Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Gróft kynlíf sem fór illa“

Mál manns sem var dæmdur fyrir að hafa myrt unga breska ferða­konu í Nýja-Sjálandi hefur vakið upp umræðu um „gróft kyn­líf“ sem málsvörn. Gagn­rýnendur segja afsök­un­ina nýj­ustu útgáfu þess að kenna konum um þegar þær eru beittar ofbeldi en þeim málum fer fjölg­andi þar sem henni er beitt í dóm­sal.

„Gróft kynlíf sem fór illa“

Breskir lög­menn og kven­rétt­inda­sam­tök hafa kallað eftir laga­breyt­ingu til að koma í veg fyrir að ein­stak­lingar sem hafa verið ásak­aðir um morð geti notað það sem vörn að dauða fórn­ar­lambs­ins hafi borið að þegar gróft kyn­líf fór illa. Sér­fræð­ingar segja fjölda slíkra málsvarna hafa tífald­ast síð­ustu ára­tugi en sam­kvæmt sam­tök­unum We Can’t Consent to This lét­ust 30 konur og stúlkur á síð­ustu 10 árum við það sem ger­and­inn vildi meina að hefði verið gróft kyn­líf með sam­þykki beggja. Í 17 málum var sak­born­ing­ur­inn dæmdur fyrir morð, í níu málum var nið­ur­staðan mann­dráp af gáleysi en sýknað var í tveimur málum.

Árið 1996 komu upp tvö mál þar sem dauði og áverkar kvenna voru sagðir afleið­ing grófs kyn­lífs en árið 2016 hafði fjöld­inn náð 20. Vanda­málið er ekki bundið við Bretland en komst aftur í hámæli eftir að bresk stúlka var myrt á Nýja-Sjálandi í fyrra en lög­maður morð­ingj­ans vildi meina að um slys hefði verið að ræða, við ástundun „hefð­bund­innar“ kyn­lífsiðk­unar. Sak­born­ing­ur­inn í mál­inu var fund­inn sekur í síð­ustu viku.

Kyrking dánarorsök í þriðjungi heimilisofbeldismála

We Can’t Consent to This-sam­tökin voru sett á fót eftir að John Broad­hurst var dæmdur fyrir mann­dráp af gáleysi eftir að hann varð Natalie Connolly að bana árið 2016. Broad­hurst hlaut aðeins þriggja ára og átta mán­aða fang­els­is­dóm þrátt fyrir að 40 áverkar hefðu fund­ist á lík­ams­leifum Connolly, þeirra á meðal alvar­legar inn­vortis blæð­ingar og brotin augn­tóft. Þá var hún með leifar af klór í and­lit­inu. „Samþykki“ sem kemur oft við sögu í nauðg­un­ar­málum, er hvorki afsökun fyrir meiðslum né dauða í breskum lögum. Aðgerða­sinnar segja „gróft kyn­líf sem fór illa“ sem vörn í saka­málum þó geta orðið til þess að menn séu frekar dæmdir fyrir mann­dráp af gáleysi en morð og að þeir fá væg­ari dóma.

„Konur deyja ekki úr grófu kyn­lífi. Þær deyja af því að menn beita þær ofbeldi“

Susan Edwards, pró­fessor við laga­deild Uni­versity of Buckingham, bendir á að kyrk­ing sé dán­ar­or­sök í þriðj­ungi til­vika þar sem ein­stak­lingur verður maka sínum að bana. Hún sagði í sam­tali við Guardian að það færð­ist í auk­ana að menn bæru fyrir sig grófu kyn­lífi sem vörn þar sem BDSM þætti nú ásætt­an­legur þáttur í kyn­lífsiðkun fólks. Fyrir þrjá­tíu árum hefðu ofbeld­is­menn­irnir heldur borið fyrir sig að þeim hefði verið ögrað eða að þeir hefðu misst stjórn á sér.

Óhugnanleg þróun

„Konur deyja ekki úr grófu kyn­lífi. Þær deyja af því að menn beita þær ofbeldi,“ segir Karen Ingala-Smith, fram­kvæmda­stjóri góð­gerða­sam­tak­anna Nia, sem berj­ast gegn heim­il­is­of­beldi. Hún sagði klám hluta vand­ans, þar sem ungir menn hefðu rang­hug­myndir um kyn­líf og konur upp­lifðu þrýst­ing um að sætta sig við ofbeldi sem þátt í kyn­líf­inu.

Fiona MacKenzie, stofn­andi We Can’t Consent to This, sagði í sam­tali við Sky News að þró­unin væri óhugn­an­leg; að í málum þar sem konur væru beittar ofbeldi neydd­ust þær til að mæta fyrir dóm og verj­ast ásök­unum um að hafa verið vilj­ugir þátt­tak­endur í ofbeld­inu. „Það er ekk­ert sem bendir til þess að þessar konur hafi gefið sam­þykki sitt. Þessir menn beita hræði­legu, sadísku ofbeldi og nota þessa vörn til að koma sér undan þyngri dómum.“

Myrti hana „óvart“ en gróf í ferðatösku

Grace Millane, 21 árs, var í heims­reisu þegar hún kom til Nýja-Sjálands í nóv­em­ber í fyrra. Hún hafði kynnst manni á Tinder og átti stefnu­mót við hann í Auckland þann 1. des­em­ber. Lík­ams­leifar hennar fund­ust átta dögum síðar, í ferða­tösku sem hafði verið grafin fyrir utan borg­ina. Jesse Kempson, 27 ára, var í síð­ustu viku fund­inn sekur um að hafa myrt Millane en við rétt­ar­höldin sögðu verj­endur hans að hann hefði „óvart“ þrengt að hálsi hennar með þeim afleið­ingum að hún lést.

Grace Millane.

Sér­fræð­ingur sagði við rétt­ar­höldin að það hefði tekið Millane fimm til tíu mín­útur að deyja og að hún hefði misst með­vit­und áður.

Vitni sem kynnt­ist Millane í gegnum BDSM-stefnu­móta­síðu, sagði hana hafa verið „sak­lausa“ en fyrr­ver­andi kær­asti sagði Millane þvert á móti hafa haft reynslu af BDSM og þekkt vel til örygg­is­ráð­staf­ana. Hann stað­festi að hún hefði leyft honum að þrengja að hálsi hennar þegar þau stund­uðu kyn­líf en sagði þau hafa notað örygg­is­orð og snert­ingar til að gefa til kynna að þau vildu stoppa.

„Þú getur ekki gefið sam­þykki fyrir eigin morði,“ sagði sak­sókn­ar­inn í mál­inu en verj­endur Kempson sögðu að um slys hefði verið að ræða, sem mætti m.a. rekja til áfeng­is­neyslu og reynslu­leysis.

Við rétt­ar­höldin var Kempson sagður hafa farið á annað Tinder-stefnu­mót sama dag og hann los­aði sig við lík­ams­leifar Millane, og aðrar konur höfðu hætt sam­skiptum við hann vegna fram­komu hans. Þá var hann sagður eiga sögu um að segja ósatt og hafði m.a. logið því til að hann hefði greinst með krabba­mein, að hann væri atvinnu­í­þrótta­maður og að hann væri yfir­maður á olíu­bor­p­alli.

Lesið meira um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi