Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Miðflokksmenn ætla ekki að fylgjast með eyðingu upptökunnar: „Bára hver?“

„Bára hver?” spurði Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins og einn Klaust­urs­þing­manna, er Mannlíf innti hann eftir hvort búast mætti við honum og jafn­vel þing­flokk Mið­flokks­ins á Bára­móta­brennu í kvöld. Á við­burð­inum verður upp­töku Báru Hall­dórs­dóttur frá Klaustri eytt með form­legum hætti við hátíð­lega athöfn.

Miðflokksmenn ætla ekki að fylgjast með eyðingu upptökunnar: „Bára hver?“

Bára­móta­brenna er við­burður sem fer fram á Gauknum klukkan 21.00 í kvöld. Þar ætlar Bára Hall­dórs­dóttir klaust­urs­upp­ljóstr­ari að eyða klaust­urs­upp­tökum af sím­anum sínum, í sam­ræmi við úrskurð Per­sónu­verndar. Úrskurður sem klaust­urs­þing­menn ósk­uðu eftir er þeir kvört­uðu til Per­sónu­verndar. Við­burð­ur­inn snýr því að form­gerð úrskurðar sem varðar mál­efni þeirra með beinum hætti.

„Lög­fræð­ing­ur­inn minn verður þarna með skörp augu á sím­anum og tekur eyð­ing­una upp” segir Bára Hall­dórs­dóttir, upp­ljóstr­ari í Klaust­urs­mál­inu, sem boðað hefur til Bára­móta­brennu í til­efni úrskurðar Per­sónu­verndar um að hún hafi brotið per­sónu­vernd­ar­lög í klaust­urs­mál­inu. „Mynd­bandið verður svo sent til Per­sónu­verndar.”

Þrátt fyrir að dag­skrá við­burð­ar­ins snúi að úrskurð Per­sónu­verndar í kjöl­far kæru þing­mann­anna er lít­inn áhuga að greina hjá þeim Mið­flokks­þing­mönnum sem rætt var við. „Veit ekk­ert hvað þú ert að tala um þannig að ég segi bara nei” sagði Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins. Gunnar hafði ekki áhuga á að heyra frek­ari útskýr­ingar á Bára­móta­brenn­unni.

Sjá einnig: Klaust­urs­upp­tökur á Báru­brennu að skipan Per­sónu­verndar: „Ég hef svosem ekk­ert við upp­tök­urnar að gera.”

Orðið Báru­brenna flækt­ist fyrir Karl Gauta sem hélt fyrst að um ára­móta­brennu væri að ræða. Þá virt­ist hann hissa á spurn­ing­unni og end­ur­tók spurn­ing­una; „Ætla ég að mæta?” og bætti við „Ég hef ekki hug­mynd um þetta. Hef ekki hug­mynd um þetta.” Karl Gauti sagð­ist þá ekki ætla mæta, hann hafi ekk­ert vitað af þessu.

Ólafur sagð­ist heldur ekki eiga von á því að mæta; „Maður er nú upp­tek­inn í öðru eins og alþjóð veit,” sagði hann við Mannlíf.

Bára varð lands­fræg undir lok síð­asta árs eftir að hafa orðið vitni af fjög­urra klukku­stunda ölæði og grobbi þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins. Miðviku­dags­kvöldið 28. nóv­ember 2018 birtu Stund­in, DV og Kvenna­blaðið frétt­ir sem unn­ar eru upp úr hljóð­upp­töku af sam­tali fjög­urra þing­mann­anna Mið­flokks­ins; Sig­mund­ar Davíðs Guðlaugs­son­ar, Gunn­ars Braga Sveins­son­ar, Bergþórs Ólason­ar og Önnu Kol­brún­ar Árna­dótt­ur, og tveggja þing­manna Flokks fólks­ins; Karls Gauta Hjalta­son­ar og Ólafs Ísleifs­son­ar. Karl Gauta og Ólaf var vikið úr Flokki fólks­ins. Báðir hafa nú gengið í Mið­flokk­inn. Stjórn Per­sónu­verndar komst að þeirri nið­ur­stöðu í lok maí að Bára Hall­dórs­dóttir hefði brotið per­sónu­vernd­ar­lög þegar hún tók upp sam­talið í Klaustri í nóv­em­ber á síð­asta ári. Henni var ekki gert að greiða sekt en skal eyða upp­tök­unni

Ekki náð­ist í Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, Bergþór Ólasson eða Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ