Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hollráð úr eldhúsinu

Hér koma nokkur góð ráð varð­andi elda­mennsku og þrif.

Hollráð úr eldhúsinu

Geymsla á ávöxtum og grænmeti

Sumir geyma allt græn­meti og alla ávexti í ísskápnum en það er ekki ráð­legt. Mun sniðugra er að geyma t.d. ban­ana og tómata á eld­hús­borð­inu við stofu­hita, þeim líður best í um tíu stiga hita. Mangó og avókadó eru líka dæmi um ávexti sem vaxa á hlýjum slóðum og ættu ekki að vera í kulda.

Illa lyktandi bretti

Lauklykt á það til að setj­ast í skurð­ar­bretti. Best er að nota sér­stakt bretti fyrir lauk og hvít­lauk en ann­ars má skera sítrónu í tvennt og nudda helm­ing­unum ofan í bretti sem lyktar illa og láta það svo liggja yfir nótt í vask­inum. Skolið brettið að morgni og þá ætti lyktin að vera farin.

Sítrónur eyða vondri lykt.

Örbylgju­ofn­inn þrif­inn

Ekki gleyma að þrífa örbylgju­ofn­inn. Gott er að setja sítrón­u­sneiðar í vatn og stilla á háan hita í nokkrar mín­útur. Strjúka svo með rökum klút eftir veggjum ofns­ins og eftir situr bara góð og fersk lykt.

Nýtið það sem til fellur

Þegar kart­öflur eru skrældar fellur til heil­mikið hýði sem er algjör óþarfi að henda í ruslið. Prófið að velta því upp úr ólífu- eða sól­blóma­olíu, salti og góðu kryddi og grilla það svo í ofni í um hálfa klukku­stund á háum hita. Úr verður mjög gott og óvenju­hollt snakk. Þegar kjöt er steikt á pönnu eða í ofn­skúffu er svo til­valið að bæta smá vatni saman við vökvann sem rennur af því, hella því í pott með sósu­krafti og meira vatni auk rjóma og sósu­jafn­ara og þá er komin úrvals­sósa út á kjötið.

Burt með kekkina

Ef sósan er kekkj­ótt hefur hún senni­lega verið hrærð við of háan hita eða að ekki hafi verið hrært nóg í henni á meðan hún var að hitna. Ef kekkir koma er gott að nota pískara og þeyta sós­una vel eða hrein­lega setja hana í bland­ara í nokkrar sek­úndur. Sumir nota bara sigti en þá er hætta á að kekkirnir fest­ist í möskvunum og stífli rennslið. Ef sósa (eða súpa) er síðan geymd í ísskáp og hvít skán kemur ofan á hana, er hún samt ekki ónýt! Fitan hefur bara farið upp á yfir­borðið og þar sem um harða fitu er að ræða þá skilur hún sig frá öðrum vökva og harðnar. Skafið skán­ina bara af og hitið sós­una eða súp­una eins og venju­lega.

Skælt við skurðinn

Kannast þú við að vera útgrátin(n) þegar gestir mæta í mat­ar­boð eftir átaka­mikla bar­áttu við lauk­inn? Skemmti­lega lausnin er auð­vitað að nota sund- eða skíða­gler­augu til að verja sig gegn þessum skað­valdi og best er að gera það þegar gest­irnir eru mættir, þá er komið fín­asta skemmti­at­riði! Annars má skera lauk­inn í tvennt og skola sárin með köldu vatni því upp­gufunin af lauknum verður aðal­lega þar. Best er að vera fljótur að skera og nota beittan hníf en svo eru til sér­stök lauk­skurð­ar­box þar sem lauknum er stungið ofan í boxið og svo er hann saxaður í lok­uðu ílát­inu.

Brauð í púðursykurinn

Stundum virka gömlu hús­ráðin best! Ef púð­ur­syk­ur­inn er harður þarf bara að setja brauð­sneið í krukk­una. Púð­ur­syk­ur­inn dregur í sig rak­ann úr brauð­inu og gerir syk­ur­inn mjúkan og fínan aftur.

Illa lyktandi ísskápur?

Ef ísskáp­ur­inn lyktar illa er það álíka sóða­legt og óaðl­að­andi og gamlar mat­ar­leyfar í vask­inum; svo er ekk­ert girni­legt að borða mat úr ísskáp með óþef. Ef hann lyktar er gott ráð að setja edik í skál og láta hana standa í ísskápnum yfir nótt.

Blettina úr bollunum

Til að ná brúnum blettum eftir te eða kaffi úr bollum má láta þá liggja í klór yfir nótt. Gott hefur líka reynst að skrúbba þá upp úr óblönd­uðum mat­ar­sóda.

Mat­ar­sódi getur komið sér vel í þrifum.

Óhreint burstað stál

Það getur verið erfitt að þrífa burstað stál en best er að nota klút sem búið er að bleyta með sóda­vatni eða óhreins­uðu ediki og strjúka yfir það. Best er að strjúka í sömu átt og stálið „liggur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina