Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Stakk af í kjölfar slyss

Upp er komin milli­ríkja­deila milli Bret­lands og Banda­ríkj­anna eftir að eig­in­kona banda­rísks diplómats varð valdur að dauða 19 ára Breta í ágúst sl. og flúði land í kjöl­farið. Fjöl­skylda hans krefst rétt­lætis.

Stakk af í kjölfar slyss
|

Banda­ríkja­menn hafa neitað að aflétta diplómat­ískri frið­helgi Anne Sacoolas, sem er talin hafa orðið 19 ára Breta að bana í ágúst sl. Harry Dunn var á bif­hjóli sínu þegar Sacoolas ók á hann í nágrenni Chroughton-her­stöðv­ar­innar í Nort­hampton-skíri. Dunn lést af sárum sínum en Sacoolas flúði land í kjöl­farið, þvert á það sem hún sagð­ist myndu gera þegar hún var yfir­heyrð af lög­reglu. Ráðamenn í Bret­landi og Banda­ríkj­unum deila nú um málið en fjöl­skylda Dunn hefur sagst ekki munu una sér hvíldar fyrir en rétt­lætið muni sigra.

Harry Dunn.

Ljós­myndir sem náð­ust af minnis­p­unktum Donald Trump Banda­ríkja­for­seta á mið­viku­dag sýna að honum var ráð­lagt að svara því á blaða­manna­fundi að Sacoolas myndi ekki snúa aftur til Bret­lands til að aðstoða við rann­sókn máls­ins. Í punkt­unum var m.a. vísað til sam­tals utan­rík­is­ráð­herra ríkj­anna, þar sem sömu svör voru gefin. Þá stóð einnig á minn­is­blað­inu að Sacoolas myndi sjálf ákveða hvort hún vildi ræða við bresk yfir­völd. Trump studd­ist hins vegar ekki við ráð­legg­ingar und­ir­manna sinna, heldur spann eigið svar.

„Þetta er mjög flókið mál, eins og þið vitið,“ sagði Trump á mið­viku­dag. „Ungur maður dó. Mann­eskjan sem ók bif­reið­inni er með diplómat­íska frið­helgi. Við ætlum að ræða við hana bráð­lega og sjá hvort við getum gert eitt­hvað. Þetta var slys … Við ætlum að tala við hana og sjá hvað við getum gert til að ná sáttum.“ For­set­inn sagði einnig að það gerð­ist stundum að Banda­ríkja­menn keyrðu á öfugum veg­ar­helm­ingi í Bret­landi en það er einmitt það sem lög­regla telur hafa gerst.

Þegar málið kom fyrst upp lá ekki fyrir hvort Sacoolas nyti sann­ar­lega diplómat­ískrar frið­helgi en eig­in­maður hennar starfar sem sam­skipta­full­trúi fyrir banda­ríska her­inn. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið breska ját­aði hins vegar síðar að Sacoolas nyti frið­helgi og að þar­lend stjórn­völd gætu lítið afhafst ef Banda­ríkja­menn neit­uðu að aflétta henni. Beiðni þar að lút­andi hefur verið borin fram af lög­reglu, utan­rík­is­ráð­herr­anum Dominic Raab og for­sæt­is­ráð­herr­anum Boris Johnson.

Sjónarspil af hálfu stjórnvalda

Johnson sagð­ist sjálfur myndu ræða við Donald Trump ef Banda­ríkja­menn sæju ekki að sér. „Ég held að hugur allra sé hjá fjöl­skyldu Harry Dunn og við vottum þeim samúð vegna þessa hörmu­lega missis,“ sagði Johnson þegar hann var spurður um málið í vik­unni. „Ég verð að svara ykkur hreint út; ég tel ekki rétt að nota diplómat­íska frið­helgi í þessum til­gangi.“

„Ég verð að svara ykkur hreint út; ég tel ekki rétt að nota diplómatíska friðhelgi í þessum tilgangi.“

For­eldrar Dunn áttu fund með Raab í gær en eftir fund­inn sagði móðir hans, Charlotte Charles, að stjórn­völd í Bret­landi og vestan hafs hefðu brugð­ist fjöl­skyld­unni. „Ég skil ekki af hverju okkur var boðið að hitta Dominic Raab. Við erum ekk­ert lengra komin en við vorum á sama tíma í síð­ustu viku. Hluta af mér finnst eins og þetta sé bara sjón­ar­spil af hálfu breskra stjórn­valda til að sýn­ast vera að hjálpa okkur. En þrátt fyrir að hann sé að eiga við okkur sam­tal þá höfum við ekki fengið nein svör. Við erum örg yfir því að hafa varið hálf­tíma eða meira með honum en vera engu nær.“

Charles biðl­aði til Sacoolas í gegnum fjöl­miðla um að sýna mannúð og koma til baka. Hún sagði við­brögð Donald Trump ógeð­felld. Tim Dunn sagði það valda gríð­ar­legum von­brigðum að menn teldu allt í lagi að kom­ast upp með það að verða ungum dreng að bana.

Sacoolas, sem er 42 ára og hafði dvalið í Bret­landi í þrjár vikur þegar slysið átti sér stað, á yfir höfði sér fang­els­is­dóm ef hún snýr aftur.

Umdeild vernd

Diplómat­ískri frið­helgi er sárasjaldan aflétt en það gerð­ist m.a. árið 1997, þegar Gueorgui Makharadze, sendi­er­ind­reki frá Georgíu, varð valdur að árekstri í Washington DC. Makharadze var ölv­aður og 16 ára stúlka lést, auk þess sem fjórir slös­uð­ust. Stjórn­völd í Georgíu héldu í fyrstu vernd­ar­hendi yfir sendi­er­ind­rek­anum, sem var sá næst­hátt­sett­asti í sendi­ráð­inu, en létu að lokum undan þrýst­ingi og heim­il­uðu banda­rískum yfir­völdum að sækja hann til saka. Makharadze var dæmdur í 7-21 árs fang­elsi og afplán­aði stærstan hluta dóms­ins í Georgíu.

Í fyrra neit­uðu banda­rísk stjórn­völd hins vegar að aflétta frið­helgi ofurstans Joseph Hall, þegar hann var sak­aður um að hafa orðið manni á mót­or­hjóli að bana í Pakistan eftir að hafa ekið á rauðu ljósi. Hall yfir­gaf Pakistan og Banda­ríkja­menn neit­uðu að senda hann til baka.

Stjórn­völd í Kólumbíu brugð­ust ólíkt við þegar Jairo Soto-Mendoza var sak­aður um að hafa myrt mann sem rændi son hans í Lundúnum árið 2002. Soto-Mendoza bar fyrir sig diplómat­ískri frið­helgi en Kólumbía aflétti henni að beiðni breskra stjórn­valda. Soto-Mendoza var sýkn­aður.

Eitt þeirra mála er vörð­uðu diplómat­íska frið­helgi og vöktu hvað mesta athygli var þegar lög­reglu­konan Yvonne Fletcher var skotin til bana fyrir utan sendi­ráð Líbíu í Lundúnum árið 1984. Mótmæli stóðu yfir en skotið sem hæfði Fletcher kom úr glugga á fyrstu hæð sendi­ráðs­ins. Eftir 11 daga umsátur sáu bresk stjórn­völd til þess að fjöldi starfs­manna sendi­ráðs­ins var sendur úr landi. Vegna lag­anna um diplómat­íska frið­helgi hafði lög­regla hins vegar ekki heim­ild til að leita á starfs­fólk­inu eða í eigum þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi