá rann­sakar franska leyni­þjón­ustan hvort að rúss­neskir Twitter- aðgangar tengdir Kreml hafi kynt undir mót­mæl­unum, en að minnsta kosti 600 slíkir hafa á liðnum vikum dreift linnu­lausum fréttum af mót­mæl­unum, mörgum hverjum fals­fréttum. Það sama hefur öfga­hægrið í Banda­ríkj­unum gert.

„Áhyggjur fólks­ins spruttu ekki upp í gær. Við höfum orðið samdauna þeim. Þetta eru 40 ár af gremju sem nú er að koma upp á yfir­borðið.“ – Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands.

Óreiðu­kenndar kröfur gulu vest­anna
Skoð­ana­kann­anir í Frakk­landi sem gerðar voru eftir ávarp Macron á mánu­dags­kvöld sýndu að rúm­lega helm­ingur Frakka telur að kom­inn sé tími til að binda enda á mót­mælin. Erfitt er að henda reiður á hvað ger­ist næst. Aðrir hópar hafa hoppað á vagn­inn – stúd­entar, anar­kistar, fas­istar og aðrir popúlistar. Ein­hverjir mót­mæl­enda hafa séð sér hag í að stofna stjórn­mála­hreyf­ingu upp úr gulu vest­unum og var nokk­urs konar stefnu­skrá birt á dög­unum. Sú stefnu­skrá er afar popúl­ísk og mót­sagna­kennd og ógjörn­ingur að hrinda henni í fram­kvæmd án þess að steypa rík­is­sjóði í glötun. Þannig er bæði talað um gríð­ar­legar skatta­lækk­anir á sama tíma og stór­aukin rík­is­út­gjöld. Hreyfing gulra vesta hefur sprottið upp í öðrum Evr­ópu­ríkjum, svo sem í Belgíu, Hollandi og Serbíu en ekki í við­líka mæli og í Frakk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco