Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Spennandi grænmetis- og vegan-matreiðslubækur

Á und­an­förnum árum hafa komið út fjöl­margar spenn­andi bækur helg­aðar græn­meti og plöntu­fæði. Hér kemur listi yfir nokkrar græn­metis- og vegan-mat­reiðslu­bækur, sumar eru alveg vegan á meðan aðrar eru það ekki, það má þó yfir­leitt gera upp­skrift­irnar vegan með dálít­illi hag­ræð­ingu. Full­komin sam­an­tekt fyrir þá sem taka þátt í Veganúar.

Spennandi grænmetis- og vegan-matreiðslubækur

Ómótstæðileg Ella – Ella Mills

Ella Mills er ein skærasta stjarna Bret­lands á sviði mat­ar­gerðar. Fyrsta bók hennar, Ómót­stæði­leg Ella, sló í gegn þegar hún kom út árið 2015 og hefur nú verið gefin út í 20 löndum. Ein­faldar og ljúf­fengar plöntu­upp­skriftir, jafnt fyrir þá sem eru vegan, þá sem eru með glúten- og mjólk­ur­ó­þol og alla þá sem vilja góða orku og jafnan blóð­sykur.

Ómót­stæði­leg Ella – Ella Mills.

Eldhús græn­ker­ans – Hanna H. Bjarna­dóttir, Katrín R. Bessa­dóttir og Rut Sig­urð­ar­dóttir

Eldhús græn­ker­ans er fyrsta íslenska mat­reiðslu­bók sinnar teg­undar og inni­heldur um 120 upp­skriftir að ljúf­fengum græn­met­is­réttum fyrir öll til­efni. Rétt­irnir henta öllum og bókin er til­valin fyrir þau sem vilja auka vægi græn­met­is­rétta á mat­ar­borði fjöl­skyld­unnar. Í bók­inni er sér­stakur kafli um vegan-hrá­efni og flesta rétt­ina má gera vegan á ein­faldan hátt.

Eldhús græn­ker­ans – Hanna H. Bjarna­dóttir, Katrín R. Bessa­dóttir og Rut Sig­urð­ar­dóttir.

Veganomicon – Isa Moskowitz og Terry Romero

Þessi bók fagn­aði tíu ára afmæli árið 2017 og því var sér­stök afmæl­is­út­gáfa gefin út. Höf­und­arnir bættu við tutt­ugu og fimm nýjum upp­skriftum ásamt því að upp­færa bók­ina í heild. Í bók­inni eru yfir tvö hund­ruð og fimm­tíu upp­skriftir að vegan-mál­tíðum fyrir öll til­efni. Einn helsti kostur bók­ar­innar er sá að hún býður upp á fjöl­margar soja­lausar upp­skriftir en oft á tíðum virð­ast í vegan-upp­skriftum vera reitt sig of mikið á soja­bauna­af­urðir.

Veganomicon – Isa Moskowitz og Terry Romero

Vegan Street Food – Jackie Kearny

Jackie, höf­undur bók­ar­innar, ferð­að­ist ásamt fjöl­skyldu sinni um Asíu og smakk­aði vegan-götu­mat í Indónesíu, Sri Lanka, Taílandi, Víetnam og Malasíu. Hún punktaði hjá sér upp­skrifta­hug­myndir á serví­ettur og annað til­tækt svo þegar hún snéri aftur heim ákvað hún að gera úr þeim þessa bók sem er einnig stút­full af skemmti­legum ferða­sögum og ævin­týrum.

Vegan Street Food – Jackie Kearny.

A Modern Cook‘s Year – Anna Jones

Frábær bók sem auð­veldar okkur að njóta græn­metis allan árs­ins hring. Bókin skipt­ist í sex árs­tíðir og lögð er áhersla á að nýta árs­tíða­bundna upp­skeru. Upp­skrift­irnar eru yfir tvö hund­ruð og eiga það allar sam­eig­in­legt að vera fram­úr­stefnu­legar, fram­andi og freist­andi. Þó að meiri­hluti upp­skrift­anna sé vegan eru ein­hverjar sem inni­halda mjólk­ur­vörur en þá er auð­velt að skipta þeim út fyrir við­eig­andi vegan-vöru. Ótrúlega fal­leg og áhuga­verð mat­reiðslu­bók sem allir ættu að eiga. Fæst á amazon.co.uk.

A Modern Cook‘s Year – Anna Jones.

Keep it Vegan – Áine Carlin

Áine Carlin er höf­undur hins vin­sæla vegan-bloggs Pea Soup Eats. Með þess­ari bók vildi hún upp­ræta þann algenga mis­skiln­ing að vegan-elda­mennska sé allt of flókin og full af ill­fá­an­legu hrá­efni. Í bók­inni er að finna hund­rað afar ein­faldar og fljót­legar upp­skriftir fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í vegan-matar­æði sem og reynd­ari veganista. Fæst á amazon.co.uk.

Keep it Vegan – Áine Carlin.

Forks Over Knives – Gene Stone

Hér er á ferð­inni bók sem fylgir hinni gríð­ar­vin­sælu heim­ilda­mynd Forks Over Knives. Tveir af hverjum þremur Banda­ríkja­mönnum eru í yfir­þyngd og lífs­stíls­sjúk­dómar á borð við syk­ur­sýki II, hjarta- og æða­sjúk­dóma og fleiri aukast stöðugt. Teymið á bak við mynd­ina og þessa bók heldur því fram að hægt sé að snúa þess­ari þróun við með því að hætta ein­fald­lega að borða kjöt og dýra­af­urðir. Auk upp­skrifta er að finna gríð­ar­mik­inn fróð­leik og rann­sóknir sem sýna ávinn­ing þessa matar­æðis. Fæst á amazon.com.

Forks Over Knives – Gene Stone.

Oh She Glows – Angela Liddon

Blogg­ar­inn Angela Liddon er sjálf­lærður kokkur sem hefur varið mörgum árum í að til­einka sér plöntu­matar­æði og deilt góm­sætum upp­skriftum á blogg­inu sínu. Hún hafði lengi glímt við áströskun en ákvað dag einn að snúa við blað­inu og end­ur­heimta heils­una. Hún skipti hita­ein­inga­snauðu og unnu mat­vör­unni út fyrir nær­ing­ar­ríkt græn­meti, hnetur, ávexti, korn og fleira – og viti menn, heilsa og orka hennar jókst til muna. Nú hefur hún gefið út mat­reiðslu­bók með sínum upp­á­halds­upp­skriftum sem hefur notið gríð­ar­legra vin­sælda og komst á New York Bestseller-list­ann. Fæst á amazon.com.

Oh She Glows – Angela Liddon.

Modern Vegan Baking – Gretchen Price

Lengi var erfitt að gera bakstur vegan en veganistar hafa fundið alls kyns sniðugar lausnir og hrá­efni sem geta komið í stað­inn fyrir egg, smjör, hun­ang og svo fram­vegis. Þessi bók safnar saman öllum þessum lausnum og notar þær í ljúf­fengar upp­skriftir sem ættu að gleðja alla sæl­kera, hvort sem þeir eru vegan eða ekki. Bæði er að finna sætar kökur og ósæt kex og brauð en alls eru yfir hund­rað og tutt­ugu upp­skriftir. Fæst á amazon.com.

Modern Vegan Baking – Gretchen Price

Sam­an­tekt / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una