Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ein eftirlifandi – „Ég er ekki heppin“

Árið 1972 hrap­aði flug­vél úr 33 þús­und feta hæð eftir að sprengja sprakk í far­þega­rými hennar. Ótrúlegt en satt en ein mann­eskja lifði flug­slysið af, hin 22 ára bosn­íska flug­freyja Vesna Vulović.

Ein eftirlifandi – „Ég er ekki heppin“

Vesna átti ekki að vera í þess­ari vél en mis­tök voru gerð og nafna hennar, Vesna Nicolié, var send í flugið sem henni hafði verið ætlað. Okkar Vesna ásamt fleirum flaug til Kaup­manna­hafnar til að leysa af áhöfn sem átti að hvíl­ast og flaug því með flugi 364 júgóslav­neska félags­ins JAT þann 26. jan­úar 1972. Flug vél­ar­innar var frá Stokk­hólmi til Belgrad með við­komu í Kaup­manna­höfn og Sagreb. Vesna var alsæl með rugl­ing­inn sem gaf henni tæki­færi til þess að sjá Danmörku í fyrsta sinn.

Sprengja undir sæti

Enginn vissi af stórri sprengju sem hafði verið komið fyrir undir sæti rétt fyrir framan vinstri væng vél­ar­innar. Það gerðu hryðju­verka­sam­tökin Ustache, öfga­hægri-nas­ista­sam­tök í Króatíu, sem voru á þeim tíma ábyrg fyrir 20 öðrum árásum.

Sprengjan sprakk þegar flug­vélin var í 33.000 feta hæð yfir borg­inni Srbska-Kamenice. Vélin brotn­aði í tvennt og hrap­aði til jarðar með 28 far­þegum og áhöfn. Hrapið tók þrjár ógn­ar­langar mín­útur áður en flug­vélin rakst á fjallstind og sprakk.

Þýskur maður var fyrstur á vett­vang og fann Vesnu. Hún lá undir líki og hluti af þjón­ustu­vagni hafði stung­ist inn í bakið á henni. Maðurinn hlúði að henni eftir bestu getu þar til frek­ari hjálp barst. Hún var flutt á sjúkra­hús og í fyrstu var henni ekki hugað líf. Hún reynd­ist vera með þrjá brotna hryggjar­liði, mikla höf­uð­á­verka og var fót­brotin á báðum fótum.

Vesna var í dái í þrjá daga eftir slysið.

Eftir að hafa legið í dái í þrjá daga, vakn­aði hún og bað um sígar­ettu. Hún reynd­ist vera lömuð fyrir neðan mitti. Tveimur vikum seinna fékk hún loks að vita hvað hafði gerst, sjálf mundi hún ekk­ert eftir slys­inu.

„Ég er ekki heppin“

Seinna gekkst Vesna undir skurð­að­gerð þar sem tókst að gefa henni mátt í fæt­urna. Í sept­em­ber, eða tæpum átta mán­uðum eftir slysið, var hún orðin spennt að kom­ast aftur til vinnu.

Hún mundi ekk­ert eftir slys­inu og slapp því við and­legar afleið­ingar þess, eins og martraðir og áfallastreituröskun. Hún horfði á flug­slysa­myndir án þess að það snerti hana meira en aðra.

„…ef ég væri heppin hefði ég aldrei lent í þessu slysi.“

„Ég er ekki heppin þótt öllum finn­ist það, ef ég væri heppin hefði ég aldrei lent í þessu slysi,“ var haft eftir henni.

Árið 1985 komst Vesna í Guinnes-heims­meta­bók­ina fyrir að hafa lifað af hæsta fall allra án fall­hlífar. Vesna lést 23. des­em­ber 2016 í Belgrad, 66 ára gömul.

Vesna lést árið 2016, þá 66 ára gömul.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina