Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Hér á ég heima og heima er best“

Tón­list­ar­mað­ur­inn Krummi Björg­vins­son var að senda frá sér nýtt lag, Stories To Tell. Þetta er sveit­arokk og segir Krummi að hann hafi ætíð verið mik­ill unn­andi sveita­tón­listar, rokks og blús af gamla skól­anum.

„Hér á ég heima og heima er best“

„Sú tón­list hefur alltaf verið mín hjart­ans bæn,“ segir hann. „Allt mitt plötu­safn er mest­megnis vín­il­plötur frá 40´s og 70´s. Þetta var tón­listin sem ég ólst upp við á mínu heim­ili í bland við hipparokk. Tónlist frá Sun Rec, Motown, Chess Rec og það var einnig mikið um Doo Wop-tón­list, sem ég gjör­sam­lega elska af öllu hjarta. Það var ekki aftur snúið þegar maður heyrði í Elvis og Bítlunum í fyrsta skipti.“

„Þetta er ekk­ert nýtt fyrir mér, sumt fólk er bara fljótt að gleyma og heldur að maður sé að stíga sín fyrstu spor í þess­ari tón­list­ar­stefnu.“

Spurður hvort hann sé að færa sig meira út í sveita­tón­list, seg­ist hann hafa byrjað að gera kán­trískotna kassagít­ar­tón­list árið 2001 með Franz Gunn­ar­syni undir nafn­inu The Moody Company. „Einnig vil ég nefna hljóm­sveit­ina Esju með Daníel Ágústi Har­alds­syni sem var starf­andi 2007-2009. Þetta er ekk­ert nýtt fyrir mér, sumt fólk er bara fljótt að gleyma og heldur að maður sé að stíga sín fyrstu spor í þess­ari tón­list­ar­stefnu,“ útskýrir hann og bætir við að þegar hann setj­ist niður einn með kassagít­ar­inn þá sé þetta tón­listin sem komi frá honum sjálfum. „Meló­díurnar verða að vera byggðar á algjörri ein­lægni. Hér á ég heima og heima er best.“

Aðspurður segir hann að þung­arokkið sé alls ekki komið á hill­una. „Ég elska „heavy“ rokk og þá sér­stak­lega þungt rokk frá því í gamla daga,“ svarar Krummi en eins og margir vita var hann í þung­arokksveit­inni Mínus og svo í Legend. „Ég er í hljóm­sveit sem svalar mínum þorsta fyrir þungt rokk þannig að ég er góður. Krummi og Kór­drengirnir eru svo­lítið „heavy“.“

„Veganæs heldur mér á jörð­inni“
Krummi hefur í nægu að snú­ast þessa dag­ana en auk þess að vinna að sinni fyrstu sóló­plötu rekur hann ásamt konu sinni vegan­veit­inga­stað­inn Veganæs. En hvernig er að tvinna þessu öllu saman? „Þetta er mikil vinna og stundum stress en þetta elskar maður að gera. Gerðu það sem gerir þig ham­ingju­saman. Ég er enn þá að læra að ham­ingjan er ákvörðun. Ham­ingjan kemur innan frá og því þarftu að muna að það er eng­inn annar en þú sem getur gert þig ham­ingju­saman. Ég reyni að taka helg­arnar í að spila og semja og pæla í tón­list. Veganæs heldur mér á jörð­inni og tón­listin fer með mig til himn­anna. Gott sam­starf.“

„Ég er enn þá að læra að ham­ingjan er ákvörðun. Ham­ingjan kemur innan frá og því þarftu að muna að það er eng­inn annar en þú sem getur gert þig ham­ingju­saman.“

Stefnan er svo sett á að gefa út plöt­una í vetur eða byrjun næsta árs en þangað til mun hann senda frá sér eitt og eitt lag. „Þetta er sin­ger/songwriter-plata sem kallar fram allan til­finn­inga­skal­ann. Ég er reyndar með þriggja hljóm­plötuplan því ég er búinn að semja heilan hell­ing af lögum og er ekki hættur. Maður verður að taka við gjöfum lista­gyðj­unnar.“

Spurður hvað sé fram undan og hvort planið sé að fara erlendis, svarar hann að svo sé. „Ég er með nokkur járn í eld­inum varð­andi það. Sjáum hvað setur,“ útskýrir hann hugs­andi. „Við Kór­drengirnir ætlum okkur að spila út um allar trissur. Taka túr um landið á næsta ári og ferð­ast á vit ævin­týr­anna. Segja sögur í tón­list­ar­legum skiln­ingi,“ útskýrir hann og vill bæta við að hann vilji þakka öllum inni­lega fyrir þær frá­bæru við­tökur sem lagið og mynd­bandið við það hefur fengið. „Verið góð hvert við annað, dýrin og jörð­ina, það er lyk­ill­inn af far­sælu lífi fyrir alla jarð­ar­búa.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Brynjar Snær

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar