Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

New York bannar foie gras

Veit­inga­menn og sæl­kerar harma nýja reglu­gerð í New York sem bannar sölu á foie gras, ftaðri lifur úr önd eða gæs, sem þykir mikið lost­æti. Dýra­vernd­un­ar­sinnar fagna hins vegar ákaft enda segja þeir fram­leiðslu­að­ferð­irnar hreint dýra­níð.

New York bannar foie gras

Borg­ar­ráð New York sam­þykkti á mið­viku­dag að banna sölu á foie gras. Mikill meiri­hluti var fylgj­andi bann­inu, atkvæði féllu 42 gegn 6, en málið hefur verið til umræðu í þó nokkur ár. „New York er Mekka mat­ar­gerðar í heim­inum. Hvernig er það mögu­legt að það verði ekki hægt að fá foie gras í New York?“ hafði New York Times eftir Marco Moreira, eig­anda og yfir­kokki Tocque – ville. „Hvað verður það næst? Ekkert kálfa­kjöt? Engir sveppir?“ Moreira er ekki einn um að mót­mæla bann­inu en mörgum kol­legum hans og ekki síður banda­rískum foie gras-fram­leið­endum þykir hart að sér sótt. Kokk­arnir benda á að um sé að ræða lykil hrá­efni á fínum veit­inga­stöðum en fram­leið­end­urnir ótt­ast um rekst­ar­grund­völl fyr­ir­tækja sinna. Tveir stærstu fram­leið­endur foie gras í New York-ríki, Hudson Vall0ey Foie Gras og La Belle Farm, eru með um 400 manns í vinnu og selja um 30% fram­leiðslu sinnar til veit­inga­staða og smá­sölu­að­ila í New York-borg. Dýra­vernd­un­ar­sinnar eru hins vegar hæstá­nægðir með nið­ur­stöð­una, enda vilja þeir meina að fram­leiðsla foie gras sé ekk­ert annað en dýra­níð. Foie gras stend – ur fyrir „fituð lifur“ en um er að ræða lifr­ina í öndum og gæsum sem hafa verið offóðr­aðar af korn­blöndu, sem neydd er ofan í þær með röri. Hefð­bundin andalifur er dökk­rauð á lit og vegur um 90 grömm en fituð lifur er hvít á lit og vegur um 800 grömm. Dýra­vernd­un­ar­sinnar hafa þannig ekki ein­göngu áhyggjur af þeim aðferðum sem er beitt við fóðr­un­ina, heldur segja þeir fugl­ana hrein­lega ekki bera lifr­ina og stærð hennar geri þeim að auki erfitt að anda.

„Hvað verður það næst? Ekkert kálfa­kjöt? Engir sveppir?“

Hefð­bundin andalifur er dökk­rauð á lit og vegur um 90 grömm en fituð lifur er hvít á lit og vegur um 800 grömm.

Hluti af stærri dýravelferðarpakka

Fram­leiðsla foie gras hefur verið bönnuð í Kali­forníu um nokk­urt skeið og hún er sömu­leiðis bönnuð í mörgum Evr­ópu­ríkjum. Í New York mun sala á foie gras varða 2.000 dala sekt en gagn­rýnendur segja óljóst hvernig borg­ar­yf­ir­völd hyggj­ast fylgja bann­inu eftir. Benda þeir m.a. á að hægt sé að fá foie gras sem er fram­leitt með mann­úð­legri aðferðum en sam­kvæmt bann­inu mun það standa á veit­inga­hús­unum og smá­söl­unum að sanna að sú vara sem þeir hafa á boðstólnum sé fram­leidd á mann­úð­legan hátt. „Kali­fornía og New York voru okkar stærstu mark­aðir, þannig að þetta er mikið áfall,“ segir Sergio Saravia, stofn­andi La Belle. Hann segir tekjur fyr­ir­tæk­is­ins hafa dreg­ist saman um 50 þús­und dali á viku eftir að foie gras var bannað í Kali­forníu. „Það verður erfitt að halda rekstr­inum gang­andi.“ Borg­ar­ráðs­menn segja fyr­ir­tækin hins vegar fram­leiða földa ann­arra afurða og að þau ættu ekki að þurfa að reiða sig á hinar grimmi­legu aðferðir. Bannið við sölu á foie gras var hluti af stærri reglu­gerð­ar­pakka gegn dýra­níði. Í honum fel­ast m.a. nýjar reglur um bann við „akstri“ hest­vagna í of heitu og röku veðri og bann við því að fanga og flytja dúfur úr borg­inni, en utan­bæjar hafa þær verið not­aðar sem skot­mörk við skotæf­ingar.

PETA lýsir grimmilegum aðferðum og aðstæðum

Á heima­síðu dýra­vernd­un­ar­sam­tak­anna PETA segir að foie gras sé fram­leitt með því að dæla einu til tveimur kílóum af korn- og ftu­blöndu ofan í fugl­ana á hverjum degi.

Margir þeirra eigi erftt með að standa þar sem lifrin bólgnar út í kvið­ar­hol­inu og þá eigi þeir til að reyta fjaðrir sínar og ráð­ast hver á annan vegna streitu. PETA segir offóðr­un­ina einnig valda skemmdum á vél­ind­anu, nið­ur­gangi, lifr­ar­bilun, sárum og brotum. Þá drep­ist fuglar einnig þegar fóðrið fer ofan í lungun eða þeir kafna í eigin ælu. PETA bendir einnig á að þar sem foie gras sé aðeins fram­leitt úr karl­kyns­fuglum sé kven­fugl­unum kastað lif­andi í hakka­vél og seldir sem katta­fóður. Um sé að ræða 40 milljón unga í Frakk­landi, þaðan sem foie gras á rætur sínar að rekja. „Rannsókn PETA á Hudson Valley Foie Gras í New York leiddi í ljós að hverjum starfs­manni var ætlað að þvinga fóður ofan í 500 fugla þrisvar sinnum á dag. Hraðinn varð til þess að þeir fóru oft hörðum höndum um fugl­ana, sem leiddi til meiðsla og þján­inga. Vegna þess hversu margar endur drápust af því að líf­færin gáfu sig vegna offóðr­un­ar­innar, fengu þeir starfs­menn sem drápu færri en 50 fugla á mán­uði bónus,“ segir á heima­síðu PETA. Þá segir að stærsti fram­leið­andi foie gras í heim­inum, Rougié, haf orðið upp­vís að því að halda önd­unum í afar þröngum búrum, með höf­uðið og háls­inn stand­andi út úr búr­unum til að gera fóðr­un­ina auð­veld­ari. Fugl­arnir haf lítið getað annað en að standa upp, leggj­ast niður og hreyfa haus­inn. „Þeir geta hvorki snúið sér við né lyft væng.“

Allt í kæfu milli Frakka og Þjóðverja

Árið 2011 komu upp diplómat­ískar erjur milli Frakka og Þjóð­verja þegar skipu­leggj­endur Anuga-mat­ar­há­tíð­ar­innar í Cologne ákváðu að banna foie gras vegna þrýst­ings frá dýra­vernd­ar­sinnum. Fram­leiðsla foie gras er bönnuð í Þýska­landi

Okkur til mik­illar undr­unar hafa skipu­leggj­endur hátíð­ar­innar til­kynnt okkur að héðan í frá getum við ekki boðið upp á foie gras,“ harm­aði Alain Labarthe, for­seti sam­tak­anna Vive le foie gras!. Land­bún­að­ar­ráð­herra Frakk­lands, Bruno le Maire, skrif­aði kollega sínum í Þýska­landi, Ilse Aigner, og bað hana vin­sam­leg­ast um að afétta bann­inu. Ellegar myndu hann og aðrir þýskir ráða­menn snið­ganga opn­un­ar­há­tíð­ina. Le Maire sagði franska fram­leið­endur fara að öllum evr­ópskum reglu­gerðum um vel­ferð dýra en Aigner sagð­ist ekki hafa vald til þess að snúa ákvörðun skipu­leggj­enda hátíð­ar­innar.

Málið varð til þess að bæði stuðn­ings­menn og gagn­rýnendur banns­ins létu hátt í sér heyra. Meðal þeirra sem voru fylgj­andi bann­inu var leik­konan og dýra­vernd­ar­sinn­inn Brigitte Bardot sem hvatti aðstand­endur Anuga-hátíð­ar­innar til að láta ekki undan þrýst­ingi. Dýra­vernd­ar­sinnar héldu því m.a. fram að aðeins 15% franskra fram – leið­enda hefðu lagað starf­semi sína að nýrri Evr­ópu­reglu­gerð sem gekk í gildi 2011, sem bann­aði að fuglum væri haldið einum í svo litlum búrum að þeir gætu ekki breitt úr vængj­unum. „Þetta er ótrú­legt. Þetta er eins og að banna þýskar pylsur í Frakk­landi,“ sagði Alain Fauconnier, þing­maður sós­í­alista, í erindi til sendi­herra Þýska­lands í París

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco