Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þorramatur – þjóðlegur og góður

Þorra­matur er hefð­bund­inn íslenskur matur sem hefð er fyrir að bera fram á þessum árs­tíma sem kall­aður er Þorrinn. Hér eru upp­skriftir að blóð­mör og lifr­ar­pylsu sem er vin­sælt að bjóða upp á í tengslum við hann.

Þorramatur – þjóðlegur og góður

Hér áður fyrr var allt sem hét kjöt á kind­unum nýtt í slát­ur­tíð­inni og það datt ekki nokkrum manni í hug að henda neinu sem hægt var að gera mat úr. Það kom sér vel að kunna að búa til góð­gæti úr hrá­efn­inu í slát­ur­tíð­inni. Inn­mat­ur­inn úr kind­unum var gjör­nýttur. Þá var löguð slát­ur­súpa, blóð­pönnu­kökur, blóð­búð­ingur, lungna­stappa, tólg, lunda­baggar og fleira góð­gæti. Þetta þótti allt góður matur og hann hélt lífi í Íslend­ingum hér áður fyrr en ekki er víst að mikil lukka yrði á íslenskum heim­ilum í dag ef hann yrði á borðum jafn oft og þá. Um slátur, kinda­kæfu og rúllupylsur gildir allt annað. Á þeim herra­manns­mat hafa allir góða lyst.

Þorra­matur

Blóðmör

2 l blóð

4 dl vatn

hnefa­fylli gróft salt

200 g hafra­mjöl

200 g heil­hveiti

1,6 kg rúg­mjöl eða sem þarf til að gera blönd­una mátu­lega stífa

1 kg mör, eða eftir smekk

Hellið blóði, vatni og salti í stórt ílát. Bætið mjöli út í og hrærið vel í á meðan. Hræran á að vera eins og vel þykkur vell­ingur. Best er að setja mör saman við um leið og sett er í kepp­ina, ann­ars vill hann verða dökkur því hann drekkur auð­veld­lega í sig blóð. Setjið kepp­ina í sjóð­andi salt­vatn og sjóðið í 2 1/2 klst. Hægt er að frysta slátrið bæði soðið og ósoðið.

Krydda má blóð­mör með t.d. kanil, allra­handa eða múskati. Þá er hæfi­legt að nota 1/2 tsk. af kanil, 1/2 tsk. af allra­handa og 1/4 tsk. af múskati í einn vænan kepp. Rúsínur eru einnig góðar og eru settar sem hlut­fall á móti mör. Rús­ínuslátur hentar síður að frysta því rús­ín­urnar vilja verða mauk­kenndar. Gott er að bera fram epla­mús og/eða stöppu úr sætum kart­öflum með.

Eins kemur vel út, og eykur enn á holl­ustu blóð­mörs­ins, að setja fjalla­grös út í hræruna. Fjalla­grösin eru þá söxuð og sett út í um leið og mjölið.

Meðlæti með nýsoðnum blóð­mör eru soðnar gul­rófur, gjarnan í stöppu og soðnar kart­öflur. Sumum finnst gott að strá sykri eða hrá­sykri yfir.

Slátur

Lifrarpylsa

1 lifur

2 nýru

1 hjarta

2 1/2 dl nýmjólk

1 dl kalt kjöt­soð

1/2-1 msk. gróft salt

100 g hafra­mjöl

100 g hveiti eða heil­hveiti

300-350 g rúg­mjöl eða sem þarf til að blandan verði mátu­lega stíf

400 g mör

Skolið inn­mat og fjar­lægið himnur og slím. Hakkið einu sinni eða tvisvar, eftir smekk. Bætið mjólk, soði og salti út í og hrærið saman, Bætið mjöli og mör út í og hrærið í þangað til blandan er orðin jöfn. Setjið hæfi­legt magn af slát­ur­blöndu í hvern kepp, saumið fyrir og sjóðið í salt­vatni í 2-2 1/2 klst.

Lifr­ar­pylsu má frysta bæði soðna og ósoðna. Meðlæti með nýsoð­inni lifr­ar­pylsu eru gul­rófur og kart­öflur.

Nota má ýmis krydd til til­breyt­ingar og verður þá lifr­ar­pylsan meira í ætt við skosku pyls­una Haggis eða gríska pylsu úr inn­mat sem nefn­ist Kokor­etsi. Jafnvel má nota ósoðin hrís­grjón í hræruna á móti mör. Gætið bara að því að þau bólgna út við suðu. Það er um að gera að fikra sig áfram og prófa eitt­hvað nýtt.

Ef not­aður er laukur er hann hakk­aður með inn­matnum og öðru kryddi bætt út í með mjöl­inu.

Krydd sem vert er að prófa í eina hræru eða svo:

2 msk. þurrkuð stein­selja

1 msk. óreganó

1 með­al­stór laukur, saxaður

1/4 tsk. nýmal­aður svartur pipar

1 tsk. múskat

Með krydd­aðri lifr­ar­pylsu er fyr­ir­tak að hafa soðnar, nýupp­teknar kart­öflur sem settar eru á pönnu með heitu smjöri (gætið vel að því að smjörið brún­ist ekki), Stráið stein­selju yfir og veltið vel saman, stráið grófu salti (Maldon) yfir áður en rétt­ur­inn er bor­inn fram. Einnig á vel við að kreista sítrónusafa yfir pyls­una að hætti Grikkja.

Suða á slátri

Þegar sjóða á slátur er best að pikka kepp­ina með nál og setja í sjóð­andi salt­vatn. Notið 1/2-1 msk. af salti í hvern lítra af vatni. Hafið rúmt um kepp­ina í pott­inum. Þegar suðan kemur upp á ný og kepp­irnir koma upp á yfir­borðið er gott að pikka þá aftur. Setjið lok á pott­inn og sjóðið kepp­ina við frekar lágan straum, hreyfið þá til öðru hvoru og pikkið gjarnan í þá aftur með nál. Sjóðið slátrið í 2 1/2-3 klst. Það er betra að sjóða slátur í ríf­legu magni af vatni. Ef keppir eru soðnir í of litlu vatni eiga þeir frekar á hættu að springa.

Texti / Bergþóra Jóns­dóttir 

Myndir / Úr safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni