Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Saga sundfatnaðarins

Fyrir tæpum hund­rað árum voru konur sektaðar og jafn­vel hand­teknar ef þær voru ósið­sam­lega klæddar á strönd­unum. En mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá, úrval sund­fatn­aðar er gíf­ur­legt en hér verður farið yfir sögu bað­fatn­aðar og bik­inís­ins.

Saga sundfatnaðarins

1900-1910

Hin ástr­alska Annette Kell­erman var sund­ball­er­ína sem stökk ofan í gler­búr með miklum til­burðum. Þegar hún kom til Banda­ríkj­anna árið 1907 var hún hand­tekin fyrir ósið­legt athæfi því hún var með bera upp­hand­leggi, háls og fætur. Hún ákvað þá að breyta sund­föt­unum þannig að þau hyldu allt en væru samt enn aðsniðin eins og þau voru í byrjun. Það voru ekki allar konur til­búnar til þess að ganga í slíkum fatn­aði sem sýndi allt of mikið að mati margra. Hélst því hinn týpíski þungi sund­fatn­aður, sem líkt­ist helst venju­bundnum fatn­aði þeirra, áfram í tísku.

1910-1919

Það leið þó ekki á löngu áður en þessar ströngu sið­ferð­is­reglur varð­andi sund­fatnað breytt­ust og á öðrum ára­tug síð­ustu aldar voru sund­bolir erma- og kraga­lausir og bux­urnar náðu að hnjám. Hins vegar var fatn­að­ur­inn enn svo­lítið víður, það þótti ekki við hæfi að sýna vaxt­ar­lag líkt og þröngi sund­bol­ur­inn hennar Annette gerði. Árið 1916 setti fyr­ir­tækið Jantzen létt­ari sund­föt á markað sem auð­veld­aði hreyf­ingar kvenna í vatni.

Síðan þessi mynd var tekin hefur mikið vatn runnið til sjávar.

1920-1929

Það var ekki fyrr en um árið 1920 sem hin nýja útgáfa sund­bols­ins fór að verða vin­sæl. Til að byrja með voru það mest­megnis flapper-stúlk­urnar sem þorðu að vera í þeim. Reglu­lega voru konur stopp­aðar á strönd­inni svo hægt væri að mæla hvort sund­fötin þeirra væru nógu síð. Konur gátu átt það á hættu að verða sektaðar eða jafn­vel hand­teknar ef þau voru of stutt. Hnésíð sund­föt, eða hálf­gerðar sokka­buxur, héldu áfram vin­sældum sínum, líkt og fyrri ára­tugi, sem og svo­kall­aðir sund­skór.

1930-1939

Á fjórða ára­tugnum fóru sund­föt að líkj­ast því sem þekk­ist í dag. Ullar- og bómull­ar­efnin viku fyrir spandex-efnum. Meira og meira fór að sjást í bakið. Í byrjun ára­tug­ar­ins fóru konur að ganga í sund­fötum sem voru í tveimur pörtum; brjósta­hald­ar­atoppur og stutt­buxur. Um miðjan ára­tug­inn fóru tísku­blöð í Banda­ríkj­unum að birta myndir af konum í slíkum strand­fatn­aði og einnig í kvik­myndum. Það er senni­lega tísku­hönn­uð­inum vin­sæla Coco Chanel að þakka að sól­brúnka er vin­sæl. Fyrr á öldum höfðu föl and­lit sýnt fram á auð­æfi fólks þar sem þau þurftu ekki að vinna úti. Á fjórða ára­tugnum sýndi sól­brúnka auð­æfi því fólk hafði mögu­leika á ferða­lögum og tíma til að liggja í sól­böðum.

Það var heldur ekki fyrr en við lok fjórða ára­tug­ar­ins sem karl­menn máttu vera berir að ofan á ströndum Banda­ríkj­anna. Var bannið vegna þess að fólk vildi ekki hafa „gór­illur“ á strönd­unum.

1940-1949

Árið 1946 sýndi franski fata­hönn­uð­ur­inn Jacques Heim nýja útgáfu af sund­fötum sem hann kall­aði „atome“ eða atómið. Hann sagði þau vera minnstu sund­föt heims­ins. Aðeins þremur vikum síðar kom keppi­nautur hans, Louis Réard, fram með bik­iníið sem hann sagði enn minna en minnstu sund­föt heims. Ekki nóg með að nafl­inn hafi sést (sem hann hafði ekki gert áður), eins og í sund­fötum Heims, heldur not­aði hann aðeins 76 cm af efni í settið. Réard sagði í einu við­tali að bik­iní væri ekki alvöru­bik­iní nema þú gætir dregið það í gegnum gift­ing­ar­hring.

Ursula Andress vakti mikla athygli í þessu bik­iníi sem hún klædd­ist í Bond-mynd­inni Dr. No.

1950-1959

Það voru ekki allir á eitt sáttir um bik­iníið og hversu mikið hold það sýndi. Árið 1951 bönn­uðu aðstand­endur keppn­innar Ungfrú heimur að stúlk­urnar gengu í því. Á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes árið 1953 olli hin djarfa Brigitte Bardot miklum usla þegar hún fór á strönd­ina í litlu bik­iníi.

1960-1969

Á sjö­unda ára­tugnum varð bik­iníið vin­sæll sund- og stran­fatn­aður. Árið 1962 steig hin sviss­neska Ursula Andress upp úr sjónum í bik­iníi í mynd­inni Dr. No með Sean Connery. Hefur Ursula oft verið talin ein áhrifa­mesta Bond-stúlkan. Playboy setti mynd af konu í bik­iníi á for­síðu blaðs­ins sama ár. Leik­konan Annette Funicello lék á móti Frankie Avalon í mynd­inni Beach Party árið 1964 þar sem hún sést í ljós­bleiku bik­iníi sem Banda­ríkja­menn fengu ekki nóg af. Neðri hlut­inn hafði stækkað eilítið frá hinni upp­runa­legu hönnun og var orð­inn meira „60s“. Sama ár hann­aði Rudi Gernrich „monok­iní“ sem var í raun bara neðri partur. Sund­fatn­að­ur­inn vakti mikla hneykslan fólks. Árið 1966 sást Raquel Welch í loð­bik­iníi í mynd­inni One Million Years BC. Plakatið fyrir mynd­ina, þar sem Raquel stendur í sjúsk­uðu bík­iní­inu, er marg­falt fræg­ara en kvik­myndin sjálf.

1970-1979

Bikiníin fóru að minnka á ný á átt­unda ára­tugnum en urðu ekki eins lítil og á níunda ára­tugnum. Toppar sem voru bundnir aftan við háls­inn urðu mjög vin­sælir.

1980-1989

Búningur Carrie Fisher í Star Wars Epsidoe VI: Return of the Jedi færði bik­iníið frá strönd­inni og gerði það að fatn­aði. Málm-bik­iníið hennar hefur orðið vin­sæll hrekkja­vöku­bún­ingur. Árið 1988 lok­aði fyr­ir­tækið Réards en vin­sældir bik­inís­ins urðu senni­lega meiri en hann hafði nokkurn tíma geta gert sér í hug­ar­lund. Um 20% af öllum seldum sund­fatn­aði í Banda­ríkj­unum þetta ár voru bik­iní. Þau voru einnig minni en nokkru sinni fyrr, g-strengir urðu vin­sælir. Sund­bolir urðu hins vegar afskap­lega vin­sælir á ný.

Búningur Carrie Fisher í Star Wars Epsidoe VI: Return of the Jedi vakti mikla athygli á sínum tíma.

1990-1999

Bikiní tíunda ára­tug­ar­ins varð enn minna en ára­tug­ar­ins á undan. Ekki var óal­gengt að topp­arnir væru svo litlir að þeir hyldu ekki brjóstin og með auknum vin­sældum brasil­ísks vax, þar sem öll hár eru tekin úr klof­inu, urðu neðri hlutar bik­inís­ins enn minni. Sumir veltu fyrir sér af hverju konur væru yfir höfuð að klæð­ast sund­fatn­aði þegar hann var svo lít­ill til að byrja með.

2000 til dagsins í dag

Það þarf mikið til að fólk pæli í í hvernig bik­in­íum konur eru þessa dag­ana en þegar Demi Moore sást í svörtu bik­iníi í kvik­mynd­inni Charlies Angels: Full Throttle, höfðu slúð­ur­dálka­höf­undar ekki undan því að velta fyrir sér hvort þetta væri hennar nátt­úru­lega útlit eða hvort hún hefði farið í lýta­að­gerðir. Sundföt dags­ins í dag eru margs­konar og er í raun allt leyfi­legt. Árið 2010, til dæmis, gekk Eva Herzigova tísk­u­pall Adriönu Degreas í gam­al­dags bik­iníi sem gæti verið notað sem alfatn­aður í dag.

Árið 2012 prýddi hið nær óþekkta módel Kate Upton for­síðu blaðs­ins Sports Ill­u­strated í mjög litlu bik­iníi.

Texti / Helga Dís Björg­úlfs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina