Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Akureyrarbær hlýtur viðurkenningu sem fyrsta barnvæna sveitarfélagið á Íslandi

Akureyrarbær hlýtur viðurkenningu sem fyrsta barnvæna sveitarfélagið á Íslandi
Ara Orrason

Akur­eyr­ar­bær varð í gær fyrst sveit­ar­fé­laga á Íslandi til að hljóta við­ur­kenn­ingu Barn­vænna sveit­ar­fé­laga. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, og Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi, afhentu Ásthildi Sturlu­dóttur, bæj­ar­stjóra á Akureyri, við­ur­kenn­ing­una við hátíð­lega athöfn á Akureyri.

„Akur­eyr­ar­bær hefur ein­sett sér að vera í far­ar­broddi þegar kemur að rétt­indum og lífs­gæðum barna og þess vegna erum við afar stolt af þess­ari við­ur­kenn­ingu. Mig langar á þessum tíma­mótum að þakka okkar frá­bæra starfs­fólki sem hefur unnið að verk­efn­inu af miklum krafti á öllum stigum sveit­ar­fé­lags­ins og ung­mennum sem hafa tekið þátt í vinn­unni með okkur. Við­ur­kenn­ingin gefur okkur auk­inn kraft til að halda áfram og gera enn betur í því að búa börnum og ung­mennum gott sam­fé­lag þar sem rétt­indi þeirra og rödd er virt. Þessu verk­efni lýkur aldrei þótt fyrsti áfangi sé í höfn,“ segir Ást­hildur Sturlu­dóttir, bæj­ar­stjóri á Akureyri.

irna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi, Ásmundur Einar Daðason, félags-og barna­mála­ráð­herra, Alfa Dröfn Jóanns­dóttir, verk­efna­stýra barn­væns sveit­ar­fé­lags hjá Akur­eyr­arbæ, Hildur Lilja Jóns­dóttir, Ari Orrason, Rakel Alda Steins­dóttir og Embla Kristín Blöndal Jóhanns­dóttir, full­trúar ung­menna­ráðs Akur­eyr­ar­bæjar og Ást­hildur Sturlu­dóttir, bæj­ar­stjóri á Akureyri. Mynd / UNICEF á Íslandi

Í við­ur­kenn­ing­unni fel­ast þakkir til sveit­ar­fé­lags­ins fyrir að hafa unnið mark­visst að því að inn­leiða Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna í stjórn­sýslu og starf­semi bæj­ar­ins, með hags­muni allra barna og ung­menna sveit­ar­fé­lags­ins að leið­ar­ljósi eins og segir í til­kynn­ingu frá UNICEF á Íslandi.

„Við hjá UNICEF á Íslandi erum ákaf­lega stolt af Akur­eyr­ingum og þeim áfanga sem við fögnum hér í dag. Verk­efnið Barnvæn sveit­ar­fé­lög og inn­leið­ing Barna­sátt­mál­ans hófst hér fyrir fjórum árum og það hefur verið ein­stakt að vinna að þróun verk­efn­is­ins með starfs­fólki Akur­eyr­ar­bæjar. Fyrir hönd UNICEF á Íslandi langar mig að óska Akur­eyr­arbæ, starfs­fólki og ung­menna­ráði bæj­ar­ins og auð­vitað öllum börnum á Akureyri inni­lega til ham­ingju,“ segir Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi:

Akur­eyr­ar­bær er nú kom­inn í hóp val­inna sveit­ar­fé­laga um allan heim, sem leggja Barna­sátt­mál­ann til grund­vallar öllu sínu starfi. Við­ur­kenn­ing­una hlýtur sveit­ar­fé­lagið til þriggja ára og á það kost á að end­ur­nýja hana að þeim tíma liðnum. Með þátt­töku í verk­efn­inu hefur Akur­eyr­ar­bær rutt braut­ina fyrir önnur sveit­ar­fé­lög á Íslandi og tekið mark­vissan þátt í þróun verk­efn­is­ins á Íslandi frá árinu 2016. Mikill áhugi er meðal sveit­ar­fé­laga á að taka þátt í verk­efn­inu, en sam­tals hefja níu þeirra þátt­töku á þessu ári og tólf á því næsta.

Ásmundur Einar flytur ávarp. Mynd / UNICEF á Íslandi

Aðgerða­á­ætlun Akur­eyr­ar­bæjar vegna þátt­töku í verk­efn­inu var ein­stak­lega metn­að­ar­full og hefur sveit­ar­fé­lagið inn­leitt fjölda nýrra verk­efna í sam­starfi við ung­menna­ráð sveit­ar­fé­lags­ins. Nokkur dæmi:

Bærinn hefur staðið fyrir árlegum stór­þingum til að efla gagn­virkt sam­tal við börn og ung­menni.

Snjó­mokstur og strætó­sam­göngur bæj­ar­ins hafa verið end­ur­skoð­aðar í sam­ráði við börn og ung­menni.

Sveit­ar­fé­lagið hefur tekið upp verk­lag við hags­muna­mat út frá rétt­indum barna við ákvarð­anir og stefnu­mótun sem hefur áhrif á börn.

Rafræn hand­bók um til­kynn­ingar til barna­verndar og sam­ræmt verk­lag fyrir alla starfs­menn bæj­ar­ins hefur verið kynnt.

hefur verið settur upp svo börn geti sjálf til­kynnt um aðstæður sínar eða ann­arra til barna­vernd­ar­nefnda.

Þrátt fyrir við­ur­kenn­ing­una er verk­efn­inu þó hvergi nærri lokið. Nú þegar hefur verið byrjað á næsta hring í inn­leið­ing­ar­ferli og verður haldið áfram að kort­leggja og styrkja stöðu barna og ung­menna í sveit­ar­fé­lag­inu. Næsta aðgerða­áa­ætlun er í und­ir­bún­ingi.

„Frá því ég tók við emb­ætti félags- og barna­mála­ráð­herra hef ég heim­sótt Akureyri reglu­lega til að fylgj­ast með inn­leið­ingu þessa mik­il­væga verk­efnis. Akur­eyr­ar­bær og ung­menna­ráð Akur­eyrar hafa sýnt það og sannað að mark­viss þátt­taka barna og ung­menna býr til betri sam­fé­lög fyrir alla. Með því að vera fyrsta sveit­ar­fé­lagið til að inn­leiða Barna­sátt­mál­ann hafa þau rutt braut­ina fyrir rétt­indi barna hér á landi. Það er því ein­stak­lega gleði­legt að til­kynna við þetta til­efni að á næstu dögum mun stefna um Barnvænt Ísland, mark­vissa inn­leið­ingu Barna­sátt­mál­ans, verða aðgengi­leg í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Við vonum að sem flestir kynni sér stefn­una og aðstoði okkur við að útfæra hana og gera Ísland að besta stað í heimi fyrir börn,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra.

Verk­efnið Barnvæn sveit­arfélög er sam­starfs­verk­efni UNICEF og félagsmálaráðuneyt­is­ins. Þróun verk­efn­is­ins hófst 2016 og var unnin í sam­starfi við umboðs­mann barna og jöfnun­ar­sjóð sveit­arfélaga. Nánari upplýsingar um Barnvæn sveit­arfélög eru aðgengi­legar á vefsíðunni www.barnvaensveitarfelog.is og geta áhuga­samir ein­stak­lingar, kjörnir full­trúar og starfsfólk sveit­arfélaga nálgast þar allar nauð­syn­legar upplýsingar um inn­leið­ingu Barnasáttmálans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ