Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kjósendur VG: Konur, grænmetisætur sem hafa áhyggjur af hlýnun jarðar en horfa lítið á Netflix

Miklar breyt­ingar hafa orðið á íslensku stjórn­mála­lands­lagi á und­an­förnum ára­tug. Þjóðin hefur snúið baki við kerfi sem byggði á fjór­flokki, sem rað­aði sér frá vinstri til hægri á hinum klass­íska póli­tíska skala, og svo stundum einum í við­bót sem end­ur­spegl­aði oftar en ekki stemn­ing­una í sam­fé­lag­inu á þeim tíma.

Kjósendur VG: Konur, grænmetisætur sem hafa áhyggjur af hlýnun jarðar en horfa lítið á Netflix

Síðustu árin hefur fylgi fjór­flokks­ins hrunið úr því að vera að jafn­aði yfir 90 pró­sent í 62-65 pró­sent í síð­ustu tvennum kosn­ingum sem fram hafa farið. Tími sterkra tveggja flokka rík­is­stjórna virð­ist lið­inn og í síð­ustu kosn­ingum náðu átta flokkar á þing. Eins og staðan er í dag mætti segja að þær blokkir sem teikn­ast hafa upp séu þannig að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir ólíku: Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn, myndi eina slíka, frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir í stjórn­ar­and­stöðu (Sam­fylk­ing, Viðreisn og Píratar) aðra og Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins mál­efna­lega þá þriðju, þótt flokk­arnir tveir muni lík­lega aldrei geta unnið saman vegna per­sónu­legs ágrein­ings sem á rætur sínar að rekja til Klaust­urs­máls­ins svo­kall­aða.

En hverjir eru það sem kjósa þessa flokka? Og eiga kjós­endur innan hverrar blokkar eitt­hvað sér­stakt sam­eig­in­legt? Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda hvers flokks er.

Þetta er hluti af stærri umfjöllun Kjarnans í nýjasta helg­ar­blaði Mannlífs.

Flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur er sá rík­is­stjórn­ar­flokkur sem goldið hefur mest fyrir hið óvenju­lega rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Sam­an­lagt fylgi hans í ágúst og sept­em­ber mælist 12,2 pró­sent, sem þýðir að hátt í þriðj­ungur af fylgi flokks­ins er horf­inn frá síð­ustu kosn­ingum.

Tölur MMR sýna að konur eru mun lík­legri en karlar til að kjósa Vinstri græn. Stuðn­ingur hans er lang­mestur á Norð­ur­landi þar sem hann mælist stærstur allra flokka með 18,4 pró­sent stuðn­ing á heima­slóðum fyrr­ver­andi for­manns­ins Stein­gríms J. Sig­fús­sonar. Eina lands­svæðið utan þess þar sem fylgið er í takt við heild­ar­fylgið er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Annars staðar á land­inu eru Vinstri græn með eins stafa fylgi og minnst á Aust­ur­landi, þar sem ein­ungis 5,9 pró­sent kjós­enda segj­ast styðja flokk­inn.

Flestir kjós­endur Vinstri grænna eru með háskóla­menntun en flokk­ur­inn nýtur líka ágætis stuðn­ings á meðal þeirra sem hafa ein­ungis lokið grunn­menntun. Lægri hluti milli­tekju­hópa er lík­leg­astur til að kjósa flokk­inn og það eru kannski ekki óvænt tíð­indi að flokkur með orðið „vinstri“ í nafn­inu sínu njóti minnst stuðn­ings hjá tekju­hæsta hópnum í sam­fé­lag­inu.
Þegar fyrri kann­anir árs­ins, sem skoða sér­tækt annað en bara fylgi flokka, eru skoð­aðar kemur í ljós að kjós­endur Vinstri grænna voru lík­legri en kjós­endur ann­arra flokka að ætla að ferð­ast í sum­ar­frí­inu sínu, jafnt inn­an­lands sem utan, lang­lík­leg­astir til að borða græn­metis- eða vegan­fæði, höfðu miklar áhyggjur af hlýnun jarðar og ansi hlynntir veggjöldum. Þeir voru hins vegar ólík­leg­astir til að vera með áskrift að Netflix eða virkt Costco-aðild­ar­kort og eru að uppi­stöðu mjög and­vígir því að ferskt kjöt verði flutt til lands­ins frá öðrum löndum innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ