Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Banvænt ár fyrir börn í Afganistan: Níu drepin að meðaltali á dag

■ Ný skýrsla UNICEF um stöðu barna í Afganistan er svört ■ Stríð­andi fylk­ingar og stjórn­völd eru að bregð­ast börnum ■ Aukning í sjálfs­vígsárásum ■ Millj­ónir barna þurfa aðstoð í land­inu sem er nú ban­væn­asta stríðs­svæði í heim­inum fyrir börn

Fjórir ára­tugir af átökum hafa tekið sinn toll og eru að hafa skelfi­leg áhrif á börn í Afganistan. Stríð­andi fylk­ingar og stjórn­völd eru að falla á próf­inu og bregð­ast skyldum sínum við að verja þau afleið­ing­unum. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 lét­ust eða særð­ust að með­al­tali níu börn á dag í land­inu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF sem ber yfir­skrift­ina Pres­erv­ing Hope in Afghanistan: Protecting children in the world‘s most let­hal conflict.

Þessar tölur yfir barn­ung fórn­ar­lömb átak­anna í Afganistan eru slá­andi og það sem verra er þá þýða þær að ástandið er að versna. Þetta er 11% aukn­ing frá því á sama tíma­bili í fyrra og er ástæðan að sögn UNICEF aukn­ing í sjálf­vígs­sprengi­árásum og bar­dögum milli her­liðs stuðn­ings­manna stjórn­valda og and­stæð­inga þeirra, segir í til­kynn­ingu frá UNICEF.

„Árið 2019 hefur verið óvenju ban­vænt fyrir börn í Afganistan, meira að segja á þeirra mæli­kvarða,“ segir Hen­ri­etta Fore, fram­kvæmda­stjóri UNICEF, um nið­ur­stöður skýrsl­unnar.

„Börn, fjöl­skyldur þeirra og sam­fé­lögin öll þjást hvern dag sökum þess­ara átaka og búa við afleið­ingar þeirra. Þessi sömu börn þrá ekk­ert heitar en að fá að vaxa úr grasi, ganga í skóla, læra og skapa eigin fram­tíð. Við getum og verðum að gera meira til að styrkja ótrú­legt hug­rekki þeirra og þol­gæði.“

Á tíma­bil­inu 2009 til 2018 voru nærri 6.500 börn drepin í átökum og 15.000 særð­ust alvar­lega sam­kvæmt skýrsl­unni og gerir það Afganistan að ban­væn­asta stríðs­svæði ver­aldar á síð­asta ári.

Aðrar nið­ur­stöður skýrsl­unnar varð­andi stöð­una í Afganistan eru meðal ann­ars:

  • 3,8 millj­ónir barna þurfa mann­úð­ar­að­stoð.
  • Ein af hverjum þremur stúlkum eru neyddar í hjóna­band fyrir 18 ára aldur.
  • 3,7 millj­ónir barna á skóla­aldri eru ekki í skóla.
  • 600 þús­und börn undir 5 ára aldri eru alvar­lega vannærð.
  • 30 pró­sent barna eru fórn­ar­lömb barna­þrælk­unar.

„Með réttri aðstoð geta börnin slitið sig úr hlekkjum þessa víta­hrings ofbeldis og van­þró­unar og skapað sér og Afganistan bjart­ari fram­tíð,“ segir Aboubacar Kampo, full­trúi UNICEF í Afganista, einn þeirra sem vinnur mikið og gott starf í land­inu.

UNICEF vinnur meðal ann­ars með stjórn­völdum og sam­fé­lögum að vinna gegn hættum sem stafa að konum og stúlkum í land­inu. Þær eru meðal ann­ars svokölluð heið­urs­dráp, heim­il­is­of­beldi og kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Með sam­starfs­að­ilum útvegar UNICEF 277 þús­und alvar­lega vannærðum börnum með­höndlun. En betur má ef duga skal þar sem ná þarf til 300 þús­und barna til við­bótar. UNICEF hefur þá í auknum mæli not­ast við sjálf­bært sól­ar­orku­vatns­kerfi til að aðstoða þær tæpu þrjár millj­ónir Afgana sem þjást af vatns­skorti.

UNICEF krefst þess að lokum að stríð­andi fylk­ingar upp­fylli skyldur sínar gagn­vart alþjóð­legum mann­rétt­inda­lögum og verji sak­laus börn fyrri átökum. Þá er þess kraf­ist að hætt verði að gera heil­brigð­is­stofn­anir og skóla að skot­mörkum og íbúum verði leyft að nálg­ast mann­úð­ar­að­stoð eftir þörfum.

UNICEF áætlar að safna þurfi 323 millj­ónum dala, eða sem nemur tæpum 40 millj­örðum króna, fyrir nauð­syn­lega aðstoð í Afganistan á næsta ári. Aðeins fjórð­ungur þeirrar upp­hæðar hefur verið fjár­magn­aður.

Um UNICEF:

UNICEF (Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna) hefur í tæpa sjö ára­tugi verið leið­andi í hjálp­ar­starfi fyrir börn í heim­inum. Við berj­umst fyrir rétt­indum barna á heims­vísu og sinnum bæði lang­tíma­upp­bygg­ingu og neyð­ar­að­stoð. UNICEF treystir ein­göngu á frjáls fram­lög og hefur að leið­ar­ljósi þá bjarg­föstu trú að öll heims­ins börn eigi rétt á heilsu­gæslu, menntun, jafn­rétti og vernd. Við erum á vett­vangi í yfir 190 löndum og leggjum áherslu á að ná til allra barna – hvar sem þau eru.

Fylgjast má með UNICEF á:
www.unicef.is, www.facebook.com/unicefisland og www.twitter.com/unicefisland

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi