Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Ekki alveg búinn að átta mig á því hvað þetta er geggjað“

Erlingur Óttar Thorodd­sen skrifar hand­rit að nýrri hroll­vekju í fullri lengd, Midnight Kiss, sem verður frum­sýnd í næsta mán­uði á streym­isveit­unni Hulu. Leik­stjór­inn fékk aðeins viku til að full­klára hand­ritið.

„Ekki alveg búinn að átta mig á því hvað þetta er geggjað“
Erlingur ásamt hóp leik­ara úr Midnight Kiss.|Erlingur sendi frá sér kvik­mynd­ina Rökkur árið 2017 en hún fékk fína aðsókn og góða dóma.|

„Þetta er mjög skemmti­legt og spenn­andi og pínu ótrú­legt að millj­ónir manna eigi eftir að horfa á eitt­hvað sem ég skrif­aði. Ég hef aldrei gert neitt sem nær til svona stórs áhorf­enda­hóps og ég held að ég sé eig­in­lega ekki alveg búinn að átta mig á því hvað þetta er geggjað,“ segir Erlingur Óttar í skýj­unum með verkið.

Erlingur Óttar er með mörg járn í eld­inum um þessar mundir. Hann vinnur m.a. að banda­rískri útgáfu af mynd sinni Rökkur og að mynd sem byggir á spennu­sög­unni Kulda eftir Yrsu Sig­urð­ar­dóttur.

Midnight Kiss er hluti af sjón­varps­s­eríu á streym­isveit­unni Hulu sem heitir Into the Dark og er fram­leidd af Blumhouse Productions, sem hefur m.a. sent frá sér Get Out, Insidious, Sinister og Paranormal Activity-mynd­irnar. Serían sam­anstendur af tólf sjálf­stæðum níu­tíu mín­útna hroll­vekjum sem koma út mán­að­ar­lega og tengj­ast hátíð hvers mán­aðar, hrekkja­vöku, þakk­ar­gjörð­ar­há­tíð­inni, jól­unum og svo fram­vegis. Midnight Kiss er nýárs-hroll­vekjan og kemur út rétt fyrir ára­mót, eða 27. des­em­ber, að sögn Erlings.

„Ég hef aldrei gert neitt sem nær til svona stórs áhorf­enda­hóps.“

En um hvað fjallar sagan? „Hún er um vina­hóp sem hefur þekkst lengi og ver alltaf ára­mót­unum saman. Þau eru með pínku spes ára­móta­hefð sem þau kalla mið­næt­ur­kossa­leik­inn en hún gengur út á að reyna tæla ein­hvern ókunn­ugan þegar þau fara út á lífið í stað þess að bíða og von­ast eftir því að ein­hver kyssi þau um ára­mótin. Þegar líður á kvöldið birt­ist grímu­klæddur aðili sem þau léku einu sinni grátt í leiknum og leitar hefnda. Er sam­band vin­anna nógu sterkt til þess að þau geti hjálpað hvert öðru að lifa nótt­ina af eða eru þau sínir verstu óvinir þegar allt kemur til alls?“ lýsir hann án þess að vilja fara nánar út í sögu­þráð­inn.

Fékk viku til að klára handritið

Hvernig kom til að hann var feng­inn til að skrifa sög­una? „Ég hef verið að hitta fólkið hjá Blumhouse af og til á síð­ustu miss­erum í tengslum við ýmis önnur verk­efni. Dag einn höfðu þau sam­band og báðu mig um að koma með hug­mynd að hand­riti fyrir nýárs­þátt Into the Dark. Ég fékk dag til að koma með hug­mynd­ina. Einu fyr­ir­mælin voru að þau vildu slas­her-mynd með hinsegin fókus. Þannig að ég lagði höf­uðið í bleyti og Midnight Kiss varð meira og minna til á þessum eina degi,“ segir hann og bætir við að fólk­inu hjá Blumhouse hafi lit­ist svo vel á hug­mynd­ina að fyr­ir­tækið hafi keypt hana á staðnum, þó með þeim fyr­ir­vara að hand­ritið klárað­ist á viku.

„Þetta gekk sem betur fer upp, en það var smá­stress. Ég fór varla út úr húsi þessa vik­una,“ segir hann og hlær, en um leið og hand­ritið var til­búið var farið í tökur.

Erlingur sendi frá sér kvik­mynd­ina Rökkur árið 2017 en hún fékk fína aðsókn og góða dóma. Björn Stef­áns­son fer með eitt aðal­hlut­verkið.

Spurður út í þær segir hann þær hafa gengið vel og það hafi verið draumur að fá að vinna með öllum sem komu að gerð hroll­vekj­unnar. „Leik­ar­arnir voru algjör­lega frá­bærir. Ég fékk að vera með í öllu casting-ferl­inu og við end­uðum með rosa­flottan hóp af ungum nýst­irnum sem hafa leikið í þáttum eins og Euphoria, Veep, The Morning Show og eru öll á hraðri upp­leið. Þau náðu vel saman og voru strax orðnir góðir vinir, sem ég held að sjá­ist vel í loka­út­gáfu mynd­ar­innar.“

Hann segir sam­starfið við leik­stjór­ann Carter Smith, sem er eflaust þekkt­astur fyrir hryll­ings­mynd­ina The Ruins, líka hafa verið gott. „Carter er ótrú­lega vina­legur og með báða fætur á jörð­inni. Hann er mik­ill Íslands­vinur og hafði séð mynd­ina mína Rökkur, sem var ástæðan fyrir því að hann hafði áhuga á að lesa hand­ritið. Ég hefði ekki geta fengið betri sam­starfs­mann og við unnum náið að hand­rit­inu alveg þar til mynda­vél­arnar fóru að rúlla.“

Fyndin, spennandi og smábrjáluð

Midnight Kiss kemur út á Hulu 27. des­em­ber en Erlingur seg­ist auk þess vita að Blumhouse hafi verið að selja hroll­vekj­urnar alþjóð­lega, bæði sem stakar kvik­myndir og sem hluta af Into the Dark-ser­í­unni, þannig að það sé aldrei að vita nema Midnight Kiss endi á íslenskri sjón­varps­stöð eða á VOD-inu ein­hvern tím­ann. „Ég ætla að minnsta kosti að horfa mynd­ina í góðra vina hópi,“ segir hann glaður. „Ég held að þetta sé mjög góð par­tí­mynd; hún er fyndin, spenn­andi og smá­brjáluð. Mjög við­eig­andi um ára­mótin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ