Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mesta áskorunin að yfirfæra kolvetnarétti yfir í ketólífsstíl

Aðal­heiður Ásdís Boutaayacht er ein af stofn­endum Facebook-hóps­ins LKL, stuðn­ing­hóps kvenna á lág­kol­vetna­mat­ar­ræði. Verkefni hennar á árinu eru ótal mörg en þar á meðal er upp­skrifta­bók í vinnslu. Við fengum Aðal­heiði til að deila með okkur upp­skriftum að ljúf­fengum kara­mellu-pek­an­bitum, kanil­köku og mexíkó-veislu en allir eiga rétt­irnar það sam­eig­in­legt að vera lág­kol­vetna.

Mesta áskorunin að yfirfæra kolvetnarétti yfir í ketólífsstíl

Hvað var það fyrsta sem þú lærðir að elda? Það voru fisk­bollur í dós með bleikri sósu. Ég var víst ein­stak­lega góð í að hræra upp­stúfið á heim­il­inu sem útskýrir kannski margt því ég geri rosa­lega gott lág­kol­vetna­upp­stúf.

Skemmti­leg­ast er að finna gamlar upp­skriftir og útfæra þær að mínum lífs­stíl.

Ertu jafn­víg á bakstur og matseld? Já, mér finnst jafn­skemmti­legt að elda og að baka. Skemmti­leg­ast er að finna gamlar upp­skriftir og útfæra þær að mínum lífs­stíl.

Höfðar ein­hver mat­reiðslu­hefð sér­stak­lega til þín? Ég elda mjög mikið mat sem er með mexíkósku ívafi. Finnst gaman að skoða fram­andi upp­skriftir og færa þær yfir í lág­kol­vetna. Ég er ann­ars opin fyrir öllu og alltaf gaman að prófa nýtt.

Verstu mis­tök sem þú hefur gert í eld­hús­inu? Þau verða þegar ég hef lít­inn tíma til að gera marga hluti. Enda á að reyna að troða því öllu í þennan litla tímara­mma sem verður að klessu. Ég læri af þessu með hverju skipt­inu og skipu­legg mig frekar betur.

Hefur þú upp­götvað ein­hverja snilld í matseld nýlega? Já, alveg heilan hell­ing, til dæmis að avókadó er hægt að nota fyrir alla heims­ins hluti, allt frá því að vera álegg á brauð í að vera hluti af súkkulaði­köku eða jafn­vel í formi franskra með ham­borg­ar­anum.

Hver er stærsta áskorun sem þú hefur mætt í elda­mennsku? Án efa að útfæra allt það sem ég elskaði í kol­vetna­fyllirínu yfir í minn ketólífs­stíl, þar á meðal mexíkóskan mat, það hefur tek­ist frá­bær­lega. Heldur manni alveg við efnið frá degi til dags.

Kanilterta ömmu

Þessi kaka er ómót­stæði­leg og ég hef náð meist­ara­lega að gera hana lág­kol­vetna, sykur- og hveiti­lausa. Tók upp­skrift­ina hennar ömmu og útfærði hana svona fínt sem hentar öllum á lág­kol­vetna­matar­æði.

175 g mjúkt smjör
175 g sukrin gold
2 egg
175 g möndlu­mjöl
2 msk. kanill
2 tsk. lyfti­duft
500 ml þeyttur rjómi (á milli botn­ana)
1 msk. fín­möluð sæta (þeytt með rjóm­anum)

Blandið hrá­efnum í botn­ana vel saman í hræri­vél. Skiptið deig­inu upp í 6 jafna parta (u.þ.b. 105 g hver skammtur), smyrjið hverjum parti/botni jafnt og þunnt í hring­botna form á smjör­pappír. Gott að nota hringlótt tertu­form til að teikna á smjör­papp­ír­inn. Bakið botn­ana við 160°C í 8 mín­útur með blæstri, eða við sama hita án blást­urs í 13 mín­útur. Kælið botn­ana alveg áður en þeytti rjóm­inn er settur á milli botn­ana.

Súkkulaðikrem

40 g 85% Cavalier-súkkulaði
30 g Cavalier-súkkulað­is­myrja
10 g Good Good-síróp
30 g smjör

Bræðið smjör í örbylgju og hrærið súkkulaðið saman við heita smjörið þar til allt er upp­leyst. Setjið súkkulað­is­myrj­una og sírópið saman við og hrærið vel. Dreifið vel úr krem­inu yfir kök­una þannig að það leki örlítið niður hlið­arnar. Kakan er best þegar hún hefur staðið í kæli í a.m.k. klukku­stund.

Karamellupekanbitar

Ég elska ristaðar pek­an­hnetur og ég elska kara­mellu, þetta tvennt bara gat ekki klikkað saman.

48 stk. pek­an­hnetur
100 g Fiber Gold-síróp
50 g smjör
200 ml rjómi
Himala­yan-salt eftir smekk
3 dropar English Toffee-stevíu­dropar

Dreifið pek­an­hnetum á ofn­plötu og hitið á 100°C með blæstri í 10-15 mín­útur. Hrærið í þeim á milli og passið að brenna þær ekki.

Setjið smjör og síróp saman á pönnu, leyfið því að malla á ¾ hita þar til blandan dekk­ist og byrjar að þykkna. Hrærið reglu­lega í kara­mell­unni. Hellið næst rjóm­anum saman við og hrærið vel í blönd­unni. Lækkið hit­ann niður í miðl­ungs­hita­stig og leyfið kara­mell­unni að malla í um 20-25 mín­útur, eða þar til hún byrjar að þykkna og dekkj­ast örlítið.

Gott er að hræra vel í kara­mell­unni á milli og vel í lokin þar til hún verður slétt. Passið að brenna kara­mell­una ekki við. Raðið pek­an­hnet­unum á smjör­pappír í hálf­gerðar stjörnur (4 stk. saman) og setjið um það bil 1 mat­skeið af kara­mellu fyrir miðju pek­an­hnet­anna þannig að það festi þær saman. Kælið í a.m.k. klukku­stund áður en borið er fram.

Mexíkóskur kjúklinga­réttur
fyrir fjóra

Ég er alveg viss um það að ég hafi verið Mexíkói í fyrra lífi. Það er ekk­ert sem ég elska meira í matseld en eitt­hvað mexíkóskt. Tortilla-flögur, taco, guacomole og ostur.

700 g úrbeinuð kjúklinga­læri
150 g mexík­óostur
50 g rauð­laukur
25 g vor­laukur
50 g rjómi (má sleppa)
90 g Phila­delphia-rjóma­ostur með gras­lauk
1 krukka Hot Taco-sósa frá Santa Maria
50 g rauð paprika
50 g græn paprika
2 tsk. cumminkrydd
2 tsk. papriku­krydd
2 msk. Fiesta de Mexico frá Potta­göldrum
Himala­yan-salt
rif­inn ostur

Kryddið og saltið kjúkling með öllum krydd­unum og Himala­yan-salt­inu og leyfið að standa meðan þið skerið papriku, rauð­lauk, vor­lauk og mexík­óost í smáa bita. Smyrjið botn á litlu eld­föstu formi með rjóma­ost­inum. Dreifið vor­lauk og helm­ingnum af rauð­lauknum yfir rjóma­ost­inn og leggið krydd­aðan kjúkling­inn yfir. Hellið taco-sós­unni jafnt yfir og dreifið vel úr. Dreifið næst paprikum, rest af rauð­lauk og mexík­óost yfir taco-sós­una. Hellið rjóm­anum jafnt yfir allan rétt­inn.

Setjið inn í ofn og eldið við 180°C á blæstri í 15 mín­útur. Takið rétt­inn út, dreifið rifnum osti eftir smekk yfir rétt­inn og eldið í 15 mín­útur í við­bót.

Berið fram með góðu guacamole, sýrðum rjóma og heima­til­búnum tortillaflögum.

Tortillaflögur

 160 g rif­inn mozzarella-ostur
60 g möndlu­mjöl
1/4 tsk. cumin
1/4 tsk. papriku­krydd
1/8 tsk. cayenne-pipar
1 tsk. þurrk­aður kórí­ander
2 klípur salt

Setjið allt í skál og inn í örbylgju­ofn í 1-1 ½ mín. Hnoðið deigið örlítið saman með skeið og setjið á smjör­pappír með annan smjör­pappír yfir og fletjið út mjög þunnt með köku­kefli. Skerið í þrí­hyrn­inga með pizzaskera og dreifið á smjör­papp­írs­klædda ofn­plötu. Bakið við 200°C án blást­urs í 7 mín­útur og kveikið síðan á blæstri í 3 mín­útur, sam­tals 10 mín­útur. Takið af ofn­plöt­unni og leyfið snakk­inu að kólna alveg.

Guacamole

2 avókado
4 kirsu­berjatómatar
40 g rauð­laukur
1 g kórí­ander (ferskt eða þurrkað)
1 msk. Fiesta de Mexico frá Potta­göldrum
1 msk. lime-safi
salt og pipar eftir smekk

Takið stein og hýði af avóka­dóinu, skerið lauk og tómata niður í bita. Setjið öll hrá­efnin saman í mat­vinnslu­vél/bland­ara þar til allt er vel blandað saman þannig að lauk­ur­inn og tómat­arnir eru ekki í stórum bitum. Saltið og piprið eftir smekk. Guacamole geym­ist best í lok­uðu íláti. Til þess að guacamole hald­ist sem ferskast er gott að hella vatni rólega yfir yfir­borðið þannig að það þeki yfir allt.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina