Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Ný kynslóð verðlaunahafa á Íslensku tónlistarverðlaununum

GDRN, Víkingur Heiðar, Auður, Karl Olgeirsson, Valdimar, Jónas Sig og JóiPé og Króli fengu flest verðlaun þegar Íslensku tónlistar­verðlaunin fyrir tónlistar­árið 2018 voru veitt í Hörpu í gærkvöldi. Jón Ásgeirsson fékk sérstök heiðurs­verðlaun á athöfninni og boðið var upp á fjöl­breytt skemmti­at­riði úr ýmsum áttum.

GDRN – Guðrún Ýr Eyfjörð var að gefa út nýtt lag
GDRN – Guðrún Ýr Eyfjörð var að gefa út nýtt lag

Fjöl­breytni og fagmennska var í fyrirrúmi á glæsilegri verðlauna­hátíð tónlistar­geirans þegar íslensku tónlistar­verðlaunin voru afhent í Silfur­bergi Hörpu í gærkvöldi. Það má með sanni segja að bjartar vonir síðustu ára séu tilbúnar að stimpla sig inn og gott betur því á sviði stóð ný kynslóð verðlauna­hafa á Íslensku tónlistar­verð­laununum sem átti stóran þátt í að setja sinn svip á kvöldið og gera það eftir­minnilegt. Undan­farið hefur mikið verið rætt um að kynslóðar­skipti séu að eiga sér stað í íslensku tónlistar­lífi og ekki verður undan því hlaupið að leiða hugann að því þegar litið er til verðlauna­hafa kvöldsins.

GDRN hlaut verð­laun fyrir mynd­band árs­ins við lagið, Lætur mig, en mynd­band­inu er leik­stýrt af Ágústi Elí Ásgeirs­syni

Tónlistar­konan GDRN, eða Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir eins og hún heitir fullu nafni hlaut fern verðlaun á hátíðinni og má segja að þetta hafi verið kvöldið hennar. Plata GDRN, Hvað ef, var valin poppplata ársins en hér er á ferðinni einstak­lega fram­bærileg frumraun þar sem allt smellur saman, frábærar laga­smíðar og áhuga­verðir textar.

Lagið, Lætur mig, sem hún syngur með Flóna og samið með ra:tio var valið popplag ársins og Guðrún Ýr var kosin söngkona ársins í flokki popp, rokk, raf- og hiphopptónlistar. Að endingu fékk GDRN verðlaun fyrir myndband ársins við lagið, Lætur mig, en mynd­bandinu er leikstýrt af Ágústi Elí Ásgeirs­syni. Frábær uppskera hjá vaxandi listakonu.

Auður hlaut flestar til­nefn­ingar í ár eða alls átta tals­ins.

Auðunn Lúthersson (Auður) er búinn að stimpla sig rækilega inn og átti hreint út sagt frábært ár í fyrra og uppskar eftir því á verðlauna­afhendingu kvöldsins. Plata hans, Afsakanir, var valin plata ársins í raftónlist auk þess sem Auður var valinn laga­höfundur ársins 2018 en platan þykir afar heil­steypt verk sem einkennist af sterkum laga­smíðum og nær óaðfinnanlegri upptöku­stjórn og hljóð­blöndun. Þess má geta að Auður hlaut flestar tilnefningar í ár eða alls átta talsins en hann hlaut jafnframt tvenn verðlaun á Íslensku tónlistar­verðlaunum árið 2017.

Í heildina voru um 37 verðlaun afhent á verðlauna­afhendingunni en þess fyrir utan voru verð­launin fyrir plötu­umslag ársins afhent sérstak­lega í þættinum Menningunni á RÚV kvöldið áður. Hér verður tæpt á öllu því helsta og neðar í tilkynningunni má finna heildar­upptalningu allra verðlauna­hafa.

JóaPé & Króli unnu plata árs­ins 2018 í Rapp og hipphopp.

Plata ársins 2018 í Rapp og hiphopp var að þessu sinni skífan, Afsakið hlé, með JóaPé & Króla. Þeir félagarnir áttu líka lag ársins í flokki rapp­tónlistar en þar var lagið, Í átt að tunglinu, sem bar af í ár að mati dómnefndar og ekki má betur sjá en að JóiPé & Króli eru komnir til að vera.

Í flokki sígildrar og samtíma­tónlistar var það Víkingur Heiðar Ólafsson sem fór heim með verðlauna­gripinn fyrir plötu ársins fyrir hljóð­ritun á hljómborðs­tónlist eftir Johann Sebastian Bach. Óhætt er að fullyrða að Víkingur geri tónlist þessa mikla meistara barokksins frábær skil en Víkingur Heiðar var einnig valinn tónlistar­flytjandi ársins úr röðum einstaklinga en á liðnu ári hélt hann frábæra útgáfu­tónleika til þess að fagna útgáfu plötu með tónlist Johann Sebastians Bach auk þess sem hann frum­flutti nýjan píanó­konsert Hauks Tómassonar.

Spectra eftir Önnu Þorvalds­dóttur var valið tónverk ársins í sígildri og samtíma­tónlist en hljóð­heimur þess og línur eru hvort tveggja í senn seiðandi en jafnframt ögrandi tónvefur að mati dómnefndar.

Strok­kvartettinn Siggi var valinn tónlistar­flytjandi ársins úr röðum hópa en kvartettinn hefur frá upphafi verið í fremstu röð kammer­hópa og unnið ötullega að nýsköpun í tónlistar­lífi hér á land. Söngvari ársins var valinn Oddur Arnþór Jónsson fyrir burðar­hlutverk í óperunni Brothers eftir Daníel Bjarnason þar sem hann túlkaði hlutverk Michael stórkost­lega í eftir­minnilegri uppfærslu, bæði hvað varðar leik og söng. Söngkona ársins er Hallveig Rúnars­dóttir sem blómstraði í verkefnum sínum á liðnu ári og hefur einstakt lag á að snerta hjörtu áheyrenda. Hún heillaði áhorf­endur meðal annars með söng sínum í Klassíkin okkar og skemmti ungum sem öldnum í titil­hlutverkinu í frum­flutningi á óperunni Gilitrutt eftir Hildigunni Rúnars­dóttur.

Óperan Brothers eftir Daníel Bjarnason í uppsetningu Íslensku Óperunnar hlaut Íslensku tónlistar­verðlaunin sem tónlistar­viðburður ársins í sígildri og samtíma­tónlist. Þessi uppfærsla á magn­þrunginni óperu þótti stórfengleg og vel skipuð frábærum lista­mönnum í hverju hlutverki, bæði innan sviðs og utan. Einsöngvarar ásamt og kór Íslensku óperunnar og Sinfóníu­hljómsveit Íslands undir stjórn tónskáldsins Daníels Bjarna­sonar sköpuðu eina eftir­minnilegustu óperu­sýningu sem sett hefur verið upp hér á landi. Tónlistar­viðburður ársins úr flokki hátíða eru Óperu­dagar í Reykjavík en með fádæma framtakssemi og sterkri listrænni sýn hafa stjórn­endur Óperudaga sýnt fram á nýja möguleika og hinar fjöl­breyttustu birtingar­myndir óperu­formsins, auk þess að fara nýstárlegar leiðir í að ná til og heilla áhorf­endur.

Verðlaun fyrir útgáfu ársins í flokki kvikmynda og leikhús­tónlistar voru veitt í þriðja sinn og komu í hlut Davíðs Þórs Jónssonar fyrir músíkina við kvik­myndina Kona fer í stríð. Í huga dómnefndar er tónlistin við mynd Benedikts Erlings­sonar algerlega órofa hluti af myndmáli myndarinnar.

Í flokki popp og rokktón­listar átti Valdimar rokk­plötu árs­ins og var einnig val­inn söngv­ari árs­ins.

Í flokki popp og rokk­tónlistar réð fjöl­breytnin ríkjum í ár en verðlaun skiptust á nokkrar hendur. Valdimar átti rokkplötu ársins, en platan Sitt sýnist hverjum, þykir afar sterkt verk þar sem að textarnir spila stóra rullu og hljóð­heimurinn er bæði stór og mikilfeng­legur. Valdimar Guðmundsson var valinn söngvari ársins fyrir frábæra frammistöðu sína Sitt sýnist hverjum en Valdimar býr yfir einstak­lega fallegri rödd með ótal blæbrigðum, flauels­mjúk og kraft­mikil í senn. Verð­launin fyrir rokklag ársins féllu í skaut Benny Crespo’s Gang fyrir lagið, Another Little Storm en lagið þykir að mati dómnefndar gríðar­lega vel samið, grípandi og vel flutt. Texta­höfundur ársins var Svavar Pétur Eysteinsson sem á nýjustu plötu Prins Póló heldur áfram að syngja skemmtilega texta af barnslegri einlægni, í bland við alvarleika og þráð­beinan sannleik enda oftast gott kaffi þegar Svavar Pétur á í hlut.

Laga­höfundur ársins var eins og fyrr hefur komið fram Auðunn Lúthersson (Auður) og söngkona ársins var valin Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir (GDRN).

Hatari hlaut Íslensku tón­list­ar­verð­launin sem tón­list­ar­flytj­andi árs­ins

Hljóm­sveitin Hatari hlaut Íslensku tónlistar­verðlaunin sem tónlistar­flytjandi ársins og kemur sú nafnbót eflaust engum á óvart enda er sveitin kraft­mikið listrænt atriði sem fær alla sem á horfa til þess að staldra við og hlusta (og jafnvel dansa smá líka).

Aldrei fór ég suður var valinn tónlistar­viðburður ársins 2018 en á síðustu 15 árum hefur hátíðin fest sig rækilega í sessi sem einn af stóru viðburðunum í íslensku tónlistar­lífi. Á Aldrei fór ég suður eiga allar tegundir íslenskrar dægur­tónlistar sér samastað og í fyrra var slegið aðsóknarmet en talið er að íbúa­fjöldi Ísafjarðar­bæjar hafi tvöfaldast á meðan á hátíð stóð.

Sólhvörf var valin þjóðlaga­plata ársins en þar tekur sveitin Umbra hlustandann í heillandi ferðalag þar sem tónlist tengd dimmum vetrar­dögum er í forgrunni. Virkilega vönduð plata þar sem lögin eiga það sameiginlegt að vera fram­úrskarandi útsett og flutt. Arnór Dan hlaut verðlaun fyrir lag ársins í opnum flokki, en í laginu Stone By Stone fetar Arnór Dan nýjar brautir þar sem fegurð og fram­úrstefna fá að njóta sín til fullnustu í firna­góðri tónsmíð.

Gyða Valtýs­dóttir átti plötur ársins í opnum flokk en á Evolution þykir hún sýna gríðar­lega sterk höfundar­einkenni á sinni fyrstu sólóplötu með frumsömdu efni. Þversögn einkennir plötuna en hún er kraft­mikil og sann­færandi, en um leið viðkvæmnisleg og blíð.

Veit voru verðlaun fyrir upptöku­stjórn og það var Ómar Guðjónsson sem hlaut þau fyrir heil­steypta hljóðmynd á plötu Jónas Sig, Milda hjartað. Hljóð­heimur Milda hjartans, skír­skotar að sumu leyti til flauels­mýktar söngva­skálda áttunda áratugarins en tekur líka til hráleika og kynngi­krafts, eins og heyra má í smellinum „Dansaðu.“ Heildar­hljómurinn er lífrænn og umlykjandi og heldur hlustandanum föngnum allt til enda segir í umsögn dómnefndar.

Milda hjartað hlaut fleiri verðlaun en á þriðjudaginn var tekið smá forskot á sæluna en þá voru veitt verðlaun fyrir plötu­umslag ársins í þættinum Menningunni á RÚV. Verð­launin fyrir plötu­umslag komu í hlut Ámunda Sigurðar­sonar hönnuðar og Jónatans Grétars­sonar ljós­myndara en það var umslagið fyrir plötu Jónasar Sig., Milda hjartað sem bar sigur úr bítum. Sterk ljósmynd af andliti höfundar undir­strikar titil plötunnar og efniviðinn vel. Jónas er í senn mildur í fasi og einbeittur, nákvæmlega eins og djúpir textarnir sem fjalla um styrk kærleikans í viðsjár­verðum samtímanum.

Karl Olgeirs­son stóð uppi með tvenn verð­laun, fyrir djas­s­plötu árs­ins og sem laga­höf­undur árs­ins í flokki djass og blús.

Í flokki djass og blús var það Karl Olgeirsson sem stóð uppi með tvenn verðlaun, fyrir djass­plötu ársins og sem laga­höfundur ársins. Plata Karls, Mitt bláa hjarta þykir með afbrigðum góð en hún inni­heldur fjórtán nýja djass­söngva. Bæði tónsmíðar og textar eru grípandi með hnyttnum skír­skotunum í íslenskan veruleika en fjöldi söngvara og hljóðfæra­leikara kemur fram á plötunni og er hún kærkomin viðbót í flóru íslenskra djass­söngva. Laga­smíðar plötunnar þykja sem fersk vindhviða inn í tónlistar­lífið, fjöl­breytt og aðgengileg án þess að gefa nokkurn afslátt af fagur­fræði eða innihaldi.

Bugða eftir Agnar Már Magnússon hlaut verðlaun sem tónverk ársins í djass og blús en þar hlykkjast raddir píanós og gítars hverjar um aðra í fallegu og áhuga­verðu samtali sem unun er að hlýða á. Tónlistar­flytjandi ársins úr hópi einstaklinga var Kjartan Valdemarsson, en Kjartan er einn virkasti og ástsælasti tónlistar­maður þjóðarinnar. Hann hefur leikið inn á fjöldann allan af hljóm­plötum, á tónleikum og unnið mikið í leikhúsi, útvarpi og sjónvarpi – ýmist sem tónskáld, útsetjari eða hljóðfæra­leikari. Tónlistar­flytjandi ársins úr flokki stærri sveita og hópa var Stórsveit Reykja­víkur en starfsemi hennar var með blómlegasta móti á síðasta ári. Hljóm­sveitin hélt marga fjöl­breytta og metnaðar­fulla tónleika þar sem lögð var áhersla á nýja tónlist, bæði innlenda sem erlenda.

Tónleikaraðir Jazzklúbbsins Múlans var kosinn tónlistar­viðburðir ársins 2018. Í fyrra var tuttugasta og fyrsta starfsár Múlans og var árið að vanda metnaðar­fullt og sýndi gott þversnið af því sem er að gerast í íslensku djass­senunni. Fjöldi tónleika voru 43 og fram komu margir af fremstu tónlistar­mönnum og -konum landsins ásamt nokkrum vel völdum erlendum gestum.

Björtustu vonirnar

Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, veitti þrenn verðlaun á hátíðinni sem komu í hlut bjartra vona í íslensku tónlistar­lífi.

Í flokki sígildrar og samtíma­tónlistar er það Björk Níels­dóttir sem er bjartasta vonin. Björk hefur verið að skapa sér sess sem einn af áhuga­verðustu tónlistar­mönnum okkar. Hún starfar sem tónskáld, hljóðfæra­leikari og einsöngvari og syngur jafnt þjóðlaga­tónlist, sígilda og samtíma­tónlist Hún starfar með kammer­hópunum Duplum dúó og Stirni emsemble hér heima auk þess að taka þátt í erlendu samstarfi. Einstak­lega fjölhæf og næm listakona sem verður afar spennandi að fylgjast með í fram­tíðinni.

Í flokki djass og blús er það Daníel Helgason gítar­leikari sem hlýtur þessa nafnbót í ár. Daníel Helgason er einstak­lega fjölhæfur gítar­leikari og kemur víða við í starfi sínu sem flytjandi lifandi tónlistar og í hljóð­verum landsins. Hann er einn fárra íslenskra gítar­leikara sem hefur tileinkað sér kúbanska tresgítarinn og kafað í stílbrögð tónlistar Suður Ameríku. Ásamt flytjanda­starfinu er Daníel afkasta­mikið tónskáld og meðlimur tríósins DÓH sem sendi frá sér plötuna DÓH á árinu.

Bjartasta vonin í poppi, rokki, rappi og raftónlist var tilnefnd af starfs­fólki Rásar 2 eins og undan­farin ár. Kosning fór fram á vef Rásar 2 en það er Bríet sem hlýtur nafn­bótina í ár, bjartasta vonin 2019. Bríet gaf út sína fyrstu smáskífu árið 2018 og vakti strax mikla athygli enda setur eiðandi rödd Bríetar, næmni hennar og góð túlkun hana í fremstu röð söng­kvenna. Það má búast við því að árið 2019 verði spennandi en von er á nýju efni auk þess sem hún er nú þegar farin að þreifa fyrir sér erlendis.

Jón Ásgeirs­son hlýtur heið­ursverð­laun Samtóns í ár. Jón Ásgeirs­son er einna þekkt­astur fyrir söng­tón­list sína; sönglög, kór­verk og óperur.

Heiðursverðlaun

Jón Ásgeirsson hlýtur heiðurs­verðlaun Samtóns í ár en það var mennta og menningar­mála­ráðherra Lilja Alfreðs­dóttir sem afhenti Jóni verð­launin og ekki annað sagt en að Jón Ásgeirsson sé verð­skuldaður heiðurs­verðlauna­hafi Íslensku tónlistar­verð­launanna.

Jón Ásgeirsson er fæddur á Ísafirði 1928 og varð því níræður á síðasta ári. Jón hefur á langri æfi verið afkasta­mikið tónskáld, kennari og höfundur kennslu­bóka í tónlist. Á meðal kammer­verka hans má nefna strengja­kvartetta, blásara­kvintetta, oktett fyrir blásara og Sjöstrengja­ljóð fyrir strengja­sveit. Konsertarnir eru sex fyrir ýmis hljóðfæri; síðast var flautu­konsert hans frum­fluttur á tónleikum Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands í janúar á þessu ári.

Jón Ásgeirsson er einna þekktastur fyrir söng­tónlist sína; sönglög, kórverk og óperur. Þá samdi Jón ballettinn Blindis­leik sem sýndur var í Þjóð­leikhúsinu árið 1979. Einsöngslög Jóns eru um 90 talsins. Hæst ber lög hans við ljóð Halldórs Laxness: Maístjörnuna, Hjá lygnri móðu og Vor hinsti dagur, þá má nefna söng­laga­flokkinn Svart­álfadans við ljóð Stefáns Harðar Gríms­sonar og hvert mannsbarn á Íslandi þekkir kórlag hans við vísur Vatnsenda-Rósu: Augun mín og augun þín. Á meðal stærri kórverka Jóns eru Tíminn og vatnið við ljóð Steins Steinarrs og Á þessari rímlausu skeggöld við samnefnt kvæði Jóhannesar úr Kötlum.

Jón kenndi um árabil við Kennara­skóla Íslands, síðar Kennara­háskóla Íslands. Hann var skipaður prófessor við skólann árið 1996, fyrstur allra til þess að gegna slíkri stöðu í list­greinum á Íslandi. Tólf árum síðar, árið 2008, var honum veitt doktors­nafnbót í heiðurs­skyni fyrir framlag hans til tónlistar­uppeldis í skólum landsins.

Saga Garðars­dóttir var kynnir kvöldsins í ár. Skemmtiatriði á Íslensku tónlistar­verð­laununum í ár komu úr ýmsum áttum en áttu það öll sameiginlegt að vera tilnefnd til Íslensku tónlistar­verð­launanna. Fram komu  á hátíðinni: Hórmónar, Víkingur Heiðar Ólafsson, GDRN, Auður, Karl Olgeirsson ásamt Ara Braga Kárasyni og Ragnheiði Gröndal, Ylja og að lokum var það hljóm­sveitin Valdimar sem stimplaði hátíðina út.

Alls voru veitt 38 verðlaun fyrir tónlistar­árið 2018 en það er Samtónn sem stendur að baki Íslensku tónlistar­verð­laununum. Að baki Samtón standa FÍH, FHF, STEF, SFS, FTT og Tónskálda­félag Íslands, Tilgangur Samtóns er að vinna að sameiginlegum hagsmunum og styrkja stöðu höfunda, flytjenda, fram­leiðenda og annarra rétthafa að tónlist. Samtónn kemur fram sameiginlega fyrir hönd íslenskra rétthafa og tónlistar­fólks.

Stjórn Íslensku tónlistar­verð­launanna skipa Margrét Eir Hönnu­dóttir, Kristján Freyr Halldórsson og Jóhann Ágúst Jóhannsson.

Frekari upplýsingar um Íslensku tónlistar­verðlaunin má finna á heimasíðu hátíðarinnar: www.iston.is

Hér má sjá alla verðlauna­hafana Íslensku tónlistar­verð­launanna fyrir árið 2018:

Opinn Flokkur / Þjóðlagatónlist / Kvikmynda- og leikhústónlist

Útgáfa ársins – Kvikmynda- og leikhústónlist

Davíð Þór Jónsson – Kona fer í stríð

Plata ársins – Opinn flokkur

Gyða Valtýs­dóttir – Evolution

Plata ársins – Þjóðlagatónist

Umbra – Sólhvörf

Lag/tónverk ársins opinn flokkur / Þjóðlagatónlist / Kvikmynda- og leikhústónlist

Lag ársins í opnum flokki

Arnór Dan, Stone by stone

Plötuumslag ársins

Jónas Sig. – Milda hjartað

Hönnun: Ámundi Sigurðsson

Ljós­myndir: Jónatan Grétarsson

Upptöku­stjórn ársins:

Ómar Guðjónsson fyrir Milda hjartað – Jónas Sig

Rokk, popp, raftónlist, rapp og hiphopp

Plata ársins – Popp:

GDRN – Hvað ef

Plata ársins – Rokk:

Valdimar – Sitt sýnist hverjum

Plata ársins – Rapp/Hiphopp:

JóiPé & Króli – Afsakið hlé

Plata ársins – Raftónlist:

Auður – Afsakanir

Lag ársins – Popp:

GDRN – Lætur mig

Lag ársins – Rokk:

Benny Crespo’s Gang – Another Little Storm

Lag ársins – Rapp/Hiphopp:

JóiPé & Króli – Í átt að tunglinu

Lagahöfundur ársins

Auðnn Lúthersson (Auður)

Textahöfundur ársins

Svavar Pétur Eysteinsson (Prins Póló)

Söngkona ársins

Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir (GDRN)

Söngvari ársins

Valdimar Guðmundsson

Tónlistarviðburður ársins

Aldrei fór ég suður

Tónlistarflytjandi ársins

Hatari

Bjartasta von Rásar 2 og Íslensku tónlistarverðlaunanna

Bríet

Tónlistarmyndband ársins 2018 – Albumm.is og Íslensku Tónlistarverðlaunin

GDRN – Lætur mig ft. Floni & ra:tio

Leik­stjóri: Ágúst Elí

Sígild og samtímatónlist

Plata ársins – Sígild og samtímatónlist

Johann Sebastian Bach – Víkingur Heiðar Ólafsson

Tónverk ársins – Sígild og samtímatónlist

Spectra – Anna Þorvalds

Tónlistarflytjandi ársins – einstaklingar : Sígild og samtímatónlist

Víkingur Heiðar Ólafsson

Tónlistarflytjandi ársins – hópar : Sígild og samtímatónlist

Strok­kvartettinn Siggi

Söngvari ársins – Sígild og samtíma­tónlist

Oddur Arnþór Jónsson

Söngkona ársins – Sígild og samtímatónlist

Hallveig Rúnars­dóttir

Tónlistarviðburður ársins – Tónleikar : Sígild og samtímatónlist

Brothers eftir Daníel Bjarnason – Íslenska Óperan, Sinfóníu­hljómsveit Íslands ásamt einsöngvurum og kór Íslensku óperunnar

Tónlistarhátíð ársins – hátíðir : Sígild og samtímatónlist

Óperu­dagar í Reykjavík

Bjartasta Vonin – Sígild og samtímatónlist

Björk Níels­dóttir

Djass og blús

Plata ársins – Djass og blús

Karl Olgeirsson – Mitt bláa hjarta

Tónverk ársins – Djass og blús

Bugða – Agnar Már Magnússon

Lagahöfundur ársins – Djass og blús

Karl Olgeirsson

Tónlistarflytjandi ársins – Einstaklingar : Djass og blús

Kjartan Valdemarsson

Tónlistarflytjandi ársins – Hópar : Djass og blús

Stórsveit Reykja­víkur

Tónlistarviðburðir ársins – Djass og blús

Tónleikaraðir Jazzklúbbsins Múlans

Bjartasta vonin – Djass og blús

Daníel Helgason

Heiðursverðlaun og sérstök verðlaun Samtóns og Íslensku tónlistarverðlaunanna

Heiðursverðlaun Samtóns

Jón Ásgeirsson

Myndir / Íslensku tónlistar­verðlaunin

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Menning

Ein besta rappsveit Íslands­sögunnar snýr aftur á svið

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027