Myndin segir sögu Ragnhildar „Röggu“ Jónsdóttur, ömmu, náttúruverndarsinna og sjáanda.
„Með hennar augum kynnumst við krafti trúar og skoðum verðmætamat okkar hvers virði steinn í hrauni er eða hlutabréf á markaði,“ segir í tilkynningu um myndina.
Myndin hefur fengið góða dóma. Í dómi Variety var hún til dæmis sögð „fáguð og forvitnileg“.
Stiklu úr myndinni má sjá hér fyrir neðan.































Athugasemdir