Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Undarlegir endurfundir

Undarlegir endurfundir

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Þegar ég var unglingur gætti ég um tíma barna fyrir konu sem þótti skrautleg og skar sig úr í bænum þar sem við bjuggum. Löngu síðar lágu leiðir okkar saman aftur og þá hafði margt breyst.

Mér fannst afar gaman að passa fyrir Rúnu. Hún var allt öðru­vísi en allir aðrir sem ég hafði kynnst og fór ekki hefð­bundnar leiðir. Hún átti fjögur börn með þremur mönnum og það þótti ekki par fínt. Enginn þess­ara manna sýndi nokkurn áhuga á börnum sínum svo hún ól þau upp ein. Mér fannst Rúna hafa ferska og skemmti­lega sýn á lífið og vera bjart­sýn þótt hún ætti oft erfitt með að ná endum saman. Hún var ein­stak­lega list­feng og heim­ili hennar bar þess merki. Stofu­glugga­tjöldin voru ein­stök og mér ógleym­an­leg, annar væng­ur­inn var ljós­blár, tákn fyrir him­in­inn og þar hafði hún málað ský og fugla, á meðan hinn var dökk­blár, tákn sjósins með ámál­uðum fiskum og sjáv­ar­gróðri.

Rúna þótti vera föst fyrir og lenti til dæmis iðu­lega í vand­ræðum með að fá iðn­að­ar­mann ef eitt­hvað bil­aði hjá henni, því hún var sögð „leið­in­leg“ í við­skiptum, vildi fá að vita upp á hár hve mikið verkið kost­aði áður en byrjað var að vinna það og ef eitt­hvað bætt­ist við harð­neit­aði hún að borga það. Eðlilega, en hún syk­ur­húð­aði orð sín aldrei og það sem öðrum fannst vera kurt­eisi kall­aði hún smjaður.

Bannað að passa

Rúna gat verið hvöss í til­svörum, kald­hæðin og lét engan eiga neitt hjá sér. Bæj­ar­búar töldu víst að það hefði hrakið frá henni barns­feður hennar. Hver vildi svona kjaft­fora konu? Rúna sagði mér ein­hverju sinni að hún væri aum­ingja­seg­ull, lað­aði að sér menn sem virt­ust fínir á yfir­borð­inu en væru það ekki í reynd.

Eflaust mátti margt um Rúnu segja en hún var góð við börnin sín og upp­eld­is­að­ferðir hennar voru frjáls­legri en tíðk­að­ist á þeim tíma.

Elsta barn Rúnu og eini son­ur­inn var ekki nema ári yngri en ég og þurfti því ekki pössun, dæt­urnar voru mun yngri og yngsta bara árs­gömul. Rúna vildi ekki leggja það á ung­ling­inn að þurfa sífellt að passa þær, sjálf þurfti hún sem elsta systkinið að passa út í eitt þegar hún var krakki. Hún gat verið ansi kald­hæðin og hvöss við son­inn og hann svar­aði henni fullum hálsi, eitt­hvað sem ég hefði aldrei þorað að gera við mömmu mína. Ég átt­aði mig á því löngu síðar að þetta gaf tón­inn fyrir sam­skipti hennar og barna hennar í fram­tíð­inni.

Nokkrum mán­uðum eftir að ég fór að passa fyrir Rúnu bann­aði mamma mér að umgang­ast hana, henni fannst hrifn­ing mín á henni of mikil og Rúna ekki góð fyr­ir­mynd. Líklega not­aði mamma tæki­færið þegar hún sá frekar slakar miðs­vetr­ar­ein­kunnir mínar. Rúna varð svo­lítið pirruð þegar ég sagði henni þetta þegar ég kom að passa um kvöldið og ég fékk aldrei borgað fyrir þetta síð­asta skipti.

Við fjöl­skyldan fluttum á höf­uð­borg­ar­svæðið nokkrum árum seinna og þá var Rúna löngu flutt í Kópavog, hafði ég heyrt. Hún þótti víst ágæt spá­kona og las í bolla og spil.

Í fjöl­skyldu hennar var hver höndin upp á móti annarri og Rúna gat ekki hugsað sér að vera í sam­skiptum við t.d. mömmu sína og bróður. Systir hennar, búsett erlendis, var sú eina sem talandi væri við, hafði hún sagt mér.

Lítill heimur

Ekki grun­aði mig að við Rúna myndum nokkurn tím­ann hitt­ast aftur, hvað þá tengj­ast fjöl­skyldu­böndum en það gerð­ist fyrir nokkrum árum. Eldri dóttir mín fór að vera með barna­barni Rúnu, eða son­ar­syni hennar. Lítill heimur, hugs­aði ég, en þegar ég spurði fékk ég lítið upp úr vænt­an­legum tengda­syni, svo virt­ist sem lítið sem ekk­ert sam­band væri á milli fjöl­skyldu hans og Rúnu. Hann sagð­ist þó alltaf fara með jóla­pakka til hennar á aðfanga­dag en væri sjaldn­ast boðið inn. Hún gæfi aldrei jóla­gjafir, væri fátækur öryrki í lélegri íbúð og fjöl­skyldan hefði fullan skiln­ing á því.

Ég fyllt­ist samúð með Rúnu og hét því með sjálfri mér að fara til hennar við tæki­færi. Tengda­sonur minn réð mér frá því að heim­sækja hana, sagði ömmu sína vera erf­iða konu sem hatað­ist út í allt og alla, hann væri sjálfur hálf­hræddur við hana.

Ég dreif mig samt til hennar einn dag­inn en hafði vit á því að hringja fyrst og boða komu mína. Rúna virt­ist hissa en ég hitti greini­lega vel á hana því hún sagði að ég væri vel­komin dag­inn eftir og bætti við að ef ég væri við­kvæm fyrir drasli skyldi ég ekki hafa fyrir því að koma.

Ótrúleg listaverk

Ég keypti lít­inn blóm­vönd og köku til að færa henni og drap á dyr. Rúna opn­aði og bauð mér inn. Hún hafði merki­lega lítið breyst í útliti þessi ár sem höfðu liðið. Ég elti hana eftir þröngum gangi og inn í lítið eld­hús þar sem sást ekki í borð og bekki fyrir dóti. Samt fannst mér ekki vera óhreint hjá henni, bara allt of mikið af öllu. Inn af eld­hús­inu var lítil borð­stofa og hún bauð mér sæti þar. Hún var snögg að setja blómin í vasa, skella kök­unni á disk og búa til kaffi. Henni fannst snið­ugt að við tengd­umst þessum böndum en sagði að frum­burð­ur­inn, pabbi tengda­sonar míns, væri ómögu­legur og hún vildi sem minnst við hann tala. Ekki útskýrði hún það frekar og ég spurði ekki.

Íbúðin var dimm og drunga­leg og greini­legt að hún hafði ekki verið máluð lengi, það var ekki vond lykt inni en loftið var þungt, lík­lega vegna þess að íbúðin var full af dóti.

Þaðan sem ég sat sá ég inn í stofu og svefn­her­bergi og þar virt­ist vera heilu haug­arnir af alls kyns dóti í snyrti­legum stöflum. Hún sýndi mér þetta eftir kaffi, eða hluta þess, og þetta var að megn­inu til handa­vinnan hennar, eflaust til margra ára. Meðal ann­ars hekluð sam­kvæm­is­veski, sjöl, afar fínir spari­treflar og -eyrna­bönd og útprjón­aðir sokkar og vett­lingar með mynstrum eftir hana, og margt fleira sem mér fannst ein­stak­lega fal­legt. Hún hafði reynt að koma þessu í sölu í búðum bæði í Kópavogi og Reykja­vík en öllum fannst hún verð­leggja hlut­ina of hátt. Ég starði á þessi flottu lista­verk hennar en samt gaf hún ekki börnum sínum eða barna­börnum jóla­gjafir! Hver ein­asti hlutur þarna hefði verið stór­kost­leg gjöf, smekk­leg og list­ræn.

Rúna sagð­ist ekki vera til í að gefa vinnu sína, það vildi þó eng­inn borga sann­gjörn laun fyrir svo börnin hennar yrðu bara að fleygja þessu að henni dauðri, eins og hún orð­aði það sjálf.

Þarna voru líka tíma­rit í bunkum, heilu árgang­arnir, sýnd­ist mér, snyrti­lega rað­aðir upp á svefn­her­berg­is­gólf­inu. Kassar í stöflum og plast­pokar, mögu­lega handa­vinna, sem ég veit ekki hvað var í.

Þegar „fávitunum“ fjölgar

Rúna var kurt­eis við mig, lík­lega vegna blómanna og kök­unnar, en ég var þeirri stund fegn­ust þegar ég slapp út. Vissu­lega gat hún verið fyndin en samt svo kvik­ind­is­leg þegar hún tal­aði um fólk að mér leið illa. Lífið hafði ekki leikið við hana en ekki allir sem eiga erfitt fyll­ast beiskju og fæla aðra frá sér með eitr­uðum athuga­semdum. Í sam­tali okkar skild­ist mér að dætur hennar væru einnig í litlu sam­bandi við hana.

Rúna hvatti mig ekki til að koma aftur í heim­sókn þegar ég kvaddi, svo lík­lega vorum við báðar jafn­fegnar þegar ég fór.

Ég sagði tengda­syni mínum frá heim­sókn­inni, að ég hefði drukkið með henni kaffi og skoðað handa­vinn­una hennar sem væri ótrú­lega fal­leg. Hann virt­ist hissa, eins og hann hefði ekki vitað af hann­yrð­unum, og sagði mér samt að pabbi hans hefði farið þangað fyrir ein­hverjum árum til að hjálpa henni með bilað sjón­varp en í leið­inni boð­ist til að fara með í Sorpu eitt­hvað af þessu „drasli“ sem troð­fyllti íbúð­ina. Hún tók því svo illa að hún hefur sem minnst viljað við hann tala síðan. Vissu­lega ónær­gætni að tala um lista­verkin hennar sem drasl en lík­lega hefur hann bara séð hauga af ein­hverju liggja um allt og viljað hjálpa henni að minnka umfangið. Eflaust hefur hann verið hrana­legur, eins og hann á kyn til og ólst upp við. Bless­un­ar­lega er sonur hans, sem nú er giftur dóttur minni, ein­stak­lega ljúfur drengur sem sýnir öllum kurt­eisi og virð­ingu.

Ég hef heil­mikla samúð með Rúnu en hún er sjálfri sér verst. Þegar „fávit­arnir“ í kringum mann eru svona margir væri kannski ráð að líta í eigin barm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina