Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Skemmtilega flippað og litríkt heimili

Heimili Áslaugar Snorra­dóttur ljós­mynd­ara á efstu hæð húss­ins sem hún fædd­ist í á Dalbraut end­ur­speglar vel lit­ríku, hressu týpuna sem hún sjálf er.

Skemmtilega flippað og litríkt heimili
||Sesselja Ómars­dóttir

Við kíktum í heim­sókn til Áslaugar og fengum hana til að sýna okkur nokkra hluti sem eru henni kærir.

Áslaug Snorra­dóttir við hvítt tré sem hefur staðið í stof­unni síðan árið 2007 (sjá mynd að ofan). Þetta tré og fleiri voru borð­skreyt­ingar á góð­gerða­sam­komu Fiðr­ilda­há­tíðar UNIFEM. Heiða Magn­ús­dóttir hann­aði og lét útfæra þau og hvert tré var til­einkað gyðju. Þar sá Áslaug um mat­seð­il­inn. For­snakkið var til að mynda gull á súkkulaði og kampa­víns­glas, svo egg á engi og alls konar réttir sem Dóra Svav­ars­dóttir kokkur útfærði ásamt liði snilld­ar­kokka. Áslaug fékk að eiga þetta tré og þykir mjög vænt um það og minn­ing­una sem því teng­ist.

Bláa borðið í stóru borð­stofu­stof­unni. Stór lands­lags­ljós­mynd eftir Pál Stef­áns­son og minni ljós­mynd sem Áslaug tók af sund­konu með flot­hettu en sjálf á Áslaug tvær slíkar og seg­ist elska flot­hettu­sund sem sé slak­andi og end­ur­nær­andi. Dýra­haus­arnir tveir koma frá Mumbai, rétt við hverfið þar sem bíó­myndin Slumdog Milli­onaire var tekin upp.

Áslaugu þykir sér­lega vænt um gylltu stjörnu­laga spritt­kerta­stjak­ana sem afi hennar bjó til fyrir brúð­kaupið hennar sem var haldið þann 28. des­em­ber árið 1991. Stjörnu­bjartur næt­ur­him­inn var þemað í brúð­kaup­inu ásamt flauels­rauðum lit.

Áslaug og Helga Björns­son tísku­hönn­uður eru að kokka saman hug­myndir þar sem þær hyggj­ast leiða saman hesta sína og sköp­un­ar­kraft í verk­efni sem er enn háleyni­legt en við munum von­andi sjá verða að veru­leika fyrr en síðar. Á bláa sóf­anum eru skissur þeirra beggja sem er grunn­ur­inn að þessu sam­starfi.

Blóma­myndin er eftir ömmu Áslaugar sem er henni kær.

Áslaug seg­ist hrein­lega elska bækur og tíma­rit og nóg er af hvoru tveggja á heim­ili hennar. Hún hefur myndað fyrir margar mat­reiðslu- og ferða­bækur um Ísland og til að mynda komu út þrjár bækur í Þýska­landi nýlega sem Áslaug mynd­aði fyrir. Við getum kallað þetta bóka­alt­arið hennar Áslaugar þar sem hring­laga fimm arma kerta­stjaki með hang­andi jólakúlu, glös og skraut­munir poppa upp stemn­ing­una.

Að sjálf­sögðu heldur ljós­mynd­ar­inn líka upp á ljós­myndir. Þessar prent­aði hún nýverið út og hengdi upp enda lit­fagrar með ein­dæmum og algjört augna­konfekt eins og svo ótal margt á heim­ili Áslaugar.

Babúskur, spari­stell, lilla­blár dúkur frá Udaipur á Indlandi en þar er enda­laus feg­urð og alls­konar fín­erí. Og upp­skrifta­bókin hennar Ölbu ömmu­stelpu sem er að verða fimm ára í sumar. Alba býr í næsta húsi við Áslaugu ömmu og þær eru miklar vin­konur og bralla ýmis­legt saman eins og þessa litlu upp­skrifta­bók sem hún föndraði. Bóka- og mat­ar­ást ömm­unar hefur ef til vill kveikt áhuga litlu ömmu­stelpunnar á að búa til upp­skrifta­bók?

Hjarta­laga mósaíkspeg­ill sem Kolla dóttir Áslaugar gerði. Faðir hennar gerði teikn­ing­una 1970 en þá var hann fluttur til Stokk­hólms í lækna­nám og Áslaug og mamma hennar fluttu þangað stuttu seinna. Þessi mynd end­ur­speglar fjöl­þjóða­stemn­ing­una á stúd­enta­garð­inum. Ilm­kertið er frá Ralph Laurent og ilm­ur­inn er ómót­stæði­legur að mati Áslaugar sem seg­ist dekra við sig með góðum ilm­kertum og ferskum blómum.

Rauða borðið þar sem fal­legur stafli af mat­reiðslu­bók­inni Náttúran sér um sína stendur. Þessi bók er í miklu upp­á­haldi enda fylgdi gerð hennar skemmti­legur tími í Færeyjum, Flatey, Vatnsdal og á Snæ­fells­nesi þar sem Áslaug var með kokk­inum Rúnari Mar­vins­syni og tók myndir og fang­aði mat­ar­stemn­ing­una fyrir bók­ina. Bókin kom út árið 2008. Gyllti fjög­urra hæða köku­disk­ur­inn kemur frá Taílandi þar sem Áslaug seg­ist hafa farið á flug í gling­ur­versl­unum.

Flottar ljós­myndir eru í miklu upp­á­haldi hjá ljós­mynd­ar­anum sjálfum og þarna standa þrjár myndir eftir ljós­mynd­ara sem Áslaug heldur mikið upp á.

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni