Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sonur Ragnars Lýðssonar: „Frásagnir Vals Lýðssonar af kvöldinu örlagaríka eru orðnar ansi margar“

„Sann­leik­anum hafa ekki verið gerð næg skil,“ skrifar Ingi R. Ragn­ars­son, sonur Ragnars Lýðs­sonar sem lést af völdum bróður síns á bæn­um Gýgjar­hóli II í fyrra.

Sonur Ragnars Lýðssonar: „Frásagnir Vals Lýðssonar af kvöldinu örlagaríka eru orðnar ansi margar“
Ingi R. Ragn­ars­son

Þann 24. sept­em­ber var Valur Lýðsson dæmdur í sjö ára fang­elsi fyrir að verða valdur að dauða bróður síns, Ragnars Lýðs­sonar, þann 31. mars 2018, á bæn­um Gýgjar­hóli II í Blá­skóga­byggð. Rík­is­sak­sókn­ari áfrýj­aði þeim dómi og hófst aðal­með­ferð í máinu Lands­rétti í gær.

Ingi R. Ragn­ars­son, sonur Ragnars Lýðs­sonar, tjáir sig um málið í langri færslu á Facebook. Færsluna skrifar hann undir yfir­skrift­inni „Morðið að Gýgj­ar­hóli – Sann­leik­ur­inn“.

Svona hefst færsla Inga: „Frá­sagnir Vals Lýðs­sonar af kvöld­inu örlaga­ríka eru orðnar ansi margar og mis skraut­legar. Upp­haf­lega ætl­aði hann að halda sig við að hann hefði komið að föður mínum um morg­un­inn og að hann myndi óljóst eftir átökum. Hann minnti þó að faðir minn hefði átt upp­tökin og að þeir hefðu skilið sáttir um nótt­ina. Hann hefði svo komið að honum látnum um morg­un­inn“.

Ingi skrifar þá að blóð­ferla­rann­sókn á vett­vangi og krufn­ing á líki föður hans hafi leitt í ljós að fátt pass­aði við frá­sögn Vals.

„Lög­reglan áætl­aði mjög fljót­lega að föður mínum hefði verið komið að óvörum, hann sleg­inn mjög þungu höggi og strax fallið niður á fjóra fætur. Það getur lög­reglan ályktað út frá blóð­slettum á vett­vangi, meðal ann­ars á þvotta­vél. Þar traðkar Valur á pabba sem liggur á fjórum fótum, þar til pabbi missir hend­urnar undan sér og fellur í gólfið. Blóð­slettur sem spýtt­ust út um munn­vik föður míns og áverkar á and­liti sýna að Valur traðkar á höfði föður míns eftir að hann fellur. Höggin eru það mörg og það þung að and­lit föður míns var mjög illa farið,“ skrifar hann meðal ann­ars og vísar svo í nið­ur­söður rann­sóknar rétt­ar­meina­fræð­ingssins Sebast­i­ans Kunz.

„Rétt­ar­meina­fræð­ingur stað­festi að það voru engir áverkar, mar eða nokkur skap­aður hlutur á föður mínum sem benti til þess að hann hefði slegið til Vals eða varið sig. Andlit föður míns var blátt og afmyndað. Pabbi liggur þvert í gegnum and­dyrið á Gýgj­ar­hóli og lög­regl­una grun­aði strax í upp­hafi að hann hefði verið sleg­inn með bar­efli í upp­hafi atlög­unnar. Gerð var ítar­leg leit en henni var síðan hætt á þeim for­sendum að rétt­ar­meina­fræð­ingur taldi mögu­legt að hægt væri að valda áverkum föður míns með berum höndum og fótum. Þá er árásin talin svo ofboðs­lega heift­úðug að lög­reglan taldi bar­efli hvort sem er ekki hafa mikið að segja við máls­með­ferð.“

Ingi skrifar svo að þrátt fyrir að Valur hafi breytt frá­sögn sinni nokkrum sinnum þá hefur hún aldrei passað við það sem sönn­un­ar­gögn hafa leitt í ljós. „Þrátt fyrir enda­lausar hag­ræð­ingar Vals á frá­sögn sinni þessa nótt, er hún ekki enn farin að ríma við sönn­un­ar­gögnin á vett­vangi og krufn­ingu föður míns.“

Í lok færsl­unnar kemur þá fram að Inga hafi þótt mik­il­vægt að skrifa og birta grein um málið.

„Fólk hefur einnig ekki með­tekið að um væri að ræða til­hæfu­lausa árás á mann sem var á förum þessa nótt.“

„Fólk hefur keypt sögu­sagnir af atburðum þess­arar nætur og hefur ekki ennþá með­tekið að Valur sé fær um svona ofbeld­is­verk. Fólk hefur einnig ekki með­tekið að um væri að ræða til­hæfu­lausa árás á mann sem var á förum þessa nótt. Eins ótrú­legt og það kann að hljóma þá er sið­blindur ein­stak­lingur und­an­tekn­ingin á því að sjaldan veldur einn þá tveir deila. Þegar annar ein­stak­ling­ur­inn er sið­laus þá þurfa tveggja hliða deilur ekki að koma til. Heið­ar­legri og rétt­sýnni menn en pabbi eru vand­fundnir, þó hann hafi haft nóg af göllum eins og hver annar. Sann­leik­anum hafa ekki verið gerð næg skil opin­ber­lega og þrátt fyrir allt sem á undan er gengið þá get ég ekki látið síð­ustu orðin um föður minn vera nafn­lausan róg­burð frá Val Lýðssyni og fylgjum hans og því sett­ist ég við skriftir.“

Færslu Inga má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ