Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Fátt leiðinlegra en þegar allir eru eins“

Fata­hönn­uð­ur­inn og Aust­firð­ing­ur­inn Stefán Svan Aðal­heið­ar­son er mik­ill fag­ur­keri og svo sann­ar­lega með putt­ann á púls­inum þegar kemur að tísku.

„Fátt leiðinlegra en þegar allir eru eins“
Helga Katrín Stef­áns­dóttir við drag­ster­inn Batman. Ingólfur Arn­ars­son er eig­andi þessa trylli­tækis. Vélin er 11

Stefán Svan er annar eig­andi Stef­áns­búðar/p3 sem hefur verið starf­andi síðan 2017 og er stað­sett í Ing­ólfs­stræti 2b.

„Við bjóðum upp á vöru sem okkur finnst ein­fald­lega frá­bær og það sem ekki fæst ann­ars staðar. Seljum vörur frá danska hönn­uð­inum Henrik Vibskov og frá Kathar­ine Hamnett sem er bresk. Erum svo með vel valda vin­tage-merkja­vöru á efri hæð­inni og blöndu af nýjum og skemmti­legum auka­hlutum, sokkum, sól­gler­augum og skarti,“ lýsir hann.

Eitt af því sem fylgir því að reka tísku­vöru­verslun er að fara reglu­lega á sýn­ingar erlendis. Stefán segir að það skemmti­leg­asta og mest gef­andi við þessar ferðir séu löngu dag­arnir sem fari í inn­kaup.

„Í þessum ferðum hittir maður skemmti­legt fólk sem maður hefur myndað tengsl við í gegnum inn­kaup og maður fær alltaf inn­blástur og nýjar hug­myndir. En þessar ferðir eru þó ekki eins „glamorous“ og sumir ímynda sér. Þetta snýst ekki bara um glæsi­legar tísku­sýn­ingar, kampa­vín og kav­íar, heldur er maður á hlaupum á milli funda og sýn­inga. Þetta er helj­ar­innar vinna.“

„Margt ungt fólk í dag er alveg frá­bært og hugsar mikið um hvaðan hlut­irnir koma og hvað verður um það sem við látum frá okkur.“

Hann segir að fata­brans­inn á Íslandi sé sömu­leiðis erf­iður og að mikil vinna fari í að halda úti fata­merki. „Það hafa nú oft áður verið fleiri íslenskir hönn­uðir starf­andi en akkúrat núna,“ segir hann. „Margt ungt fólk í dag er alveg frá­bært og hugsar mikið um hvaðan hlut­irnir koma og hvað verður um það sem við látum frá okkur. Ég kann líka vel við að það sé verið að blanda saman stílum alveg óhikað og að fólk prófi sig áfram, enda fátt leið­in­legra en þegar allir eru eins.“

Alltaf haft áhuga á tísku

Hefurðu alltaf verið áhuga­samur um tísku?

„Ég man ekki eftir mér öðru­vísi en að spá í hverju aðrir voru. Skóna og kjól­ana sem mamma átti en hún saum­aði mikið á okkur krakk­ana. Mamma hefur næmt auga fyrir öllu fal­legu og hún kenndi mér allt sem ég kann. Ég próf­aði ýmis­legt þar til ég dreif mig í fata­hönn­un­ar­nám og þá var ekki aftur snúið,“ svarar hann og bætir við að það sem heilli hann einna helst við tísku sé hvernig hún geti látið fólki líða.

„Mér finnst líka tískan hverju sinni heill­andi. Áhuga­vert hvernig hönn­uðir í dag túlka strauma og stefnur og gaman að fylgj­ast með hvernig for­tíðin hefur áhrif á tísk­una núna án þess að hún verði endi­lega „copy/paste“.“

Spurður hvað hann telji að verði heitt í sumar og hvað honum finn­ist vera út úr kú í tísku­brans­anum seg­ist Stefán vera lítið gef­inn fyrir „trend“. „Trend­miðuð fyr­ir­tæki eru að verða alveg „off“ í brans­anum og eins að huga ekki að mann­gæsku og sjálf­bærni. En það verður klár­lega heitt í sumar,“ segir hann og hlær.

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Brynjar Snær

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar