Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Endurkoma eða ný byrjun?

Tón­list­ar­mað­ur­inn Gísli Krist­jáns­son, a.k.a. Gísli, hefur sent frá sér nýja plötu, Skeleton Crew.

Endurkoma eða ný byrjun?

Gísli sér sjálfur um allar upp­tökur og hljóð­blöndun á plöt­unni, sem hægt er að lýsa sem sam­blöndu af rokki og gáfu­manna­poppi, og spilar á nán­ast öll hljóð­færi fyrir utan aðstoð sem hann fær frá konu sinni, Elízu Newman sem spilar á fiðlur og bak­raddir. Þá leikur fimm ára dóttir Elízu og Gísla á ýmis slag­verks­hljóð­færi og Birkir Örn Gíslason rífur í eitt git­ar­sóló. Þar sem lág­marks mann­skapur kemur að gerð plöt­unnar fannst Gísla við­eig­andi að kalla hana The Skeleton Crew.

Gísli vakti mikla athygli fyrir fimmtán árum þegar hann gaf út plöt­una How About That hjá útgáfuris­anum EMI UK við mikið lof gagn­rýnenda. Titillag plöt­unnar How about that naut vin­sælda á útvarps­stöðvum um alla Evrópu og Banda­ríkin og var Gísla meðal ann­ars hampað fyrir und­ar­lega texta­gerð. Eftir þriggja ára tón­leika­ferða­lag var stefnan tekin á Los Angeles þar sem Gísli hljóð­rit­aði aðra plötu sína með upp­töku­stjór­anum Mickey Petralia sem þá hafði gert plötur með Eels, Peches, Dandy Warhols og Beck og fleiri stór­stjörnum.

Eftir tím­ann í Los Angeles flutti Gísli til London og sneri sér að upp­töku­stjórnun og laga­smíðum fyrir aðra og vann meðal ann­ars með Duffy, Mick Jones (The Clash) og marg­verð­laun­aða laga­höf­und­inum Cathy Dennis. Eftir sex ár í London flutti Gísli í Hafnir á Reykja­nesi ásamt Elízu konu sinni og byggði sér stúdíó þar sem hann hefur unnið með ýmsu íslensku tón­list­ar­fólki.

Þó að Gísli hafi um tíma sagt skilið við sól­ó­fer­il­inn hefur hann haldið áfram að gefa út lög við og við, eins og Going On (2014) og Paper Bag (2016), sem hafa notið vin­sælda á Íslandi, þó að fólk hafi kannski ekki áttað sig á því hver mað­ur­inn á bak­við þau væri. Þá voru nokkur lög eftir Gísla gefin út á sam­eig­in­legri plötu hans og norska lista­manns­ins William Hut í fyrra, af norska plötu­fyr­ir­tæk­inu Appollon Records. Þeir sem hafa hlýtt á nýju plöt­una segir að und­ar­legu text­arnir séu enn til staðar, en hljóð­heim­ur­inn og útsetn­ing­arnar hafi þró­ast mikið á þeim fimmtán árum frá því að plata hans How About That kom út. Það er því spurn­ing hvort kalla eigi þessa nýju plötu Gísla end­ur­komu eða nýja byrjun.

Hægt er að hlusta á Skeleton Crew á öllum helstu streym­isveitum og á Albumm.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar