Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Í fyrstu íbúð hjá smekklegu pari

Fyrir tveimur árum heim­sóttum við Úlfhildi Dan­í­els­dóttur og George Krist­ó­fer Young í litla en vel skipu­lagða íbúð þar sem fal­legir og list­rænir munir settu skemmti­legan svip á heim­ilið.

Í fyrstu íbúð hjá smekklegu pari

Úlf­hildur og George höfðu búið í íbúð­inni, sinni fyrstu íbúð, í fimm ár þegar Hús og híbýli kíkti í heim­sókn. „Við værum alveg til í að stækka við okkur en þessi íbúð er 62 fer­metrar. Hún er lítil og vel skipu­lögð en það var einmitt skipu­lagið sem heill­aði okkur um leið og við komum hingað inn. Íbúð á jarð­hæð með garði var einnig mik­ill kostur fyrir okkur þar við sem erum með kött. Núna getum við eig­in­lega ekki hugsað okkur að vera ekki á jarð­hæð. Við við­ur­kennum alveg að við dettum stundum inn á erlendar fast­eigna­síður og látum okkur dreyma. Stundum langar okkur að pakka niður og flytja til Sví­þjóðar í fal­lega íbúð með stórum frönskum gluggum og fiski­beinap­ar­keti sem erfitt er að stand­ast.“

Skapandi par

Það er ekki hægt að segja annað en að parið sé skap­andi. Úlf­hildur er tækni­teikn­ari og hús­gagna­smiður að mennt og hefur starfað sem hönn­uður hjá inn­rétt­inga­fyr­ir­tæk­inu Fríform síð­ustu fimm árin og George er graf­ískur miðl­ari hjá Morg­un­blað­inu. „Ég hef alltaf haft mik­inn áhuga fyrir hönnun og rým­is­notkun þannig að þetta á mjög vel við mig,“ segir Úlf­hildur. „Það er tölu­vert meira að gera í dag en fyrir tveimur árum, fólk er mikið að taka í gegn hjá sér og breyta þessa dag­ana.“

Hvað er vin­sæl­ast í inn­rétt­ingum?

„Það er svo margt í gangi. Fyrir ein­hverjum árum síðan vildi fólk nán­ast ein­göngu hvítar háglans inn­rétt­ingar, það er á und­an­haldi í dag. Fólk er farið að færa sig yfir í hvítar hálf­mattar inn­rétt­ingar, grátt og ljósa við­ar­liti. Svarti lit­ur­inn er reyndar að koma sterkt inn núna sem er mjög skemmti­legt. Ég er sjálf mjög spennt fyrir honum en hugsa að putta­förin sem fylgja dökkum inn­rétt­ingum fæli mig frá því að taka stökkið. Ef ég ætti að segja að það væri ein­hver ákveðin tísku­bylgja í gangi í inn­rétt­ingum þá myndi ég segja að það væru höldu­lausar inn­rétt­ingar og tækja­skápar fyrir öll raf­tækin.“

Mynd­irnar tók Rut Sig­urð­ar­dóttir.

Stofan stækkaði með einni hurð

Parið hefur gert sitt lítið af hverju fyrir íbúð­ina, málað og skipt um borð­plötu í eld­hús­inu sem dæmi. „Við skiptum líka um úti­dyra­hurð, þessi sem fyrir var var í mjög slæmu ástandi. Við hönn­uðum hurð­ina og pabbi Úlf­hildar smíð­aði,“ segir George.

Bláu skápa­hurð­irnar gera heil­mikið fyrir skenk­inn.

„Ef við gætum þá myndum við helst vilji flytja hana með í næstu eign en það er auð­vitað ekki í boði. Eins byggðum við pall út frá stof­unni stuttu eftir að við keyptum en við létum setja hurð úr stof­unni og út í garð fyrir tveimur árum. Áður þurftum við að fara út um aðal­dyrnar og ganga hring­inn til að fara út á pall. Þetta er því mik­ill lúxus og stækkar stof­una heil­mikið á góð­viðr­is­dögum.“

Einstakt í bland við hefðbundið

Úlfhildi er margt til lista lagt. Hún hann­aði og smíð­aði til að mynda sófa­borðið og bekk­inn í stof­unni og hefur hún einnig smíðað ruggustól handa mömmu sinni sem hún heldur mikið upp á. Þau lýsa stílnum á heim­il­inu sem ein­földum en ein­stökum. „Við eigum ein­staka hluti en erum með hefð­bundna hluti inn á milli. Í stof­unni er stíll­inn kannski lit­rík­astur, þar eru til dæmis bláir skápar og lista­bækur í opnum hillum.“

Flestallar myndir á veggj­unum eru verk eftir föður Úlf­hildar.

Úlf­hildur og George koma bæði úr skap­andi fjöl­skyldum en faðir hennar er Daníel Magn­ús­son, ljós­mynd­ari og lista­maður – flestallar mynd­irnar á veggj­unum eru verk eftir hann. „Það var skap­andi and­rúms­loft á heim­il­inu í minni æsku,“ segir Úlf­hildur.

Skemmti­leg hug­mynd að hengja upp Insta-myndir í hornið. Hring­laga speg­ill­inn er frá Further North.

„Pabbi var alltaf á verk­stæð­inu og föð­ur­afi minn smíð­aði mikið úti í bíl­skúr. For­eldrar mínir voru mjög dug­legir að taka mig með sér á söfn og lista­sýn­ingar sem barn og það er eitt­hvað sem ég reyni alltaf að gera þegar ég ferð­ast. Pabbi er hvað þekkt­astur fyrir stól­ana sína en koll­arnir sem prýða heim­ilið eru einmitt eftir hann. Hann hefur smíðað mikið inn á veit­inga­staði, til dæmis bar­stól­ana sem eru á Loksins bar. Draum­ur­inn er eld­hús með eyju og bar­stólum eftir pabba.“

Í borð­stof­unni hangir mynd eftir Daníel Magn­ús­son, föður Úlf­hildar, en hann smíð­aði einnig tré­koll­inn.

Dónalegt verk og kjúklingur í glugganum

Hús­ráð­endur festu nýlega kaup á Mammoth-stólnum frá Norr11 og dreymir einnig um Elephant-stól­inn úr sömu verslun. „Kannski fáum við okkur hann ef að við stækkum við okkur.“ Þau segj­ast horfa í nota­gildi og fag­ur­fræð­ina er þau versla fyrir heim­ilið og spá mikið í hlut­ina.

Hæg­inda­stóll­inn Mammoth frá Norr11 er fyrsti stóri hlut­ur­inn sem parið keypti sér saman.

„Plássið er ekki mikið þannig að við þurfum að passa upp á hvað kemur hingað inn. Við höfum verið hægt og rólega að finna út úr því hvað við viljum og kaupum aldrei neitt nema að eiga fyrir hlut­unum.“

Blaða­maður tekur eftir spaugi­legu verki á veggnum inn í eld­húsi og langar að vita meira. Hér talar „Sævar“ ítar­lega um hvernig hin full­komna kona líti út með mjög skemmti­legum lýs­ingum og teikn­ingum. „Ég fékk þetta verk frá pabba í útskrift­ar­gjöf en það er eftir Stein­grím Eyfjörð. Ef það er eitt­hvað sem er að plaga okkur þá er það lista­verka­eign, við erum með nokkur í geymslu því við höfum hrein­lega ekki vegg­pláss. Við erum líka með steyptan kjúkling í eld­hús­glugg­anum eftir banda­ríska lista­konu. Það er spurn­ing hvað nágrann­arnir halda um okkar þegar þeir labba fram hjá glugg­anum,“ segja þau og hlæja. Hér eru einnig kakt­usar í steyptum köku­sneiðum sem George keypti í Lista­há­skól­anum í Glasgow og tók með heim. Sem sagt, skemmti­leg blanda af alls­konar munum.

Í eld­hús­inu er flott vegg­fóður sem hús­ráð­endur keyptu í Svíþjóð og blóma­pott­ur­inn er frá Póstu­línu.

Það vantar ekki ljós­mynda­bæk­urnar, eigið þið upp­á­halds­ljós­mynd­ara? „Ég hef lengi haft áhuga á ljós­myndun. Planið var að fara í ljós­mynda­nám í Tækni­skól­anum en ákvað á end­anum að fara í graf­íska miðlun. Ég á engan einn upp­á­halds­ljós­mynd­ara en held mikið upp á RAX, André Kertész og Golla. Og já auð­vitað tengdapabba, ég má ekki gleyma honum,“ segir George og hlær.

Grænblöðungarnir fá mikla athygli

Þau hafa kannski ekki mikið and­rými til að breyta heima fyrir þó að smá­hlut­irnir fari stundum á flakk. Á heim­il­inu eru fal­legar plöntur og sér George algjör­lega um þá hlið. „Ég er með app í sím­anum sem heitir Koubachi, það sendir mér áminn­ingar um hvenær ég eigi að vökva, spreyja o.s.frv.,“ segir George. Hér verður blaða­maður for­vit­inn því það hefur reynst erfitt að halda lífi í þessum græn­blöð­ungum hingað til.

„Það eru engar plöntur vannærðar á þessu heim­ili.“

„Þú nefnir plönt­urnar þínar og þegar þú hefur sett inn teg­und­ina og helstu upp­lýs­ingar þá færð þú til­kynn­ingu um hvenær á að vökva, hvenær á að gefa nær­ingu og annað. Það eru engar plöntur vannærðar á þessu heim­ili,“ segir George.

„Okkur finnst gaman að eiga fal­legar bækur og leyfa þeim að vera eins og lista­verk.“

Aðspurð seg­ist Úlf­hildur taka helst eftir inn­rétt­ingum, skipu­lagi og nýt­ingu á rým­inu er hún kemur inn á önnur heim­ili en George tekur helst eftir vegg­list og and­rúms­loft­inu. En að þeirra mati gera bækur, plöntur og lista­verk mikið fyrir heim­ilið. „Við erum miklir bókaunn­endur. Okkur finnst gaman að eiga fal­legar bækur og leyfa þeim að vera eins og lista­verk. Við höfum fengið margar bækur frá pabba og við kaupum yfir­leitt eina bók á ferða­lögum, það er orðin skemmti­leg hefð,“ segir Úlf­hildur.

Í svefn­her­berg­inu.

Falleg birta í svefn­her­berg­inu. Litla myndin er eftir David Young, bróður George.

Eruð þið að safna ein­hverju?

„Það er vanda­málið við okkur. Við erum örugg­lega leið­in­leg­asta fólkið þegar það kemur að því að gefa gjafir því ef það er eitt­hvað sem okkur þykir fal­legt þá kaupum við það oftar en ekki. Það mætti halda að við værum búin að vera saman í 50 ár. Ef við myndum gifta okkur, þá myndi lík­leg­ast vera baukur við dyrnar fyrir brúð­kaups­ferð­inni,“ segja þau og hlæja.

Kött­ur­inn Salka.

Texti / Elva Hrund Ágústs­dóttir
Myndir / Rut Sig­urð­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni