Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

69 dagar til stefnu

69 dagar til stefnu
ther­esa may

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur 69 daga til að kom­ast að ein­hverri nið­ur­stöðu varð­andi fyr­ir­hug­aða útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu sem tekur gildi þann 29. mars. May er í svo gott sem von­lausri stöðu. Heima­fyrir er hún löskuð eftir stærsta ósigur sem nokkur rík­is­stjórn hefur beðið í atkvæða­greiðslu á þingi. Flokkur hennar er klof­inn á milli þeirra sem vilja taf­ar­lausa útgöngu án samn­ings og þeirra sem vilja reyna til þrautar að ná ásætt­an­legum samn­ingi við Evr­ópu­sam­bandið sem aftur á móti er ólík­legt til að fall­ast á frek­ari til­slak­anir.

May hafði frestað atkvæða­greiðslu um útgöngu­samn­ing­inn í breska þing­inu fram yfir ára­mót til að reyna að afla fylgis við hann. Það þótti allan tím­ann lang­sótt. Engan óraði þó fyrir því að May myndi bíða jafn­stóran ósigur í þing­inu og raun bar vitni – 432 greiddu atkvæði gegn samn­ingnum en ein­ungis 202 með. Að öllu jöfnu hefði for­sæt­is­ráð­herra sagt af sér eftir slíkan ósigur en May gaf það strax út að hún ætl­aði að sitja sem fast­ast.

May stóð þó af sér van­traust­s­til­lögu Jeremy Corbyn, leið­toga Verka­manna­flokks­ins, í fyrra­dag sem hefði þýtt nýjar kosn­ingar. Það má í raun telj­ast guðs­gjöf fyrir May hversu ofboðs­lega veikur leið­togi Jeremy Corbyn er. Undir öllum venju­legum kring­um­stæðum ætti Verka­manna­flokk­ur­inn að eiga auð­veldan sigur í vændum í þing­kosn­ingum. Ekki bara hafa May og Íhalds­flokk­ur­inn haldið afleit­lega utan um Brexit-ferlið, heldur er allt í upp­námi innan flokks­ins. En skoð­ana­kann­anir sýna flokk­ana nán­ast með jafnt fylgi.

Fram­haldið er að mörgu leyti óráðið. Hvort ESB opni dyrnar að nýju fyrir May eða gefi út ein­hverja full­vissu um fram­tíð­ar­sam­band um landa­mæri Írlands og Norður-Írlands, sem var einn helsti ásteyt­ing­ar­steinn­inn í sam­komu­lagi May, verður að koma í ljós. Yfir­lýs­ingar ráða­manna ESB voru ekki upp­örvandi fyrir May en í þeim fólust fyrst og fremst til­mæli til Breta að ákveða hvað þeir raun­veru­lega vilja áður en þeir banka aftur á dyrnar. Einn mögu­leiki er að May óski eftir því að útgöngu verði frestað um til­tek­inn tíma á meðan reynt er að ná samn­ingum. Hinir kost­irnir eru svo raktir hér til hliðar. Annars vegar útganga án samn­ings og hins vegar önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla. Báðar leið­irnar eru þyrnum stráðar.

Ófyrirséðar afleiðingar án samnings

Ef eng­inn samn­ingur næst mun Bretland ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu 29. jan­úar klukkan 11.00. Það þýðir að lög og reglur sam­band­ins ná ekki yfir Bretland en samn­ingur May sem var felldur fól í sér 18 mán­aða aðlög­un­ar­frest. Slíkt hefur í för með sér ófyr­ir­sjá­an­legar afleið­ingar, sumir ganga svo langt að lýsa því sem neyð­ar­á­standi. Umrædd lög og reglu­gerðir spanna öll svið mann­lífs­ins – tolla­mál, við­skipti, ferða­lög og rétt­indi borg­ar­anna. Fylgj­endur Brexit hafa sagt að varn­að­ar­orð séu einkum hræðslu­á­róður. Við útgöngu verði Bretland frjálst og full­valda ríki og það eina sem til þurfi sé und­ir­bún­ingur af hálfu stjórn­valda. Þá muni geng­is­fall punds­ins, sem mjög lík­legt er að verði skarpt, fela í sér tæki­færi fremur en eitt­hvað annað enda bæti það sam­keppn­is­stöð­una við Evrópu. And­stæð­ingar Brexit ótt­ast hins vegar að allt geti farið á versta veg. Pundið hríð­falli með til­heyr­andi verð­bólgu, ringul­reið muni skap­ast á landa­mærum Bret­lands og vöru­skortur gæti orðið við­var­andi.

Búa sig undir matvæla- og lyfjaskort

Við útgöngu án samn­ings myndu við­skipti við ríki ESB falla undir skil­mála Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar (WTO) sem þýðir að vörur þaðan þurfa að und­ir­gang­ast sömu toll­með­ferð og bera sömu tolla og vörur ann­ars staðar frá í heim­inum. Það mun ekki bara hafa í för með sér hærra vöru­verð heldur einnig marg­faldan toll­af­greiðslu­tíma. Í leyni­legri skýrslu breskra stjórn­valda sem lekið var í fjöl­miðla kom fram að lík­legar afleið­ingar verði mat­væla- og lyfja­skortur og í því skyni tóku stjórn­völd upp á því að hamstra mat og lyf ef allt færi á versta veg. Millj­ónir íbúa ESB-ríkja sem búsettir eru í Bret­landi munu verða í algjörri óvissu um fram­tíð sína og það sama gildir um millj­ónir Breta sem búsettir eru í Evrópu, þeir munu dvelja þar upp á náð og mis­kunn við­kom­andi ríkja, semj­ist ekki um annað.

Búið að tryggja rétt Íslendinga í Bretlandi

Brexit mun að sjálf­sögðu hafa áhrif á Ísland, enda við­skipti milli land­anna farið fram í gegnum samn­ing­inn um Evrópska efna­hags­svæðið (EES), svæði sem Bretland mun yfir­gefa eftir 70 daga. Í lok síð­asta árs náðu EFTA-ríkin (Ísland, Noregur og Lichtenstein) sam­komu­lagi við Bretland sem fól í sér sömu aðlögun og gilti um önnur ríki ESB eftir útgöngu. Sam­komu­lagið var þó háð því að breska þingið sam­þykkti útgöngu­samn­ing­inn við ESB. Við­skipti við Bretland gætu þess vegna raskast veru­lega ef íslenskum stjórn­völdum tekst ekki að semja um annað fyrir útgöngu. Aftur á móti lá fyrir póli­tískt sam­komu­lag milli Íslands og Bret­lands um gagn­kvæman rétt borg­ara til áfram­hald­andi búsetu eftir útgöngu, jafn­vel þótt eng­inn Brexit-samn­ingur næð­ist. Íslend­ingar búsettir í Bret­landi þurfa þess vegna ekki að ótt­ast um stöðu sína, frekar en Bretar búsettir á Íslandi.

Vandasöm önnur þjóðaratkvæðagreiðsla

Þrýst hefur verið mjög á um að efna til ann­arrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Brexit. Það er heldur ekki jafn­aug­ljós kostur og margir vilja vera láta. Í fyrsta lagi yrði deilt um hvað ætti að kjósa; ætti að kjósa um útgöngu­samn­ing May eða hætta alfarið við útgöngu eða jafn­vel allir þrír kost­irnir í boði? Um það er ekk­ert sam­komu­lag. Brexit var sam­þykkt með ein­ungis 4 pró­senta meiri­hluta og þótt skoð­ana­kann­anir nú bendi til þess að nið­ur­staðan í annarri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu yrði sú að Bretar skipti um skoðun og hætti við útgöngu, þá er mun­ur­inn engan veg­inn afger­andi þrátt fyrir alla ringul­reið­ina og að yfir­gnæf­andi fjöldi kjós­enda telji rík­is­stjórn­ina hafa haldið illa á málum. Enda sýna kann­anir að önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla yrði ekki til þess að lægja öld­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi