Leikkonan Sophie Turner og tónlistarmaðurinn Joe Jonas urðu fyrir því að keyrt var á hundinn þeirra, Waldo Picasso, fyrir skemmstu með þeim afleiðingum að hann drapst. Starfsmaður hjónanna var að ganga með Waldo þegar hundurinn sleit sig lausan og hljóp í veg fyrir bíl. Ökumaðurinn stakk af og hjónin þurftu að fá áfallahjálp.
Í gær fengu Joe og Sophie sér tattú til minningar um Waldo. Þau birtu myndir af húðflúrunum á Instagram. Um fíngerða teikningu af hundinum er að ræða. „Hvíldu í friði litli engill,“ skrifaði Joe við myndina.
Hjónin fóru á húðflúrstofuna Bang Bang Tattoos í New York.
Meðfylgjandi er Instagram-færslan sem Joe birti.
View this post on Instagram
A post shared by J O E J O N A S (@joejonas) on Jul 29, 2019 at 2:28pm PDT































Athugasemdir