Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Nornin á Vesturgötunni

Ljós­mynd­ar­inn og athafna­konan Íris Ann hefur komið sér vel fyrir í skemmti­lega öðru­vísi íbúð í gamla Vest­ur­bænum ásamt eig­in­mann­inum Lucas Keller og sonum þeirra tveim, Sky og Indigo. Íbúð fjöl­skyld­unnar eru rúmir 90 fer­metrar og stendur í stein­húsi byggðu árið 1930.

Nornin á Vesturgötunni

Saman hafa hjónin rekið veit­inga­húsið The Coocoo‘s Nest á Granda­garði í rúm fimm ár og sér Lucas um matseld­ina meðan Íris sér um rekst­ur­inn. Einnig er hún einn stofn­enda sam­vinnu­rým­is­ins Minor Coworking sem stað­sett er á Fiski­slóð og í des­em­ber síð­ast­lið­inn opn­uðu þau nýja stað­inn sinn: Luna Flórens við hlið The Coocoo‘s Nest.

Við fáum hlýjar mót­tökur og Íris býður strax upp á rjúk­andi heitan tebolla, sem er afar kær­kom­inn í hroll­kaldri rign­ing­unni. „Ég er alveg þannig týpa að ég fatta allt í einu hvað ég er orðin stressuð og geri mér þá grein fyrir að það er bara allt of mikið koffín í lík­am­anum því ég er búin að vera á kaffi­þambi, svo ég er að reyna að skipta svo­lítið yfir í te.“

Í loft­inu liggur dásam­legur ilmur sem hún segir heita paolo santo og vera í miklu upp­á­haldi.

Það er bara fínt hjá mér frá um átta á kvöldin til átta á morgn­ana, þegar börnin eru sof­andi.

„Mig langar að byrja á að koma því á fram­færi að heim­ilið er aldrei svona fínt en ég vil ekki að fólk geri óraun­hæfar vænt­ingar þegar það sér bara glans­mynd­ina. Það er bara fínt hjá mér frá um átta á kvöldin til átta á morgn­ana, þegar börnin eru sof­andi,“ segir Íris sem er greini­lega mjög jarð­tengd og afslöppuð.

„Mig langar að byrja á að koma því á fram­færi að heim­ilið er aldrei svona fínt en ég vil ekki að fólk geri óraun­hæfar vænt­ingar þegar það sér bara glans­mynd­ina.“

Litagleði og listaverk

Stíll heim­il­is­ins er skemmti­lega ólíkur þeim mínimal­íska nor­ræna stíl sem hefur verið afar áber­andi á íslenskum heim­ilum – hér hefur lita­gleðin tekið völd og veggirnir eru þaktir fal­legum lista­verkum og per­sónu­legum munum.

„Ég er mjög hrifin af því að hafa liti í kringum mig heima fyrir og eru sægrænn og grænn, fjólu­blár og bleikur í miklu upp­á­haldi en ég klæði mig þó sjálf mest­megnis í svört föt.“ Aðspurð um upp­á­halds­versl­anir nefnir Íris NúsNús. „Ég elska þessa búð, hún er alveg dásam­leg og verðin eru ótrú­lega sann­gjörn.“

Ég er mjög hrifin af því að hafa liti í kringum mig heima fyrir og eru sægrænn og grænn, fjólu­blár og bleikur í miklu upp­á­haldi.

Einnig seg­ist hún vera dug­leg að versla í Portinu á Nýbýla­vegi og ef sig vanti eitt­hvert hús­gagn byrji hún fyrst að leita á nytja­mörk­uðum og á Facebook-hópum áður en haldið sé í versl­anir.

Elhúsið var tekið í gegn þegar fjöl­skyldan flutti inn.

Þau Íris og Lucas keyptu sína fyrstu íbúð fyrir ári síðan. „Eldri strák­ur­inn okkar sem er fimm ára hefur sem dæmi búið á fimm stöðum á sinni stuttu ævi en við erum rosa­lega fegin því að geta ráðið því sjálf hér eftir hvenær við flytjum.“

Eldhúsið er nýupp­gert og segir Íris það ekki hafa verið á dag­skránni strax, heldur hafi eig­in­lega komið í ljós að það væri nauð­syn eftir að fjöl­skyldan flutti inn. Í stof­unni ákváðu þau að opna á milli rýma og hafa barna­her­bergið öðrum megin og stof­una hinum megin.

„Mér fannst svo þægi­legt að ég gæti unnið í tölv­unni í sóf­anum og þeir eru bara hérna að leika sér í sama rými, stundum sé ég auð­vitað eftir því vegna þess að stofan er orðin að dóta­her­bergi en það er samt eitt­hvað svo kósí og gott flæði hér.“

Þau hjónin segj­ast vera mikið fyrir fal­lega list, enda sé Lucas sjálfur mynd­list­ar­maður að mennt. Að sögn Írisar eru þær myndir sem prýða veggi heim­il­is­ins, sumar eftir hana eða Lucas, aðrar úr Góða hirð­inum eða Hertex í bland við verk eftir ýmsa lista­menn sem sett hafa upp sýn­ingar á The Coocoo‘s Nest í gegnum árin.

Lista­menn­irnir Þórdís Erla Zoëga og Hulda Vil­hjálms eru í miklu upp­á­haldi.

Víðs­vegar um heim­ilið má finna fal­lega krist­alla, ilm­andi reyk­elsi og dul­ræn tarot­spil. „Kuklheim­ur­inn hefur alltaf fylgt mér, ég les í tarot og er mikil spá­kona – að vera næmur þekk­ist í fjöl­skyld­unni minni. Ég var einu sinni voða­lega feimin við að segja að ég væri norn, en ég trúi á ákveðna alheimsorku og að við getum nýtt okkur hana á marg­vís­legan hátt.“

Kuklheim­ur­inn hefur alltaf fylgt mér, ég les í tarot og er mikil spá­kona.

Skemmtilegt að skapa andrúmsloft

Grandinn er hverfi sem er í hraðri upp­sveiflu eins og mörgum er kunn­ugt, en Íris segir að þegar þau hafi tekið við hús­næð­inu sem The Coocoo‘s Nest er í, hafi lítið líf verið á svæð­inu.

„Það voru ekki einu sinni ljósastaurar í göt­unni svo það var niða­myrkur hér á kvöldin! Við vorum mjög tví­stíg­andi því við vissum ekki hvort við myndum fá fót­gang­andi fólk hingað, en okkur fannst þetta svo mikið tæki­færi að við slógum til og höfum svo sann­ar­lega ekki séð eftir því.“ Íris talar um nýja stað­inn Luna Flórens sem eins­konar systr­a­rekstur við The Coocoo‘s Nest en þessir staðir eru hlið við hlið og er inn­an­gengt á milli þeirra.

„Luna Flórens er samt algjör­lega með eigin hug­mynda­fræði, eða konsept, ég myndi segja að þetta væri Gypsy bar og boutique en allt sem þú sérð inn á staðnum er til sölu.“

Gypsy bar­inn Luna Flórens opn­aði nú í des­emer.

Íris stofn­aði einnig Minor Coworking árið 2014 sem hún rekur í dag ásamt Ragnari Visage. Þá var hún sjálf að leita að rými sem gæti nýst sem ljós­mynda­stúdíó.

„Heiða Birgis, vin­kona mín sem stofn­aði Nikita, var einnig að leita að hús­næði á þeim tíma svo við ákváðum að finna eitt­hvað saman, við duttum niður á þetta rými og urðum gjör­sam­lega ást­fangnar.“ Hún segir hús­næðið hafa verið allt of stórt fyrir þær tvær svo ákveðið var að leigja hluta þess út og búa til eins­konar sam­vinnu­rými þar sem sjálf­stætt starf­andi lista­menn og hönn­uðir gætu átt fastan vinnu­stað, verið í dag­legum sam­skiptum við annað skap­andi fólk og myndað tengsl.

Fag­ur­bleiki lit­ur­inn sem prýðir stofu­vegg­ina ber ein­fald­lega nafnið Íris Ann og er frá Slipp­fé­lag­inu.

Þau Íris og Lucas eru greini­lega með mörg járn í eld­inum og við hlökkum til að kíkja á nýja stað­inn þeirra, Luna Flórens í Granda­garði.

„Okkur finnst svo gaman að skapa, eins og stað­ina okkar, það er svo skemmti­legt ferli að láta hug­mynd­ina verða að veru­leika.“

Ljós­myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni