Karl Kristján myndlistarmaður, sem er meðal annars þekktur fyrir að hafa málað framhliðina á bakaríinu Brauð og Co. á Vitastíg, mun skapa litríkan myndgjörning. Allir fá krítar til að skreyta gangstéttina í fallegum litum og boccia-boltar verða til staðar fyrir þá sem vilja spreyta sig í boccia. Þá verða Lurkar í boði Emmessíss. Viðburðurinn hefst á morgun, laugardag, klukkan 14 og stendur yfir til klukkan 17.































Athugasemdir