Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Einskonar hin hliðin á hennar texta“

Tón­list­ar­mað­ur­inn Franz Gunn­ars­son hefur í nægu að snú­ast þessa dag­ana en hann var að senda frá sér lagið Hjartafleygur, undir verk­efn­inu Paunk­holm. Að auki er hann mark­aðs­stjóri fyrir Hús Sjáv­ar­kla­s­ans sem rekur Hlemm Mathöll og Granda Mathöll.

„Einskonar hin hliðin á hennar texta“

„Innan klas­ans starfar fjöld­inn allur af spenn­andi fyr­ir­tækjum og frum­kvöðlum með ótrú­lega flottar hug­myndir í fartesk­inu,“ segir Franz. En á árs afmæli Granda Mat­hallar um dag­inn var opnað nýtt rými sem kall­ast Grandi Food Hall & Fis­h­mar­ket þar sem hægt er að horfa inn í Fisk­markað Íslands þegar verið er að landa fisknum á bryggj­unni fyrir utan Mat­höll­ina.

„Þetta er við­burða­rými sem við erum að und­ir­búa sem tón­leika­stað og þar er ég klár­lega á heima­velli haf­andi bókað og auð­vitað spilað þús­undir tón­leika,“ segir hann og bætir við að stað­ur­inn muni til að byrja með hýsa óraf­magn­aða eða lág­stemmda tón­leika. „Svo munum við sjá hvernig rýmið virkar fyrir mis­mun­andi stefnur. Eitt er víst að það verður geggjuð upp­lifun að hita sig upp með mat og drykk í Mat­höll­inni og skella sér svo á flottan konsert.“

Hefur ekki breyst í „púða“

Eins og fyrr segir var Franz að senda frá sér lagið Hjartafleygur og segir hann að það hafi verið samið í einni stuttri lotu, reyndar í annarri tón­teg­und en allt hafi smollið saman hratt og örugg­lega.

„Textinn tók nokkra daga því ég var ekki með neitt umfjöll­un­ar­efni í sigt­inu. Svo var ég að skutla stráknum mínum þegar lagið Erase You með Vök kom í útvarp­inu og þá fékk ég hug­mynd að búa til sögu um við­fangs­efnið sem Margrét Rán, söng­kona Vök, vill eyða, svona eins­konar hin hliðin á hennar texta. Þegar umfjöll­un­ar­efnið var komið þá setti ég text­ann saman á tutt­ugu mín­útum,“ útskýrir hann. „Textinn er sem sagt upp­spuni með enga stoð í raun­veru­leik­anum.“

„Ég fæ reyndar enn þá mikla rokkút­rás með Dr. Spock þannig að ég hef ekki breyst í algjöran „púða“ þó ég búi til og syngi popp­aða músík í hjá­verkum.“

Hvernig hann hafi þró­ast tón­list­ar­lega séð í gegnum árin seg­ist hann hafa mild­ast með árunum. „Ég kom inn í þennan bransa á síð­ustu öld sem rosa­lega harður rokk­ari með sítt hár og klæddur leðri,“ lýsir hann. En Franz spil­aði „thrash metal“ með hljóm­sveit­inni In Memoriam. „Þá var dauðarokkið alls­ráð­andi, svo lá leiðin í fönkað rokk með Quicksand Jesus og svo elektrónískt rokk með Ensími. Ég fæ reyndar enn þá mikla rokkút­rás með Dr. Spock þannig að ég hef ekki breyst í algjöran „púða“ þótt ég búi til og syngi popp­aða músík í hjá­verkum.“

Þjónar sem aukasjálf

Hvernig kom nafnið Paunk­holm til? „Nafnið kom til í partíi fyrir margt löngu. Ég var eitt­hvað að pönk­ast í glensi við Georg Holm, bassa­leik­ara Sigur Rósar, og þannig fædd­ist karakt­er­inn Paunk­holm. Ég bjó svo til Paunk­holm-net­fang sem ég nota enn þá og nú þjónar hann sem mitt auka­sjálf til að dúndra út í kosmós­inn músík sem passar ekki fyrir hin tón­list­ar­verk­efnin mín.“

Hvað er svo fram undan hjá þér og Paunk­holm? „Hugs­an­lega kemur plata frá Paunk­holm á næsta ári en ég er í gírnum að semja fyrir Paunk­holm þessa dag­ana. Ég mun að öllum lík­indum fara í stúdíó fyrir jól og negla inn 3-4 lög og halda svo áfram á næsta ári,“ segir Franz sem er einnig á leið­inni í stúdíó með tón­list­ar­konu að hljóð­rita hennar fyrstu plötu og að fara að hljóð­rita með nýju rokk­bandi sem rokkunn­endur mun heyra meira af á næst­unni. „Svo er á dag­skrá að gefa út sjöttu plötu með Ensími í nán­ustu fram­tíð sem og nýtt efni með Dr. Spock. Já, svo stefni ég að því að gera tvær rokk­messur (tri­butes) áður en árið er liðið. Að lokum hvet ég bara les­endur Albumm.is að tékka á lag­inu og ef ykkur líkar að deila því með vinum og vanda­mönnum.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Jón Lindsay

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar