Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Dvelur ekki í fortíðinni

Dvelur ekki í fortíðinni

Plata raf­tón­list­ar­manns­ins Yagya, a.k.a. Aðal­steins Guð­munds­sonar, Old dreams and memories, er vænt­an­leg þann 13. mars næst­kom­andi. Síðasta plata kappans, Stormur, sem kom út á síð­asta ári var mest­megnis kraft­mikið lag­línu­laust teknó út í gegn, og því óhætt að segja að Yagya feti nýjar slóðir á þess­ari plötu sinni, því hún er melódísk­ari en annað sem tón­list­ar­mað­ur­inn hefur sent frá sér.

„Ég vissi ekki alveg hvernig tón­listin myndi þró­ast,“ við­ur­kennir Aðal­steinn hrein­skiln­is­lega fyrir blaða­manni. „Hún bara mót­að­ist smám saman. Ég ákvað að reyna að blanda saman strengjum og raf­tón­list­inni minni þótt ég kynni það ekki bein­línis. Samdi streng­ina í tölv­unni, sendi nót­urnar út til Los Angeles, þar sem þeir voru teknir upp og fékk til baka upp­tökur sem ég mixaði svo inn í lögin,“ lýsir hann og seg­ist vera ánægður með útkom­una.

Óhætt er að segja að Aðal­steinn fari ýmsar áhuga­verðar leiðir á plöt­unni. Sem dæmi um það fékk hann japönsku söng­kon­una Natsuko til að syngja á plöt­unni ljóð eftir Michizō Tachihara, ljóð­skáld og arki­tekt frá Tókýó, sem lést úr berklum árið 1939. „Hún söng ákveðna kafla og sendi mér svo upp­tök­urnar frá Kyoto,“ útskýrir hann og getur þess að ljóð Tachihara séu mjög fal­leg í flutn­ingi Natsuko. Hann bætir við að á loka­stigum hafi honum fund­ist vanta eitt­hvað „oomph“ í miðkafla plöt­unnar þannig að hann hafi fengið Óskar Guð­jóns­son sax­ó­fón­leik­ara til að spila spuna á lúð­ur­inn sinn yfir eitt strengja­lausa lagið og það hafi komið mjög vel út.

„Ég bara heill­að­ist af þessu öllu saman, hardcore“-tón­list­inni sem Þór­hallur og Aggi spil­uðu á b-hlið­inni, teknóinu í Partyzone og harða teknóinu sem DJ Frímann spil­aði.“

Spurður út í tón­list­ar­sköp­un­ina almennt segir Aðal­steinn að eftir að hafa heill­ast af þýsku naum­hyggju­teknói, einkum Basic Channel, Maurizio og GAS, hafi hans eigin hljómur verið til­tölu­lega sjálf­sprott­inn. „Hljóð­heimur minn ein­kenn­ist af miklum bassa og frekar mjúkum hljóðum, það er ekki mikið um „transi­ents“. Ég er nán­ast viss um að það er af því að ég verð svo þreyttur að hlusta á hátíðni í langan tíma,“ játar hann og seg­ist semja tón­list­ina sína með það í huga að geta hlustað á hana aftur og aftur. Auk þess reyni hann að gera tölvu­hljóðin frekar „organic“ með því að bæta við sveiflum í hljóðin og jafn­vel suði eða upp­tökum á lág­stemmdum umhverf­is­hljóðum.

Þú varst ung­lingur á tíunda ára­tug síð­ustu aldar, þegar raf- og dans­tón­list var hvað vin­sælust. Hvernig fannst þér þessi tími og hvaða áhrif hefur hann haft á tón­list­ina þína? „Ég bara heill­að­ist af þessu öllu saman,“ svarar hann hrein­skil­inn, „hardcore“-tón­list­inni sem Þór­hallur og Aggi spil­uðu á b-hlið­inni, teknóinu í Partyzone og harða teknóinu sem DJ Frímann spil­aði.“ Hann segir að þessi tón­list hafi haft mikil áhrif á sig enda hafi hann haldið áfram að gera teknó- og ambient-tón­list í marga ára­tugi eftir að hafa kynnst henni sem ung­lingur. Hann seg­ist hins vegar ekki mikið gef­inn fyrir nostal­gíu, því haldi hann ekki upp á þessa tón­list í dag.

Aðal­steinn seg­ist stundum vera til­rauna­kenndur í sinni tón­list­ar­sköpun, fari út fyrir lín­urnar sem skil­greina teknó og ambient, og þar af leið­andi komið fyrir að honum gangi erf­ið­lega að finna útgáfu­fyr­ir­tæki sem henti tón­list sinni. Upp á síðkastið hafi hann unnið mikið með hol­lenska útgáfu­fyr­ir­tæk­inu Delsin Records. „Ég og Delsin Records ákváðum að stofna nýtt plötu­fyr­ir­tæki sem nefn­ist Small Plastic Animals Þar get ég gefið út tón­list án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að passa inn í eitt­hvað fyr­ir­fram ákveðið form.“

Hvað er fram undan? „Ég er nú þegar byrj­aður á næstu plötu en geri ekki ráð fyrir að klára hana fyrr en á næsta ári. Sú plata kemur einnig út hjá Small Plastic Animals, sem ég er mjög spenntur fyrir; mér er pínu­lítið létt að þurfa ekki að spá í að láta tón­list­ina mína passa í eitt­hvað ákveðið form innan raf­tón­list­ar­geirans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar