Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Leikdómur: Sex í sveit – „Blessunarleg hlátursprengja nú sem fyrr“

Silja Aðal­steins­dóttir, íslensku- og bók­mennta­fræð­ingur, þýð­andi og rit­stjóri skrifar á heima­síðu Tímarits Máls og Menn­ingar leik­dóm um Sex í sveit sem frum­sýnt var í Borg­ar­leik­hús­inu laug­ar­dag­inn 5. októ­ber.

Leikdómur: Sex í sveit – „Blessunarleg hlátursprengja nú sem fyrr“
Vala Kristín og Jörundur í hlut­verkum sínum.||Jörundur og Sólveig í hlut­verkum sínum.||

Höfundur: Marc Camoletti
Leik­stjóri: Bergur Þór Ing­ólfs­son
Þýðandi: Gísli Rúnar Jónsson
Leikarar: Haraldur Ari Stef­áns­son, Jörundur Ragn­ars­son, Katrín Halldóra Sig­urð­ar­dóttir, Sigurður Þór Ósk­ars­son, Sólveig Guð­munds­dóttir og Vala Kristín Eiríks­dóttir
Leikmynd: Petr Hlousek
Búningar: Stefanía Adolfs­dóttir
Lýsing: Þórður Orri Pét­urs­son
Leik­gervi: Guðbjörg Ívars­dóttir
Hljóð: Þorbjörn Stein­gríms­son

Sex í sveit í upp­setn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins er bless­un­ar­leg hlát­ur­sprengja nú sem fyrr. Bergur Þór Ing­ólfs­son leik­stjóri hefur valið vel í hlut­verkin, þarna eru leik­arar sem víla ekki fyrir sér að halda uppi sturluðu fjöri í hátt í þrjá klukku­tíma en fá að vísu vel þeg­inn mat­ar­tíma í miðju kafi. Verkið er eignað franska farsa­skáld­inu Marc Camoletti en eins og Þór­hildur Þor­leifs­dóttir sýnir fram á í nýlegri færslu á Facebook er leik­ritið sem við sjáum hér og nú – alla vega flest það sem við hlæjum mest að – eftir Gísla Rúnar Jónsson þýð­anda og stað­fær­anda. Það hefur meira að segja verið bætt inn nýjum ferskum brönd­urum sem komu áhorf­endum svo á óvart í gær­kvöldi að þeir köfn­uðu næstum því úr hlátri.

Jörundur og Sólveig í hlut­verkum sínum.

Benedikt (Jörundur Ragn­ars­son) er með allt á hreinu: Hann er kom­inn norður í glæsi­bú­stað­inn þeirra hjóna sem er reistur á leifum af sveitabæ með fjós­inu undir bað­stof­unni. Þórunn kona hans (Sólveig Guð­munds­dóttir) ætlar til mömmu sinnar á Egils­stöðum og Benni hefur boðið flottu hjá­kon­unni sinni norður, fyr­ir­sæt­unni Sóleyju (Vala Kristín Eiríks­dóttir). Til að gera meira úr skemmt­un­inni hefur hann líka boðið Ragnari vini sínum (Sigurður Þór Ósk­ars­son) sem má auð­vitað taka með sér eina gellu ef hann vill, og til að vera flottur á því hefur Benni pantað kokk frá Sax­baut­anum á Akhur­eyri til að elda lúxús­mat handa þeim. Hljómar full­komið.

En Þórunn stein­hættir við að fara þegar hún fréttir að Ragnar sé á leið­inni því þau hafa verið að krunka saman. Hún sýkir mömmu sína umsvifa­laust af inflú­ensu og um leið er áætlun Benna ónýt. Þegar hjónin fara að kaupa í mat­inn brýnir Benni fyrir Ragnari að setja Sóleyju inn í málin af því að þau verði að þykj­ast vera par til að blekkja Þórunni. Ragnar hlýðir auð­vitað en stúlkan sem kemur fyrst í hús er alls ekki Sóley heldur harð­mælti kokk­ur­inn Sólveig (Katrín Halldóra Sig­urð­ar­dóttir) sem skilur ekk­ert í því hvers vegna henni er ætlað að vera kærasta ein­hvers! Þegar svo Sól­eyj­arpæjan kemur er ekk­ert hlut­verk eftir handa henni í vit­leys­unni nema kokks­ins – og kann hún að elda? Þið megið giska.

En bíðið við, þetta eru bara fimm per­sónur. Enda er von á einum enn undir lok kvölds, nefni­lega eig­in­manni Sól­veigar, Benóný (Haraldur Ari Stef­áns­son), sem kemur til að sæk­hja konu sína. Þá kemst allt upp en það gerir ekk­ert til lengur. Og endir­inn sendir mann glaðan út í nótt­ina.

Hér er allt sem þarf í brjál­aðan skemmti­leik og hann er líka algert drep. Kannski tóku þau aðeins of mikið út af orku­bank­anum, Jörundur og Sólveig, á fyrsta hálf­tím­anum, maður vissi ekki alveg hvernig þau ætl­uðu að halda út á þessum hraða allt kvöldið. En Sigurður Þór sló strax á æsing­inn með því að dæsa yfir flóknum fyr­ir­mælum Benna og taka þreytu­lega um höfuð sér og Vala Kristín og Katrín Halldóra voru alveg poll­ró­legar þó að kröf­urnar til þeirra væru ger­sam­lega stjórn­lausar. Það var sönn nautn að fylgj­ast með þeim báðum vinda sig inn og út úr hring­leik blekk­ing­anna.

Leikmynd Petrs Hloušek er hár­rétt. Opið rými með fimm útgöngu­leiðum, fernum dyrum og einum stiga upp á efri hæð. Búningar Stefaníu Adolfs­dóttur hæfa týp­unum vel. Þórunn er einkar kven­leg og svo­lítið mið­aldra miðað við glæsig­ell­una Sóleyju sem er fullir tveir metrar á hæð í upp­hækk­uðu skónum sínum, þráð­mjó og geislandi. Benedikt reynir sitt besta til að sam­svara henni frekar en eig­in­kon­unni í tauinu, streit­ist við að yngja sig, en Ragnar er í slökum sum­ar­bú­staða­stíl. Akur­eyr­ing­arnir eru svo sér á báti enda töff týpur og mót­or­hjóla­kappar. Hljóð­stjórnin er flókin vegna afskipta herra Google en Þorbjörn Stein­gríms­son sigrar í þeirri bar­áttu. Og lýs­ing­una sjá þeir herra Google og Þórður Orri Pét­urs­son um og má ekki á milli sjá hvor er snjall­ari!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ