Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Draumur að hanna og smíða allar innréttingar í húsið sjálf

Hrefna og Benedikt Óskar búa í 167 fer­metra rað­húsi á einni hæð í nýju hverfi í Grinda­vík. Húsið keyptu þau fok­helt af fyr­ir­tæki for­eldra Hrefnu þar sem Hrefna starfar við fram­leiðslu á inn­rétt­ingum.

Draumur að hanna og smíða allar innréttingar í húsið sjálf
|

Þær eru sjálf­sagt telj­andi á fingrum ann­arrar handar hús­mæð­urnar sem geta stært sig af því að hafa ekki aðeins hannað heldur einnig smíðað allar inn­rétt­ingar og hurðir á heim­il­inu en það er einmitt það sem Hrefna gerði enda hæg heima­tökin. Hún, ásamt systrum sínum og móður, hefur síðan 2013 unnið að hönnun og fram­leiðslu hús­gagna og muna fyrir heim­ilið undir nafn­inu VIGT.

Fokhelt húsið veitti Hrefnu kær­komið tæki­færi til að inn­rétta heim­ilið algjör­lega eftir eigin höfði en það verk vann hún, eins og svo margt annað, í nánu sam­starfi með systrum sínum, Guðfinnu og Örnu. „Ég var svo heppin að Guðfinna hafði búið í húsi eins og þessu þannig að hún kom með marga góða punkta sem hjálp­uðu okkur heil­mikið. Arna sá síðan um að útfæra hug­myndir og að koma þeim á blað. Benedikt og pabbi voru einnig ótrú­lega dug­legir við að koma öllu í fram­kvæmd.“

Eld­húsinn­rétt­ingin er úr svart­bæsuðum aski. Heim­il­is­tæki eru frá AEG og keypt í Bræðr­unum Ormsson, blönd­un­ar­tæki koma frá Tengi en höld­urnar voru sér­smíð­aðar úr stáli og pólý­húð­aðar svartar.

Eldhúsið hjá þeim Hrefnu og Benedikt er dásam­lega stíl­hreint og frá­bær vitn­is­burður um ein­stak­lega vandað hand­bragð Hrefnu sem seg­ist þegar hafa verið komin með nokkuð vel mót­aðar hug­myndir áður en ráð­ist var í fram­kvæmdir.

„Ég lagði upp með að hafa allar inn­rétt­ingar dökkar og stíl­hreinar og einnig var ég ákveðin í að hafa enga efri skápa í eld­húsi.“ Allar inn­rétt­ingar í hús­inu eru úr aski sem hún síðan bæs­aði svartan. Svartan granít­stein á borð­plötu og eyju fengu þau Benedikt hjá Granít­steinum í Hafn­ar­firði. Stíl­hreina loft­ljósið í eld­hús­inu kemur frá Lumex en Hrefna segir tölu­verðan tíma hafa farið í að ákveða nákvæm­lega hvernig ljós hún vildi. Upp­setn­ing á ljós­inu var punkt­ur­inn yfir i-ið, þegar það var komið var eld­húsið klárt.

Að ráðum Guðfinnu var ákveðið að hafa vaskinn ekki í eyj­unni sem skilur eld­hús frá borð­stofu og stofu. „Í veislum og mat­ar­boðum mynd­ast oft skemmti­leg stemn­ing þar sem fólk safn­ast saman í kringum eyj­una til að spjalla og þá er mun snyrti­legra að hafa vaskinn ann­ars staðar,“ segir Hrefna.

Ítalska eldhúsljósið frá æskuheimilinu

Ljósið sem svífur líkt og í lausu lofti yfir hring­laga borð­stofu­borð­inu er ein af þessum dásam­legu og tíma­lausu hönn­un­arperlum sem Ítalir hafa svo rausn­ar­lega lagt til hönn­un­ar­sög­unnar. Frisbi er hönnun og hug­verk hins þekkta ítalska meist­ara Achille Castiglioni sem hann­aði ljósið fyrir ítalska ljósa­fram­leið­and­ann Flos árið 1978. Frisbi er frá­bær vitn­is­burður um styrk­leika Castiglioni sem hönn­uðar en hann var ekki síst þekktur fyrir tækni­lega vel útfærða hönnun á lömpum og ljósum sem oftar en ekki ná að dansa á mörkum hönn­unar og listar.

„Ljósið var alltaf í eld­hús­inu hjá mömmu og pabba en þau keyptu það í Casa á sínum tíma.“ segir Hrefna sem segir ljósið hafa kom­ist í hennar hendur eftir að eld­húsið var tekið í gegn á æsku­heim­il­inu sem end­aði með því að ljósið pass­aði ekki lengur þar inn.

„Ég var svo heppin að fá að taka það með mér þegar ég flutti að heiman. Það sem er svo skemmti­legt við ljósið er að það vakti aldrei neina sér­staka athygli fyrr en við fluttum hingað en hér nýtur það sín svo vel.“

Það sem er svo skemmti­legt við ljósið er að það vakti aldrei neina sér­staka athygli fyrr en við fluttum hingað.
Hring­lagað borð­stofu­borðið er frá VIGT og er það fáan­legt í þremur mis­mun­andi stærðum. Borð­platan er klædd með lin­o­leum-dúk og kant­límd með reyktri eik en borð­fót­ur­inn er úr duftlökk­uðu stáli.

Gólf­síðar hörg­ard­ín­urnar sem dempa svo fal­lega dags­birt­una sem flæðir inn um glugg­ana saum­aði mamma Hrefnu en efnið fann hún hjá Bólstr­ar­anum við Lang­holts­veg. „Mig var lengi búið að dreyma um að eign­ast heim­ili þar sem ég gæti hannað og smíðað allar inn­rétt­ingar sjálf og sá draumur hefur nú ræst. Að flytja héðan, ef ein­hvern tíma kemur til þess, verður eflaust erfitt eftir alla vinn­una sem lögð hefur verið í heim­ilið,“ segir Hrefna að lokum.

Svarti bekk­ur­inn sem stendur upp við stofu­sófann er úr nýju hús­gagna­lín­unni frá VIGT. Hrefna kol­féll fyrir Mobil-vegg­lamp­anum eftir að hafa séð hann í tíma­riti en hann fékk hún hjá Lýsingu & hönnun.
Inn­rétt­ingar á baði eru úr bæsuðum aski og smíð­aðar af Hrefnu á verk­stæði Grind­ar­innar, líkt og aðrar inn­rétt­ingar á heim­il­inu. Loft­ljósið við bað­inn­rétt­ing­una heitir Gask og er frá Lumex. Úr bað­her­bergi er hægt að ganga beint út á afgirtan pall með heitum potti.

Texti / Gerður Harðardóttir
Ljósmyndir / Aldís Pálsdóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni