Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Mamma faldi Eminem-plötuna

Jakob Valby, Alex­ander Gabríel og Danni Croax skipa hljóm­sveit­ina Valby Bræður. Félag­arnir hafa verið áber­andi í rapp­sen­unni í gegnum árin og voru að senda frá sér sína fyrstu plötu, sem kall­ast ein­fald­lega Valby Bræður.

Mamma faldi Eminem-plötuna

„Ef við ættum að lýsa plöt­unni í einni setn­ingu myndum við segja „orig­inal instant classic“, það dugir ekk­ert minna,“ útskýrir Jakob og segir að þeir hafi alla tíð gefið öll sín lög jafn­óðum út á YouTube en séu aðeins að breyta um taktík þessa dag­anna. „Þetta er okkar fyrsta plata í fullri lengd og er hún búin að vera mjög lengi í vinnslu. Sem dæmi var Alex lengi að vinna text­ann við lagið Fer Upp, sem er nýjasta lag plöt­unnar. Þar segir hann: „Ég er tutt­ugu og sex, tjill­andi það er ekk­ert stress, barna­stjarna er ekki Alex, þá væri Gangsta rapp búið að segja bless.“ En Alex­ander er 28 ára í dag og var því tvö ár að vinna text­ann.

Bræð­urnir Jakob og Alex­ander byrj­uðu snemma að hlusta á rapp eða í kringum 2000, þá bara ungir drengir í Danmörku þar sem þeir bjuggu. „Við byrj­uðum ábyggi­lega fyrst að hlusta á El Ron Harald á kasettu sem er frekar mikið danskt „hill­billy“-rapp en með góðan húmor engu að síður. Danskt rapp hefur nefni­lega veitt okkur mik­inn inn­blástur alla tíða; þar má helst nefna Marwan, Troo L.s, Suspekt; L.O.C og Niarn, en af nýrri artistum má nefna Sivas, Mellem­Finga­Musik og Gilli. Síðan upp­götv­uðum við Tupac og svo­leiðis klass­ískt rapp og fyrstu Eminem-plöt­una. Mamma var reyndar alls ekki hrifin af því að heyra henni bla­stað heima og faldi geisla­diskinn að lokum fyrir okkur,“ rifjar Jakob upp og hlær.

Stuttu seinna eftir að bræð­urnir fóru sjálfir að skrifa texta og „freestyla“ byrj­aði Jakob í sinni fyrstu rapp­hljóm­sveit, Rap Hvad Du Kan. Í kringum 2002 flutti Alex heim til Íslands 12 ára gam­all og Jakob fylgdi í kjöl­farið fjórum árum síðar. Eftir að bræð­urnir sam­ein­uð­ust á nýjan leik stofn­uðu þeir Valby Bræður sem hét í fyrstu Viking Republic. „Fólki fannst mjög sér­kenni­legt að bandið væri með enskt nafn þar sem við vorum að rappa á íslensku,“ segir Jakob. „Seinna fest­ist svo Valby Bræðra nafnið við okkur, eftir að fólk fór að kalla okkur það í bænum.“

„Með hlið­sjón af því sem maður heyrir er greini­legt að senan er á upp­leið og alltaf að verða fjöl­breytt­ari. Hvort við fílum svo allt sem er vin­sælt er önnur saga.“

Nú er rapp­senan á Íslandi í miklum blóma. Hvert haldið þið að hún sé að stefna? „Við Alex­ander erum aðal­lega að hlusta á tón­list­ina sem við erum sjálfir að gera og vinna í og svo heyrir maður oft í útvarp­inu það helsta sem er í gangi. Með hlið­sjón af því sem maður heyrir er greini­legt að senan er á upp­leið og alltaf að verða fjöl­breytt­ari. Hvort við fílum svo allt sem er vin­sælt er önnur saga.“

Spurður í lokin hvað sé fram undan svarar Jakob að þeir Valby Bræður ætli að gefa út einn eða tvo „sín­gúla“ fyrir jól. „Við erum líka byrj­aðir að vinna að næstu plötu sem kemur út von­andi snemma á næsta ári. Eitt er a.m.k. víst að það verður ekki jafn­löng bið í næsta verk­efni frá okkur,“ segir hann og bendir les­endum á að kíkja á plöt­una Valby Bræður en hana er hægt að nálg­ast á Laug­ar­ásvape, Macland við Laugaveg, í versl­un­inni Lucky Records við Hlemm og á Spotify.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar