Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Með aðstoð lögreglu …

Með aðstoð lögreglu …

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni. 

Þegar ég var ítrekað stoppuð af lögreglunni fyrir engar sakir skildi ég ekkert hvað var í gangi. Svo fór mig að gruna að þetta tengdist nágrannaerjum og þótt ég gæti ekki sannað það fékk ég þó aðstoð úr óvæntri átt til að stöðva þessar ofsóknir.

Á þessum tíma var ég nýskilin við mann­inn minn til margra ára og hafði skiln­að­ar­ferlið verið erfitt. Ég bjó í frekar litlu fjöl­býl­is­húsi þar sem allir höfðu sér­inn­gang, var gjald­keri hús­fé­lags­ins sem var nokkuð ónæð­is­samt starf á þessum tíma og nágrann­arnir komu á öllum tímum til að borga reikn­ing­ana sína.

Þriggja ára sonur minn veikt­ist mjög alvar­lega og þar sem ég þurfti að vera hjá honum nán­ast allan sól­ar­hring­inn á sjúkra­hús­inu kom ég eldra barn­inu fyrir hjá ætt­ingjum. Enginn af nágrönn­unum var til í að taka að sér gjald­ker­a­starfið, ég fór íbúð úr íbúð, sagði þeim að barnið mitt væri mjög veikt í lyfja­með­ferð og ég treysti mér ekki lengur til að sjá um hús­sjóð­inn. Mikið var ég sár og ekki síður undr­andi. Sjálf hefði ég ekki hikað við að taka þessa auka­byrði af mann­eskju í svona erf­ið­leikum.

Þetta var skelfi­legt tíma­bil, stundum hélt ég að barnið mitt dæi, svo veikt var það. Ekki hafði ég nokkurn stuðn­ing af fyrrum eig­in­manni eða fólk­inu hans. Skiln­að­ur­inn var vissu­lega erf­iður og hat­rammur en að láta það bitna á þennan hátt á barn­inu var ofar mínum skiln­ingi. Samband hans við börnin var ekki sér­lega náið en hann var þó pabbi þeirra. Hann kom nokkrum sinnum í heim­sókn en taut­aði alltaf að hann þyldi ekki sjúkra­hús og svo var hann far­inn eftir smá­stund. Hann bauð ekki fram neina hjálp, eins og að leysa mig af við sjúkra­beð­inn. Það var starfs­fólkið sem sá til þess að ég kæm­ist annað slagið heim. Stund­irnar heima not­aði ég til að gráta því á sjúkra­hús­inu varð ég að vera sterk fyrir barnið mitt.

Ekki fékk ég mik­inn frið til að gráta, heldur var stöðugt ham­ast á hurð­inni hjá mér, nágrannar á ferð til að borga raf­magn og hita og þess háttar, höfðu séð bíl­inn minn í inn­keyrsl­unni og komu þá strax.

Eftir að ég skildi og stóð uppi ein með börnin fann ég fyrir auknu virð­ing­ar­leysi frá nágrönn­unum í minn garð, aðal­lega hjón­unum á hæð­inni fyrir ofan mig, og það var eins og engu skipti að ég væri með fár­veikt barn.

Ekki í vin­sælda­keppni
Lífið varð sífellt erf­ið­ara, reikn­ing­arnir hrúg­uð­ust upp og á tíma­bili voru fjöl­margir lög­fræð­ingar á hæl­unum á mér. Ef ég hefði búið á litlum stað úti á landi hefði eflaust verið haldin söfnun fyrir mig en ég hvarf í fjöld­ann í Reykja­vík.

Ég hafði hvorki tíma né geð í mér til að vera í vin­sælda­keppni í hús­inu á þessum erf­iðu tímum og þegar hjón í hús­inu vildu frá sér­hita í íbúð sína var ég sú eina sem sam­þykkti það ekki. Þessi hjón bjuggu næst hita­inntak­inu og vildu spara sér fé en á kostnað okkar hinna sem eng­inn hugs­aði út í. Mér datt ekki í hug að gera þessu fólki neinn greiða, hjónin sýndu mér algjört tóm­læti þegar ég sagði frá veik­indum sonar míns og bað þau um að sjá um gjald­kera­stöð­una fyrir mig. Átti ég nú að fara að borga hærri hita fyrir þau?

Karlinn á hæð­inni fyrir ofan mig vann hjá Reykja­vík­ur­borg og einn dag­inn mætti hann með reikn­ing til mín fyrir máln­ingu sem hann hafði reddað hús­fé­lag­inu í gegnum afslátt­ar­kjör hjá borg­inni. Mér fannst þetta óheyri­lega dýrt og eitt sím­tal upp í Málningu sýndi mér að við hefðum getað fengið nákvæm­lega sömu máln­ingu á hús­veggi, glugga og þak á helm­ingi lægra verði þar.

„Alltaf sýndi ég lög­regl­unni fyllstu kurt­eisi þótt ég yrði sífellt pirraðri. Ég var stundum látin blása í áfeng­is­mæli þótt hábjartur dagur væri og börnin í aft­ur­sæt­inu.“

„Og hver ákvað að þakið ætti að vera rautt?“ spurði ég pirruð, ég þoli ekki rauð þök. Hann benti á næsta hús þar sem var rautt þak og sagði for­dæmi fyrir þessu vali en ég benti á húsin í kring og mis­lit þökin á þeim.

Hinir nágrann­arnir sam­þykktu alltaf allt sem karl­inn lagði til, eða þorðu ekki að mót­mæla, það var bara ég, gjald­keri hús­fé­lags­ins, sem mót­mælti yfir­gangi hans. Auðvitað hefði átt að halda hús­fund og ákveða þetta í sam­ein­ingu en karl­inn var svo frekur.

Einn dag­inn þegar ég var heima í kær­kominni grát­pásu tók ég mig til og opn­aði gluggaumslögin sem biðu í hrúgum. Eitt þeirra var frá trygg­ing­ar­fé­lag­inu mínu sem til­kynnti að búið væri að kaupa hús­eig­anda­trygg­ingu fyrir mig. Ég hringdi undr­andi í trygg­ing­ar­fé­lagið og sá sem ég tal­aði við sagði að ódýr­ara væri að hafa allt húsið með í pakk­anum. Ég bað hann um að fletta upp kenni­töl­unni minni, þá sæi hann að ég væri skuldug hjá þeim, hvort ekki væri sniðugra ef ég borg­aði eldri skuldir áður en ég stofn­aði til nýrra.

Stríð vegna garð­vinnu
Lítill garður fylgdi öllum íbúð­unum, grann­inn á efri hæð­inni hafði svalir, ég var með smá­ver­önd en svo var hluti garðs­ins sam­eig­in­legur með íbúðum. Ég og freki grann­inn vorum í enda­í­búðum og þar voru bara tvær hæðir svo ekki voru fleiri um garð­skikann okkar. Hann og kona hans gerðu aldrei neitt þar svo það kom í minn hlut að slá, reyta arfa og girða, en eitt árið voru settir upp skjól­veggir sem gerðu garð­ana meira kósí og sér. Ég reyndi reglu­lega að virkja fólkið uppi í garð­vinnu en tókst ekki.

Syni mínum batn­aði hægt og rólega og ég fékk stundum að taka hann heim en þá varð hann að vera í ein­angrun. Ég lét nágranna mína vita af því og sagði þeim að hann mætti ekki leika við börn þeirra vegna smit­hættu. Ekki var hlustað á það, börnin af efri hæð­inni komu iðu­lega út í garð þegar þau sáu son minn þar að leik svo ég þurfti að taka hann inn. Svo hringdu börnin dyra­bjöll­unni hjá mér ef þeim var mál. Ef ég sagði þeim að fara heim til sín og pissa þar sögðu þau kannski að mamma þeirra væri að leggja sig og yrði svo reið …
Loks eftir langa hríð gafst ég upp, fór upp til nágranna minna og hrein­lega bann­aði þeim að nota garð­inn þar sem þeir sæju sér aldrei fært að gera neitt þar. Þessir nágrannar mínir eru útlenskir og töl­uðu fín­ustu íslensku en báru þó alltaf fyrir tungu­mála­örð­ug­leikum ef ég þurfti að ræða eitt­hvað við þá. Þetta fólk var ramm­kaþ­ólsk og sagð­ist ekki mega gera neitt á sunnu­dögum, hvíld­ar­dag­inn hélt það að sjálf­sögðu hátíð­legan. Hina sex daga vik­unnar var það of upp­tekið við annað.

Eftir þetta skall á fullur fjand­skapur. Ég komst fljót­lega að því að þessi hjón hefðu gengið á milli hinna í hús­inu og nítt mig niður því ég fór að finna fyrir óvæntri andúð frá nokkrum öðrum. Ekki hafði ég nokkra orku til að reyna að leið­rétta lygarnar.

Gamlar vin­konur mínar þekkja eina nágranna­kon­una sem var gift lög­reglu­manni, og er kannski enn, og heyrðu svo krassandi sögur af mér hjá henni að þær birt­ust óvænt hjá mér. Ég bauð þeim inn og upp á kaffi og svo spurðu þær hrein­skiln­is­lega hvort það væri rétt að ég væri orðin fylli­bytta, þessi kona hefði sagt þeim það. Hún hefði talað um að ég ætti svo mikið af vín­glösum … ég leit á skáp­inn minn með fínu vín­glös­unum sem ég hafði safnað í 15 ár og sagði bros­andi: „Ef ég væri fylli­bytta myndi ég lík­lega drekka úr sultu­krukkum!“

Þær skelli­hlógu, svo­lítið skömmustu­legar yfir því að hafa trúað þessu. Áður fyrr komu vissu­lega ein­hverjir nágrannar í kaffi til mín og sáu þá eflaust glasa­safnið, en allar heim­sóknir lögð­ust af eftir að sonur minn veikt­ist og þurfti að vera í ein­angrun heima, og um leið tæki­færi mín til að halda góðu sam­bandi við nágrann­ana.

Leyni­fundur í næstu íbúð
Eitt kvöldið fór ég út á ver­önd­ina mína til að anda að mér fersku lofti. Ég heyrði strax að fjöldi fólks var í íbúð­inni á neðri hæð­inni við hlið­ina á mér en sá ekk­ert fyrir skjól­veggnum háa. Gluggi var opinn í íbúð­inni svo ég heyrði orða­skil. Þegar nafn mitt bar á góma brá mér og ég færði mig nær veggnum og sett­ist niður á stétt­ina til að heyra betur. Ég veit að maður á ekki að liggja á hleri en ég gat ekki stillt mig og er fegin því vegna þess sem síðar gerð­ist. Þarna voru meðal ann­ars grann­arnir af efri hæð­inni og töl­uðu á góðri íslensku um vand­ræða­mann­eskj­una mig og nauð­syn þess að losna við mig úr hús­inu.
„Er hann örugg­lega til í þetta?“ heyrði ég svo að einn karl­inn sagði og hann fékk jákvætt svar við því. Ég dreif mig fljót­lega inn, fannst þetta of óþægi­legt.
Mjög fljót­lega eftir þetta fór lög­reglan að ónáða mig í tíma og ótíma þegar ég var á bílnum. Mér fannst það afar óþægi­legt og þegar þetta hætti ekki fór mér að finn­ast þetta und­ar­legt. Ég mátti varla aka Ártúns­brekk­una án þess að sjá blikk­andi ljós í bak­sýn­is­spegl­inum. Alltaf sýndi ég lög­regl­unni fyllstu kurt­eisi þótt ég yrði sífellt pirraðri. Ég var stundum látin blása í áfeng­is­mæli þótt hábjartur dagur væri og börnin í aft­ur­sæt­inu.

„Ég fékk aldrei að vita hvað kom út úr rann­sókn varð­stjór­ans eða hvort eft­ir­mál hefðu orðið vegna hennar en þessar ofsóknir hættu strax.“

Einu sinni á leið minni á Land­spít­al­ann skipti ég yfir á vinstri akrein til að liðka fyrir umferð frá aðrein, til að þeir bíl­stjórar kæmust strax inn á hægri akrein á aðal­braut. Þetta er svo sjálf­sagt að ég skil ekki þegar fólk gerir þetta ekki. Í kjöl­farið var ég stoppuð af lög­reglu og fékk áminn­ingu … fyrir að flakka á milli akreina. Ég þurfti að mæta niður á stöð vegna þessa máls og sagði meðal ann­ars í skýrslu­tök­unni að svona akst­ursmáti væri skylda um alla Evrópu. „Við erum ekki í Evrópu,“ var svarið. „Nú, hvar erum við þá?“ spurði ég kurt­eis­lega á móti en fékk ekk­ert svar. Mér var sagt í lokin að ég fengi að heyra frá lög­fræði­deild­inni en síðan eru um 20 ár og enn hefur ekk­ert heyrst.

Varð­stjór­inn hennar mömmu
Ég sagði mömmu frá þessu og að það væri eitt­hvað gruggugt í gangi, mig væri farið að gruna að nágrannar mínir stæðu á bak við þetta. Mamma veit að ég ímynda mér ekki hlut­ina og hún ákvað að hjálpa mér við að kom­ast til botns í þessu. Hún þekkti varð­stjóra sem hún hafði kynnst á sól­ar­strönd sum­arið áður og lánað honum pen­inga eftir að hann týndi vísa­kort­inu sínu eða eitt­hvað slíkt.

Við mamma fórum saman niður á lög­reglu­stöð þar sem varð­stjór­inn hennar tók vel á móti okkur. Þegar hann hafði heyrt mála­vöxtu lof­aði hann að kanna málið. Hann vissi ekki hvort um upp­lognar ásak­anir á hendur mér væri að ræða eða hvort eitt­hvað annað hefði orðið þess vald­andi að ég væri undir smá­sjá.
Ég fékk aldrei að vita hvað kom út úr rann­sókn varð­stjór­ans eða hvort eft­ir­mál hefðu orðið vegna hennar en þessar ofsóknir hættu strax.

Það er mjög alvar­legt ef ein­hver hefur mis­notað bún­ing sinn og vald til að níð­ast á mann­eskju vegna upp­log­innar sögu um að hún væri fylli­bytta, þá gæti hver sem er sem þekkir lög­reglu­mann komið óvinum sínum í klípu.
Þrátt fyrir þennan góða varð­stjóra, vin mömmu, þá tók mig langan tíma að taka lög­regl­una í sátt aftur.

Þegar ég flutti loks úr þessu húsi fannst mér þungu fargi af mér létt og síðan hef ég aðeins átt góða granna. Það þarf greini­lega ekki nema ein­hvern einn til að eyði­leggja allt.
Það tók mig mörg ár að greiða allar skuldir mínar og jafna mig fjár­hags­lega eftir veik­indi barns­ins en mér tókst það fyrir rest þótt seint geti ég kall­ast rík kona. Ekki gerði það bar­átt­una létt­bær­ari að þurfa að kljást við þessa erf­iðu nágranna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina