Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Systir í samkeppni

Systir í samkeppni

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég er næstelst í systkinahópnum, á tvo bræður og eina systur, nokkrum árum yngri. Við systkinin vorum ágætlega samrýnd en á unglingsárunum fann ég að systir mín virtist vera komin í einhvers konar samkeppni við mig.

Vera systir þoldi ekki að ég fengi að fara út á kvöldin en hún ekki, að ég væri farin að mála mig en henni bannað það því hún var barn, og fleira í þeim dúr. Ég man þó eftir að hafa farið í bíó með vin­konum mínum og verið neydd til af mömmu að taka Veru með, þá bara 12 ára, þrátt fyrir að myndin væri bönnuð innan 16. Vera hafði grátið í klukku­tíma og mamma gef­ist upp á end­anum. Hún var þó frekar ströng við okkur og leyfði Veru yfir­leitt ekki að kom­ast upp með neina vit­leysu.

Það gladdi mig þegar Vera valdi sér sömu náms­grein og ég í háskóla og örfáum árum eftir útskrift hafði hún unnið sig upp í yfir­manns­stöðu. Ég var hreykin af henni og sagði henni það en hún hló og sagð­ist vera viss um að ég væri að far­ast úr öfund­sýki. Hún setti þetta fram eins og grín og við hlógum báðar.

Við systur giftum okkur með ársmilli­bili og eigum tvö börn hvor. Hjóna­band mitt varði í tólf ár en þá fór mað­ur­inn minn frá mér fyrir aðra konu. Það var eins og Vera hlakk­aði yfir því þótt hún segði það ekki beint út, hún hefur alltaf notað óbein skila­boð og ef ég reyni að spyrja hvað hún meini, verður hún ann­að­hvort reið eða þyk­ist ekk­ert skilja.

Ef ég keypti eitt­hvað fal­legt til heim­il­is­ins hér áður fyrr brást ekki að Vera keypti eitt­hvað sem var enn fínna og dýr­ara. Þótt heim­ili okkar væru ólík, ég meira fyrir þæg­indi en útlit, fann ég alltaf þörf hennar fyrir sam­an­burð við mig og heim­ili hennar hafði svo sann­ar­lega vinn­ing­inn. Ég var ánægð með mitt svo sam­keppnin var alveg ein­hliða.

Sumarbústaðaferð

Eitt sinn buðu Vera og maður hennar mér að koma með í sum­ar­bú­stað í viku. Börnin okkar voru þá orðin upp­komin og flutt að heiman og ég bjó í ágætri íbúð í næstu götu við mömmu.

Þetta var skemmti­leg vika en þegar mágur minn skrapp óvænt í bæinn einn seinni­part­inn og fram á næsta dag vegna vinnu, varð Vera þegj­anda­leg og vildi bara liggja í sóf­anum og lesa. Mér var sama og fór ein í göngu­ferð­ina sem við höfðum ætlað saman í. Ég hit­aði síðan upp afganga handa okkur og kvöldið var rólegt. Þegar ég vakn­aði næsta morgun heyrði ég að hún var sýsla í eld­hús­inu, hita kaffi og annað. Ég bauð góðan dag og dreif mig í snögga sturtu. Þegar ég kom fram sat hún við borðið með kaffi­bolla og ristað brauð og var að lesa. Hún hafði búið til kaffi, fengið sér, skolað könn­una og slökkt á henni, ásamt því að ganga vand­lega frá brauði og áleggi inn í ísskáp þótt hún vissi vel að örstutt væri í að ég kæmi fram. Það átti aldeilis ekki að stjana við stóru­systur. Ég fékk mér að borða og hellti upp á – en áður en ég gekk frá gat ég ekki stillt mig um að spyrja hana hvort hún vildi meira kaffi eða brauð, svona eins og eðli­legt fólk gerir. Hún þáði ábót á kaffið og hélt áfram að lesa. Þegar mað­ur­inn hennar kom breytt­ist hún og lék á als oddi.

„Það átti aldeilis ekki að stjana við stóru­systur.“

Einhvern tíma fór ég með hjón­unum í helg­ar­ferð til London. Þetta var fín ferð, systir mín var óvenju­mild í fram­komu við mig. En þegar við vorum á heim­leið og ókum inn í hverfið okkar mömmu, sagði Vera sem sat undir stýri að þau hjónin ætl­uðu beint til mömmu í heim­sókn. Ég kæmi bara með þangað og færi þaðan gang­andi heim til mín til að ná í bíl­inn minn svo ég gæti sótt far­ang­ur­inn. „Ekkert mál,“ sagði ég hissa. En þá sagði mað­ur­inn hennar stór­hneyksl­aður: „Auðvitað keyrum við hana heim með tösk­urnar og förum svo í heim­sókn til mömmu þinnar. Hvaða vit­leysa er þetta?“ Vera herpti saman var­irnar og þagði, og ók sem leið lá heim til mín. Hún kvaddi varla.

Breytingar

Nokkru eftir lát mömmu flutti ég út á land. Ég elti ást­ina, má segja, en mað­ur­inn reynd­ist annar en hann virt­ist fyrst, svo sam­bandið stóð ekki lengi. Þá var ég orðin yfir mig hrifin af þessum bæ, fólk­inu þar og vinnu­staðnum svo ég fann mér góða íbúð þar á leigu.

Annað slagið skrapp ég til Reykja­víkur yfir helgi og í eitt skipti bað ég um gist­ingu hjá Veru systur sem þá bjó í Vest­ur­bænum, í göngu­færi við mið­bæ­inn.

Ég nýtti þessar helgar vel, heim­sótti börnin mín, fór í leik­hús, bíó, út að borða, á tón­leika. Vinkona mín sagði eitt sinn að ég gerði meira á einni helgi en hún á mörgum mán­uðum.

Systir mín er gest­risin en ég naut ekki sama við­móts og aðrir gestir hennar. Þetta skipti sem ég gisti hjá henni hafði ég verið á síð­ustu stundu, færðin var slæm og ég hafði rétt tíma til að henda inn tösk­unni minni og snyrta mig örlítið áður en ég rauk út að borða og síðan út á lífið. Vera rétti mér úti­dyra­lykil áður en ég fór.

Við vin­kon­urnar skemmtum okkur vel og ég var ekki komin heim til Veru fyrr en rúm­lega þrjú um nótt­ina. Allt var dimmt og ég lædd­ist inn. Vera hafði sagt að ég ætti að sofa í sjón­varps­her­berg­inu svo ég paufað­ist þangað og kveikti á lampa. Ég átti von á að finna sæng og kodda á sóf­anum en þarna var bara þunnt silki­teppi og nokkrir skraut­púðar. Ég lagði ekki í að læð­ast upp á efri hæð­ina í leit að rúm­fötum og vekja óvart heim­il­is­fólkið svo ég reyndi að koma mér fyrir með þetta.

„Ég átti von á að finna sæng og kodda á sóf­anum en þarna var bara þunnt silki­teppi og nokkrir skraut­púðar.“

Mér var ískalt þegar ég vakn­aði en náði að brjóta saman teppið og setja fínu púð­ana á sinn stað áður en aðrir komu á fætur. Vera spurði mig ekki einu sinni hvernig ég hefði sofið. Ég þakk­aði bara fyrir mig og dreif mig út.

Það hafði margt rifj­ast upp fyrir mér þennan morgun, eins og upp­á­búin rúm fyrir aðra gesti, t.d. bróður okkar sem bjó fyrir austan. Ekki að ég hefði ætl­ast til þess að hún byggi um mig, það hefði bara verið sjálf­sagt að skilja eftir sæng og kodda ásamt sæng­ur­fötum. Þegar ég bjó fyrir norðan gistu hún og mað­ur­inn hennar hjá mér og ég bjó að sjálf­sögðu um þau í rúm­inu mínu, svaf á meðan í stof­unni sem mér fannst alveg sjálf­sagt.

Hæðnisbros eða geispi

Í gegnum tíð­ina hef ég auð­vitað sagt við Veru: „Af hverju læt­urðu svona?“ eða „Þetta var and­styggi­lega sagt!“ en þá er ég búin að missa húmor­inn, að hennar sögn. „Húmor“ sem hún notar sjaldn­ast þegar aðrir heyra til. Ef ég reyndi að telja allt upp sem hún hefur sagt eða gert, myndi það eflaust kosta leið­indi af hennar hálfu. Auk þess leyfir stolt mitt það ekki, ég vil ekki að hún viti að þetta snertir mig, ekki eftir öll þessi ár. Ég gæti sagt allt við vin­konur mínar, bara alla aðra, hreinsað and­rúms­loftið ef þyrfti, en það á alls ekki við um Veru. Hún vill á ein­hvern hátt smækka mig, eins og sanna fyrir mér að hún sé miklu klár­ari, flott­ari, sæt­ari og dug­legri en ég … sem hún eflaust er. Hvort hún er ein­fald­lega and­styggi­leg að upp­lagi eða með svona mikla minni­mátt­ar­kennd gagn­vart mér, veit ég ekki. Hún getur verið mjög kald­hæðin en aldrei á eigin kostnað, bara ann­arra.

Á yfir­borð­inu virð­umst við vera í góðu sam­bandi. Það er erfitt fyrir aðra að sjá nokkuð, hún gætir þess vel, og börnin mín dýrka hana. Hæðn­is­bros eða þreytu­legur geispi þegar ég er í miðri frá­sögn er alvana­legt. Þetta slær mig þó minna út af lag­inu en áður, ég hef alltaf haft ágætt sjálfs­traust og er orðin vön fram­komu hennar. En sama hvort ég reyni að vera góð við hana eða svara henni fullum hálsi, virkar hvor­ugt. Svo er hún auð­vitað ekki alltaf leið­in­leg. Mér þykir vænt um hana en líkar ekki við hana.

Ég hef frá­bært fólk í kringum mig, góða vini og ynd­is­lega ætt­ingja, og þyrfti ekki að svekkja mig á þessu. Ég geri það samt, þetta er systir mín og mig langar til að við séum vin­konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina