Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Fólk sem kaupir vændi er fólk sem beitir ofbeldi“

Ragna Björg Guð­brands­dóttir, verk­efna­stjóri Bjark­ar­hlíðar, segir að til­finn­ing þeirra sem vinna við mála­flokk­inn bendi til þess að margar íslenskar konur stundi vændi þó að ekki sé til töl­fræði um það.

„Fólk sem kaupir vændi er fólk sem beitir ofbeldi“
|

„Við höfum heyrt hjá þeim konum sem leita til okkar og eru að fá hjálp til að kom­ast út úr vændi að það sé mjög mikil eft­ir­spurn. Þær fá skila­boð í langan tíma á eftir og fyr­ir­spurnir um vændið,“ segir Ragna Björg sem starfað hefur fyrir Bjark­ar­hlíð í tæp tvö ár. Bjark­ar­hlíð er mið­stöð fyrir þolendur ofbeldis með það að mark­miði að veita stuðn­ing, ráð­gjöf, fræðslu um eðli og afleið­ingar ofbeldis, auk þess að gefa skýr skila­boð um að ofbeldi verði ekki liðið. Eins og fram kom í inn­gangi segir Ragna að til­finn­ing þeirra sem vinna við mála­flokk­inn bendi til þess að margar íslenskar konur stundi vændi þó að engin töl­fræði styðji beint við það og það sama má segja um man­sal. Til­finn­ing þeirra sem vinna í mála­flokknum segir að man­sal hafi auk­ist. Það sé líka algengt að konur sem leiti hér hælis hafi reynslu af man­sali. En 85% þjón­ustu­þega Bjark­ar­hlíðar eru Íslend­ingar.
„Flestar konur sem hafa óskað eftir aðstoð í Bjark­ar­hlíð vegna vændis hafa unnið á eigin vegum þó að þeim hafi boð­ist til­boð um að taka þátt í skipu­lögðu vændi. Allt vændi er í eðli sínu man­sal þar sem aðgangur er keyptur að annarri mann­eskju og hennar frelsi til að ráða yfir eigin lík­ama og örlögum ekki virt. Neyslu­tengt vændi er einnig harður heimur þar sem mann­eskjan hefur að auki ekki fulla með­vit­und til að taka ákvörðun um þátt­töku sína í vændi.“

Ragna Björg Guð­brands­dóttir, verk­efna­stjóri Bjark­ar­hlíðar. Mynd / Hallur Karlsson

Vændi ein skað­leg­asta afleið­ing þess að hafa verið beittur kyn­ferð­is­legu ofbeldi
Ragna segir að bak­grunnur kvenna sem leið­ast út í vændi sé eins fjöl­breyttur og þess fólks sem kaupir vændi. „Það sem flestar konur eiga þó sam­eig­in­legt eru áföll tengd ofbeldi þar sem kyn­ferð­is­legt ofbeldi í æsku eða kyn­ferð­is­brot eru algeng. Þannig lítum við á vændi sem sjálf­skað­andi hegðun og afleið­ingu kyn­ferð­is­of­beldis. Við teljum að engin kona velji að stunda vændi en vegna aðstæðna sinna og neyðar leið­ist konur út í vændi. Auk þess sem þetta er ein skað­leg­asta afleið­ing þess að hafa verið beittur kyn­ferð­is­legu ofbeldi,“ segir Ragna.
„Vændi er kyn­lífs­vinna „sexworking“ þar sem aðili borgar fyrir aðgang að lík­ama ann­arrar mann­eskju, í þeim til­gangi að stunda kyn­líf á hans sínum for­sendum. Sem gerir þessa athöfn að kyn­ferð­is­legu ofbeldi því kyn­líf og kyn­frelsi er aðeins athöfn þar sem báðir aðilar standa jafn­fætis og taka þátt í athöfn­inni saman. Fólk sem kaupir vændi er fólk sem beitir ofbeldi. Fólk sem virðir ekki mann­rétt­indi og kyn­ferð­is­legt frelsi fólks.“

Vantar sjóð fyrir konur sem eru að stíga út úr vændi
Ragna tekur fram að það geti verið gríð­ar­lega erfitt fjár­hags­lega, and­lega og lík­am­lega fyrir konur að stíga út úr vændi og fá aðstoð. „Það er mikil skömm og van­líðan sem fylgir vændi, ekki ósvipað og þolendur kyn­ferð­is­legs ofbeldis þurfa að glíma við. Til að auð­velda kon­unum þessi erf­iðu skref væri nauð­syn­legt fyrir þær að hafa aðgang að sjóði sem þær gætu sótt um tíma­bund­inn styrk til þess að koma undir sig fót­unum á nýjan leik og vinna úr afleið­ingum vændis og kyn­ferð­is­of­beldis.“

Sjá einnig:

Vænd­is­málum á borði lög­reglu fækkar þrátt fyrir „spreng­ingu“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vændi

InnlentVændi

Brynja stund­aði vændi á Íslandi: „Algjör skyndi­hug­detta“

„Þar sem ég hafði enga virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum datt mér í hug að fyrst ég væri að sofa hjá mönnum á djamm­inu gæti ég alveg eins fengið greitt fyrir það. Þetta var ekki eitt­hvað sem ég lagði mikla hugsun í. Þetta var algjör skyndi­hug­detta,“ segir fyrr­ver­andi vænd­is­kona í Helg­ar­við­tali Mannlífs. Konan, sem við köllum Brynju, lýsir...
InnlentVændi

Hvað kostar góð rass­skell­ing? Ég á góða spaða og svipur

Mannlífi lék hugur á að gera óform­lega könn­una á eft­ir­spurn eftir vændi íslenskra kvenna eftir við­tal við Önnu Bentínu Herman­sen hjá Stíga­mótum sem sagði vændi íslenskra kvenna í atvinnu­leysi og Covid hafa stór­auk­ist. Tæplega 40 svör á sól­ar­hring Sett var aug­lýs­ing inn á íslenskan vef­mið­miðil sem margir tengja meðal ann­ars við vænd­is­sölu en ekki ein­vörð­ungu. Aug­lýs­ingin var sett inn fyrir...
InnlentVændi

Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eft­ir­spurn í Covid-far­aldri

Stígamót hafi fundið fyrir auknu vændi íslenskra kvenna í Covid far­aldr­inum. ,,Okkar konur segja að áreitið sé tals­vert meira frá kaup­endum vændis í kjöl­far Covid. Margar fá lág­marks­fram­færslu í gegnum örorku, félags­þjón­ustu eða atvinnu­leys­is­bætur. Sú upp­hæð nægir ekki til þess að fram­fleyta þeim og þá verður vændi neyð­ar­úr­ræði” segir Anna Bentína Herman­sen ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, ,, Atvinnu­leysi hafi aldrei mælst...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti