Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ástin á sextugsaldri

Ástin á sextugsaldri

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég var komin hátt á fimmtugsaldur þegar ég skildi. Í tíu ár var ég ein og fannst stöðugt ólíklegra að ástin bankaði aftur upp á í lífi mínu. Þegar ég kynntist Gunnari fannst mér lífið dásamlegt og eiginlega of gott til að vera satt. Það kom líka á daginn að hann var ekki sá sem ég hélt hann væri.

Gunnar var ekkju­maður. Hann hafði misst konu sína úr krabba­meini um svipað leyti og ég skildi við mann­inn minn. Þau hjónin höfðu átt og rekið fyr­ir­tæki saman og verið mjög vel stödd fjár­hags­lega. Gunnar sat í óskiptu búi en tvö barna hans unnu við fyr­ir­tækið. Kona hans átti mikið af vönd­uðum fötum og skart­gripum sem Gunnar hafði skipt milli dætra þeirra. Sonurinn fékk í stað­inn bíl móður sinnar en allt annað á heim­il­inu var eins og hún skildi við það.

Gunnar bjó í stóru fal­legu ein­býl­is­húsi en ég átti litla íbúð. Við bjuggum hvort í sínu lagi en hitt­umst oft í viku og fljót­lega var ég farin að vera meira heima hjá honum en mér. Ég var því farin að flytja með mér eitt­hvað af nauð­syn­legum fötum og snyrti­vörum. Gunnar tók því ágæt­lega bjó til rými fyrir mig í fata­skápum og bað­skáp en bað mig að láta ekki dótið mitt sjást. Hann sagði að þegar börnin hans kæmu við myndi það reyn­ast þeim erfitt ef þeim fynd­ist að önnur kona væri að taka sess móður þeirra í lífi hans. Mér fannst það mjög eðli­legt til að byrja með og hugs­aði með mér að þau hlytu að venj­ast við og smátt og smátt gæti ég eign­ast vin­áttu þeirra.

Börnin vildu ekki sjá hana

Ekki var því þó að heilsa. Þegar börnin hans litu við um helgar bað Gunnar mig að fara inn í her­bergi og bíða þar áður en hann opn­aði fyrir þeim. Ég sat þar og lét lítið fyrir mér fara þótt mér þætti þetta mjög óþægi­legt. Stundum lét ég mig hverfa út um garð­dyrnar og fór heim til barn­anna minna til að bíða af mér heim­sókn­ina. Nokkrum sinnum ræddi ég þetta við Gunnar og spurði hann hvort hann teldi ekki ómögu­legt að við héldum sam­bandi okkar til streitu fyrst börnin hans væru því svo mót­fallin. Hann svar­aði því til að hann vildi alls ekki missa mig og við skyldum sjá til.

Samband okkar varð sífellt nán­ara og við komumst að því að við áttum mörg sam­eig­in­leg áhuga­mál. Gunnar var góður kokkur og var í mat­ar­klúbbi þar sem fólk kom saman og eld­aði eftir hefðum mis­mun­andi landa. Dregið var um í hverju boði hvaða land félli í hlut þess er átti að halda næsta. Við Gunnar fengum Ísrael í okkar hlut skömmu eftir að við vorum farin að kynna hvort annað fyrir vina­hóp­unum. Þetta var mikil og skemmti­leg áskorun, við eld­uðum saman og tókum á móti klúbbnum. Allt gekk vel en þegar þau voru að fara spurði ein konan mig hvernig fjöl­skyldur okkar Gunnars hefðu tekið sam­drætti okkar.

Ég sagði henni að börnin mín væru mjög hrifin af Gunnari en ég hefði ekki enn hitt börnin hans. Þau ættu víst erfitt með að sætta sig við sam­band okkar og vildu ekki hitta mig. Hún varð mjög undr­andi og sagði að þetta líkt­ist alls ekki dætrum Gunnars sem hún þekkti mjög vel. Þær hefðu þvert á móti margoft talað um það við sig að þær myndu fagna því ef pabbi þeirra kynnt­ist góðri konu. Eftir að kona hans dó hafði Gunnar sokkið ofan í djúpt þung­lyndi og krakk­arnir hans haft miklar áhyggjur af honum. Lengi hafði hann ein­angrað sig frá öllum og verið mjög einamana. Þessi kona hafði verið besta vin­kona eig­in­konu hans og þau hjónin ævin­lega mjög náin þeim meðan hún lifði.

Símtal frá yngstu dótturinni

Hún sagð­ist þess vegna hafa tekið börn Gunnars upp á sína arma þegar móðir þeirra féll frá og faðir þeirra átti svo erfitt. Yngsta dóttirin var rétt rúm­lega tví­tug og það var henni mikið áfall að missa móður sína. Konan bætti við að þrátt fyrir það hefði hún aldei orðið þess vör að sú stúlka vildi að faðir hennar yrði einn það sem eftir væri.

Ég sagði henni að Gunnar væri mér ein­stak­lega góður og ég væri ekki á förum. Ég hefði fulla trú á að börnin hans myndu koma til og fyrr eða síðar gætum við öll orðið vinir. Nokkrum dögum seinna fékk ég upp­hring­ingu. Í sím­anum var Kristín, yngri dóttir Gunnars. Hún hafði talað við kon­una úr mat­ar­boð­inu og vildi endi­lega hitta mig og stakk upp á að við færum saman í hádeg­is­mat. Ég varð auð­vitað afskap­lega glöð við og þar sem við vorum báðar lausar þennan dag ákváðum við að hitt­ast strax þá.

Þegar ég kom inn á veit­inga­stað­inn voru þar fyrir öll þrjú börnin hans Gunnars. Þau tóku mér fagn­andi og sögð­ust glöð að ég vildi loks­ins hitta þau. Mér brá rosa­lega og sagði þeim eyðilögð að ég hefði alltaf haft mik­inn áhuga á að kynn­ast þeim. Þau urðu undr­andi og sögðu mér að pabbi þeirra hefði sagt þeim að ég væri feimin og kvíðin að hitta þau. Í hvert sinn sem þau létu í ljós löngun til að hitta mig hafði hann sagt að það yrði að bíða. Ég teldi enn ekki tíma­bært að allir kæmu saman og ég væri hrædd við að þau höfn­uðu mér.

Móðguð yfir framkomunni

Þau höfðu verið óskap­lega sár og svo­lítið móðguð yfir að ég léti mig alltaf hverfa inn í her­bergi þegar þau kæmu eða laum­að­ist út bak­dyra­megin. Þau voru farin að velta fyrir sér hvort ég væri eitt­hvað skrýtin eða að mér væri ekki alvara með sam­bandi mínu við pabba þeirra. Þeim datt í hug að ég væri að reyna að fá sem mest út úr honum pen­inga­lega og ætl­aði síðan að láta mig hverfa. Það fannst þeim lík­leg­asta skýr­ingin fyrst ég gæti ekki horfst í augu við þau eða tekið þátt í lífi pabba þeirra að fullu.

Ég varð að vonum slegin og eyðilögð. Sagði þeim að þetta væri alls ekki raunin. Gunnar hefði sagt mér að þeim þætti erfitt að horfa upp á mig inni á heim­il­inu sem mamma þeirra hefði skapað og hann hefði beðið mig að láta lítið fyrir mér fara og ekki dreifa mínum munum um húsið. Þau urðu mjög hissa og ég sá að þau voru í vafa um hvort þau ættu að trúa mér. Þessi fundur end­aði með því að ég brotn­aði niður og fór að gráta. Við kvödd­umst þó án nokk­urs kala og þau báðu mig að tala við pabba sinn og athuga hvort ekki væri hægt að skipu­leggja mat­ar­boð eða ein­hverja sam­komu svo hægt væri að byrja sam­skiptin á nýjum og betri nótum.

Ég hringdi í Gunnar um leið og ég kom út í bíl og sagði honum hvað hefði gerst. Ég bað hann að hitta mig heima hjá sér og tala út um þetta mál svo hringdi ég í vinn­una og lét vita að ég kæmi ekki eftir hádegið. Þegar heim til Gunnars kom mætti mér ekki iðr­andi synd­ari sem sá eftir að hafa blekkt bæði mig og börnin sín. Þar sat kaldur og vondur maður sem jós úr skálum reiði sinnar yfir mig. Hann spurði meðal ann­ars öskuillur hvernig ég dirfð­ist að tala við börnin sín án hans leyfis. Þá var mér nóg boðið. Ég stóð upp og tók saman það litla sem ég átti heima hjá honum, gekk út og lok­aði á eftir mér. Gunnar hringdi í mig tvisvar eftir þetta en ég svar­aði ekki.

Ég hef oft velt fyrir mér hvers vegna hann hegð­aði sér eins og hann gerði. Hugs­an­lega fannst honum of mikil bind­ing að opna alla leið inn í líf sitt eða kannski vildi hann bara hafa mig á einum stað í lífi sínu og börnin á öðru. Hvað sem það var þá var ég lengi brotin og særð eftir þessa reynslu. Mér fannst eins og ég hefði verið vegin og létt­væg fundin af þessum elsk­huga mínum. Að minnsta kosti var ég ekki nægi­lega merki­leg til að börnin hans mættu kynn­ast mér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina