Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Æðisleg tilfinning að vera pabbi

Tón­list­ar­mað­ur­inn Daði Freyr Pét­urs­son var að senda frá sér plöt­una & Co. Platan hefur verið í vinnslu í um eitt ár og hann fékk flotta lista­menn með sér í lið við gerð hennar. Daði býr í Berlín en verður á Íslandi í sumar ásamt konu sinni og nýfæddu barni.

Æðisleg tilfinning að vera pabbi

„Ég valdi ólíkt fólk til að hjálpa mér við gerð plöt­unnar, þetta er lista­fólk sem mér finnst flott og vildi vinna með svo ég spurði bara hvort þau vildu gera lag, þau sögðu öll já, svo ég sendi þeim „beat“, og þá gátu þau ekki losnað frá mér,“ segir Daði Freyr.

Hann byrj­aði fyrsta „beatið“ sem end­aði á plöt­unni þegar hann var staddur í Kambódíu með konu sinni Árnýju Fjólu Ásmunds­dóttur þar sem þau unnu þætt­ina, Árný og Daði í Kambódíu fyrir RÚV á sínum tíma. „Platan fjallar að miklu leyti um hvernig er að vera til í nútíma­sam­fé­lagi.

Daði Freyr var að senda frá sér plöt­una & Co.

Allir eru svo tengdir í gegnum Netið og það er svo auð­velt að miða sjálfan sig við aðra. En svo fer maður líka að miða sitt eig­in­lega sjálf við það sjálf sem maður hefur búið til á sam­fé­lags­miðlum, þá getur verið hættu­legt að skoða til dæmis myndir af sjálfum sér í flottri lýs­ingu úr besta sjón­ar­horn­inu og horfa svo í spegil og ætl­ast til þess að líta alltaf jafn vel út og þar,“ lýsir hann.

„Þá getur verið hættu­legt að skoða til dæmis myndir af sjálfum sér í flottri lýs­ingu úr besta sjón­ar­horn­inu og horfa svo í spegil og ætl­ast til þess að líta alltaf jafn vel út og þar.“

Söngvakeppnin breytti miklu

Söngvakeppnin breytti miklu fyrir Daða en margir muna eftir þátt­töku hans árið 2017 með lag­inu, Hvað með það? en sama tíma var hann að klára dBs Music Berlin-skól­ann. Hann við­ur­kennir að hafa ekki alveg vitað hvað hann ætl­aði að gera eftir skól­ann áður en hann tók þátt í keppn­inni.

„Senni­lega hefði ég farið að vinna meira í kvik­mynda­hljóðum, en ég var kom­inn aðeins í það áður en ég keppti. Í stað­inn fór ég beint í að vinna sem tón­list­ar­maður og hef unnið við tón­list­ina síðan,“ útskýrir hann.

Spurður hvernig hann tók allri athygl­inni sem hann fékk eftir Söngvakeppn­ina svarar hann að hún sé bara eitt­hvað sem fylgi. „Það koma auð­vitað móment þar sem ég myndi vilja bland­ast aðeins meira inn í hóp­inn. En ég er mjög þakk­látur fyrir að fólk nenni að hlusta á tón­list­ina mína svo þetta er langoft­ast bara skemmti­legt. Núna bý ég í Berlín þar sem engin þekkir mig svo ég finn bara fyrir þessu á Íslandi.“

Sérstakt að fylgjast með manneskju vaxa

Daði og Árný hafa búið í Berlín í bráðum fimm ár og hann segir að þau séu ekk­ert á leið­inni til Íslands í bráð. „Það er spurn­ing hvort við flytjum til ein­hvers ann­ars lands. Annars erum við búin að koma okkur frekar vel fyrir,“ segir hann, en þau eign­uð­ust stúlku fyrir tveim mán­uðum og Daði segir að til­finn­ingin sé æðis­leg. „Það fer nátt­úr­lega ótrú­lega mik­ill tími í alla umönnun en það er tími sem ég met mik­ils. Það er rosa­lega sér­stakt að fylgj­ast með mann­eskju vaxa og upp­lifa heim­inn stans­laust á nýjan og nýjan hátt,“ lýsir hann en tón­listin hefur að mestu vikið fyrir föð­ur­hlut­verk­inu síðan dóttirin fædd­ist.

View this post on Instagram

I'm crazy like a fool! #daddycool 📷 @arnyfjola

A post shared by Daði Freyr (@dadimakesmusic) on Apr 26, 2019 at 3:49am PDT

Daði er snill­ingur í cover-lögum og hefur sent frá sér þónokkur mynd­bönd með þannig lögum. Spurður hvernig hann velji lögin og hvað heilli við þetta list­form svarar hann að það sé ein­fald­lega svo auð­velt að gera ábreiðu.

„Það er búið að semja lagið og text­ann og ég þarf bara að gera und­ir­spil. Ég er frekar fljótur að gera „cover“ miðað við tím­ann sem tekur að gera frum­samin lög, þá get ég unnið í 10-20 grunnum áður en ég finn eitt­hvað sem ég vill halda áfram með,“ útskýrir hann og bætir svo við að það sé aldrei að vita nema að út komi cover-laga plata. „Árið 2020 mun alla­vega vera svo­lítið cover-að geri ég ráð fyrir.“

Hvað er svo fram undan?

„Ég er bara mest í því að ves­en­ast út um alla Berlín með kon­unni minni að græja papp­íra og svo­leiðis fyrir Áróru litlu. Berlín er rosa­lega mikið papp­írs­ves­enstaður. En svo erum við að koma til Íslands 28. júní og verðum til 20. ágúst til að hitta fjöl­skyld­una og vin­ina og ég spila eins mikið og ég get. Endilega bókið mig, ég lofa að halda gott partí.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Myndir /Árný Fjóla

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar