Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Skellum okkur á skíði

Að stunda skíða­í­þrótt­ina hefur lengi verið föst hefð hjá mörgum Íslend­ingum en til að fá sem mest út úr skíða­ferð­inni er gott að kynna sér vel alla þá mögu­leika sem í boði eru. Víða um land hafa verið byggð glæsi­leg skíða­svæði sem henta vel fyrir alla fjöl­skyld­una.

Skellum okkur á skíði
Grænar leiðir Grænar leiðir eru fyrir byrj­endur. Mælt er með því að byrj­endur haldi sig í nágrenni við skál­anna. Bláar leiðir Bláar leiðir eru léttar leiðir við hæfi allra sem hafa grunn­skíða­kunn­áttu. Rauðar leiðir Rauðar leiðir eru aðeins við hæfi góðra skíða­manna sem vilja hraða og meiri bratta.

Í Blá­fjöllum, á Odd­skarði í Fjarð­ar­byggð, í döl­unum tveimur á Ísafirði og Hlíð­ar­fjalli á Akureyri er upp­lagt að bregða sér í skíða­skóna þegar rétt viðrar. Starfs­fólk stað­anna hvetur gesti sína til að kynna sér aðstæður skíða­svæð­anna svo hægt sé að fá sem mest út úr ferð­inni. Mögu­leik­arnir sem eru í boði á hverjum stað eru nefni­lega mun fleiri en margir gera sér í hug­ar­lund en með auk­inni fræðslu er hægt að fara meira um innan hvers svæðis og reyna sem flestar brekkur og leiðir.

Mik­il­vægt er að huga vel að bún­aði sínum og fatn­aði, því það getur spillt góðum degi ef eitt­hvað bilar eða kuld­inn bítur. Fyrir byrj­endur er best að halda sig í nágrenni skál­anna, þar sem auð­veld­ustu lyft­urnar eru.

Snjó­bretta­fólk er hvatt til að fara var­lega í snjó­hengjum sem eru utan hins skipu­lagða skíða­svæðis vegna snjó­flóða­hættu.

Samkvæmt örygg­is­reglum skíða­svæða á bretta­fólk alltaf að vera með annan fót­inn lausan í stóla­lyftu og skylda er að hafa öryggisól á brett­inu tengda við sig.

Gott er að prenta út kort af göngu­leiðum og hafa með sér í vas­anum.

Ef skíða- eða bretta­fólk verður fyrir óhappi eru sér­þjálfaðir starfs­menn skíða­svæð­anna ávallt reiðu­búnir til aðstoðar. Ef um alvar­legri slys er að ræða þurfa nær­staddir að leita aðstoðar næsta starfs­manns strax og mun hann sjá um að koma boðum til sér­þjálfaðra skyndi­hjálp­ar­manna sem bregð­ast við eftir aðstæðum.

Reglur Alþjóða skíðasambandsins

1. Til­lit­semi
Skíða- eða snjó­bretta­maður skal hegða sér á þann hátt að hann stofni ekki öðrum í hættu, valdi óþæg­indum eða skaða.
2. Stjórn á hraða
Skíða- eða snjó­bretta­maður skal ávallt hafa fullt vald á hrað­anum. Hann skal ekki fara hraðar en geta hans leyfir og aðstæður hverju sinni, svo sem veður, færi og fjöldi í brekkum.
3. Að velja sér leið
Sá sem kemur niður brekku eða aftan að öðrum skíða- eða snjó­bretta­mönnum skal velja sér leið þannig að hann stofni ekki þeim sem fyrir framan eru í hættu.
4. Fram­úr­taka
Fara má fram úr eða fram hjá öðrum skíða- eða snjó­bretta­manni fyrir ofan hann eða neðan, hægra eða vinstra megin, að því til­skildu að sá sem farið er fram úr eða fram hjá hafi allt það svig­rúm sem hann þarf.
5. Að fara inn í eða vera á merktri braut
Sá sem fer inn í merkta braut eða leggur aftur af stað eftir að hafa stansað eða sveigt upp á við skal líta vel í kringum sig og ganga úr skugga um að hann stofni hvorki sjálfum sér né öðrum í hættu.
6. Stöðva í brekkum
Skíða- eða snjó­bretta­maður skal ekki stansa þar sem braut er þröng eða útsýni tak­markað nema brýna nauð­syn beri til. Ef hann dettur skal hann færa sig úr braut­inni eins fljótt og hann getur.
7. Gengið upp eða niður brekku
Skíða- eða snjó­bretta­menn sem fara fót­gang­andi upp eða niður brekku skulu ganga í jaðr­inum á merktum brautum.
8. Leið­bein­ingar á skiltum
Skíða- eða snjó­bretta­menn skulu fara í einu og öllu eftir leið­bein­ingum á skiltum sem hafa verið sett upp í brekkum.
9. Aðstoð
Ef slys ber að höndum skulu allir veita þá aðstoð sem þeir geta.
10. Að gefa sig fram eftir slys
Allir skíða- eða snjó­bretta­menn sem verða vitni að eða lenda í slysi skulu gefa sig fram, án til­lits til þess hvort þeir bera ábyrgð á slys­inu eða ekki.

Myndir / Auðunn Níelsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina