Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Mimi malar gull um jólin

Það eru fáir sem geta státað að því að standa jafn­fætis Nat King Cole og Bing Crosby þegar kemur að und­ir­leik jóla­há­tíð­ar­innar og eng­inn kemst nærri því en Mariah Carey. Það finnst varla sá Trölli sem sönglar ekki með All I Want For Christmas Is You í jólainn­kaupum og það má með sanni segja að lagið sé komið í jóla­laga­kanón­una.

Mimi malar gull um jólin
Mariah Carey er með samn­ing við Caesars Palace í Las Vegas og mun koma fram á átta tón­leikum í febr­úar 2020. Mynd / EPA

All I Want For Christmas Is You, samið og flutt af popp­dívunni Mariah Carey, komst á dög­unum í efsta sæti Bill­bo­ard Hot 100-list­ans yfir mest seldu, spil­uðu og streymdu lögin vest­an­hafs. Þetta þykir nokk­urt afrek í ljósi þess að lagið kom fyrst út fyrir 25 árum en kannski ekki skrýtið þar sem það er eitt vin­sælasta jóla­lag seinni tíma. Árið 2017 var áætlað að lagið hefði skilað Carey og með­höf­undi hennar sam­tals 60 millj­ónum Banda­ríkja­dala í höf­und­ar­rétt­ar­tekjur en því til við­bótar hefur söng­konan verið dug­leg að gera út á vin­sældir All I Want For Christmas Is You með jólatón­leikum, barna­bók, teikni­mynd og aug­lýs­inga­samn­ingum, svo eitt­hvað sé nefnt.

„Þetta er ein­faldur og hreinn og beinn popp­gim­steinn sem vill svo til að fjallar um jólin.“

Carey, sem kallar sig Mimi, og Walter Afanasi­eff hafa orðið marg­saga um það hvernig lagið varð til en sam­kvæmt einni útgáf­unni var það soðið saman á aðeins 15 mín­útum sum­arið 1994. Í annarri útgáfu sagð­ist Carey hafa samið lagið ein við hljóm­borðið, með It’s a Wonderful Life í bak­grunn­inum, og síðan hafa full­komnað það með Afanasi­eff í hljóð­ver­inu. Afanasi­eff man þetta hins vegar öðru­vísi og bendir máli sínu til stuðn­ings á að höf­und­ar­rétti lags­ins sé skipt 50/50. „Ég sat við píanóið með Mariah í her­berg­inu og byrj­aði að pikka – eins og ég gerði alltaf, í hverju ein­asta lagi sem við höfum samið saman – ákveð­inn hljóm,“ sagði Afanasi­eff. Hann hefði klárað lagið en Carey samið text­ann.

Nýtt lag varð að gam­alli klassík
Það sem er óum­deildt er að Carey var í fyrstu síður en svo hrifin af þeirri hug­mynd að taka upp jóla­plötu. Árið 1994 var hún orðin heims­fræg; hafði afrekað það að koma fyrstu fjórum lög­unum sínum á Bill­bo­ard Hot 100 list­ann og slegið í gegn með lagið Hero af plöt­unni Music Box, sem varð ein sú mest selda í heimi. Á þessum tíma tíðk­að­ist ekki að stór­stjörnur á hátindi frægðar sinnar gæfu út jóla­plötur en söng­konan var þá gift Tommy Mottola, sem var yfir Sony Music Enterta­in­ment, og tókst að selja henni hug­mynd­ina.

Carey og Afanasi­eff hófu að semja tón­list og til að koma sér í rétta stemn­ingu hóf jóla­barnið Carey að skreyta heim­ilið sem hún deildi með Mottola í upp­sveitum New York. „Ég er mjög hrifin af hátíð­is­dögum og elska jólin. Ég hef sungið jólaög frá því ég var lítil stelpa. Ég fór um og söng jóla­söngva. Þegar kom að plöt­unni þurftum við að finna rétt jafn­vægi milli hefð­bund­inna jóla­sálma og skemmti­legra laga. Það var for­gangs­at­riði hjá mér að semja að minnsta kosti nokkur ný lög en það skiptir ekki máli hversu gott nýtt lag er; fólk vill heyra gömlu lögin um jólin,“ sagði Carey um plöt­una Merry Christmas, sem kom út jólin 1994.

Á plöt­unni var m.a. að finna, auk All I Want For Christmas Is You, útgáfur Carey af Silent Night, O Holy Night og Christmas (Baby Please Come Home) en ekk­ert þeirra náði við­líka vin­sældum og fyrst­nefnda lagið. Margir hafa reynt að kryfja það hvers vegna All I Want For Christmas Is You vann hug og hjörtu heims­byggð­ar­innar, alveg niður í ein­staka nótur. Flestir hafa þó verið sam­mála um að það megi m.a. þakka hressum takt­inum, blæ af gam­alli klassík og tíma­lausum skila­boðum. Lagið hefur verið sagt fanga hinn sanna anda jól­anna í ódauð­legum smelli. „Þetta er ekki lag sem fúnar með árunum, með ein­hver gam­al­dags skila­boð,“ segir Dave Bakula hjá Nielsen Music. „Þetta er ein­faldur og hreinn og beinn popp­gim­steinn sem vill svo til að fjallar um jólin.“

Gjöfin sem gefur … og gefur

Þrátt fyrir stöðugar vin­sældir All I Want For Christmas Is You gekk lagið óum­deil­an­lega í end­ur­nýjun líf­daga í kjöl­far útgáfu kvik­mynd­ar­innar Love, Actually en í mynd­inni, sem sjálf hefur hlotið fastan sess í hugum og hjörtum margra jóla­barna, er lagið sungið af ungst­irn­inu Olivia Olson í eft­ir­minni­legu atriði.

Carey hefur síð­ustu ár verið sér­stak­lega dug­leg við að „eigna sér“ jólin og hefur haldið fjölda tón­leika og við­burða í kringum hátíð­irnar. Í ár fagn­aði hún 25 ára afmæli Merry Christmas með sér­stakri tón­leika­ferð og end­ur­út­gáfu plöt­unnar. Þá hefur Amazon gefið út stutta heim­ild­ar­mynd um lagið, undir titl­inum Mariah Carey is Christmas: The Story of All I Want For Christmas Is You.

Margir muna eflaust eftir Will Freeman í kvik­mynd­inni About a Boy en hann var leik­inn var af Hugh Grant, sem einnig fór með hlut­verk í Love, Actually. Freeman lifir fábreytnu en auð­veldu lífi, þar sem hann hefur lifi­brauð sitt af höf­und­ar­rétt­ar­tekjum föður síns sem sló í gegn með jólasmell­inn Santa’s Super Sleigh. Umræddur skáld­skapur á sér stoð í raun­veru­leik­anum en stað­reyndin er sú að Carey gæti auð­veld­lega lifað á tekj­unum af All I Want For Christmas Is You einum saman.

The Economist áætl­aði árið 2017 að höf­und­ar­rétt­ar­tekjur af lag­inu hefðu náð 60 millj­ónum dala en það er í raun aðeins hluti þeirra tekna sem söng­konan hefur haft af lag­inu. Óbeinar tekjur eru mun meiri og má þar nefna nýjasta aug­lýs­inga­samn­ing Carey, sem er sögð hafa fengið 11 millj­ónir dala fyrir að aug­lýsa Walkers-snakk í jóla­aug­lýs­ingum fyrir PepsiCo.

  • All I Want … í tölum
    *Lagið er mest streymda jóla­lagið á Spotify; hefur verið spilað 602 milljón sinnum. Horft hefur verið á mynd­bandið 605 milljón sinnum, frá því það var sett inn á YouTube árið 2009.
    *Höf­und­ar­rétt­ar­tekj­urnar af streym­inu á Spotify námu 2 millj­ónum dala síð­ust ár og eru taldar munu nema 600 þús­und dölum árið 2019.
    *All I Want For Christmas Is You er fyrsta jóla­lagið til að kom­ast í fyrsta sæti Bill­bo­ard Hot 100 í 60 ár. Hitt lagið sem vermt hefur efsta sætið er The Chipmunk Song.
    *All I Want … er 19. lag Carey sem kemst á topp Bill­bo­ard Hot 100 en aðeins Bítl­arnir hafa átt fleiri lög á toppnum; 20.
    *Laginu var streymt 12,6 milljón sinnum árið 2014 en 185 milljón sinnum í fyrra. Þá var það spilað 24 þús­und sinnum í útvarpi árið 2014 en 42 þús­und sinnum í fyrra.
    *Merry Christmas var þriðja sölu­hæsta jóla­platan í Banda­ríkj­unum frá 1991 til 2015, sam­kvæmt Nielsen SoundScan. Fjórða mest selda platan var These Are Special Times með Celine Dion en sú mest selda var Miracles: The Holiday Album með Kenny G.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi