Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Aron og fimm vinir hans lentu í gassprengingu í sumarbústað: „Áfallið verður erfiðasta sárið til að gróa“

Aron og fimm vinir hans lentu í gassprengingu í sumarbústað: „Áfallið verður erfiðasta sárið til að gróa“
Mynd af Helgu / Sigrún Magg. Mynd t.h. / Dæmi um nið­ur­stöður úr könnun Íslenskr­ar erfða­grein­ing­ar.

Aron Kristján Sig­ur­jóns­son, kærasta hans og fjórir vinir þeirra ætl­uðu að eiga skemmti­lega helgi saman í bústað núna um helg­ina og var ástæða ferð­ar­innar að þétta hóp­inn og hafa gaman eins og Aron segir í sam­tali við Mannlíf.

Helgin byrj­aði vissu­lega þannig, á föstu­dag sáttu þau saman við stofu­borðið, spil­uðu, fengu sér bjór, töl­uðu og hlógu.

„Daginn eftir vöknum við öll þrjár mín­útur yfir ell­efu en ekki út af sam­stilltum vekjara­klukkum. Við vöknum við spreng­ingu sem olli því að sum­ar­bú­stað­ur­inn fór væg­ast sagt í tætlur,“ segir Aron, en tækni­deild lög­regl­unnar segir að um gas­spreng­ingu hafi verið að ræða.

Aron seg­ist þó ekki hafa vaknað við lætin heldur að þung spýta sprakk í and­litið á honum, lík­lega frá koj­unni sem var fyrir ofan rúmið sem hann og kona hans sváfu í.

„Ég var viss um að það væri trukkur að keyra inn í bústað­inn,“ segir Aron. Blóð fór að spýt­ast úr enni hans og seg­ist hann hafa notað sæng­ina til að stöðva blæð­ing­una.

„Ég var viss um að það væri trukkur að keyra inn í bústað­inn.“

„Við Sóley [kærasta Arons] hróp­uðum handa­hófs­kennd orð af hræðslu og ótta til að tryggja fyrir hvort öðru að við værum enn með með­vit­und. Á sama tíma hrynja yfir okkur spýtur bæði úr veggjum og lofti og fest­umst við þar undir,“ segir Aron og segir þetta aðeins hafa tekið nokkrar sek­úndur, sem þó liðu mjög hægt.

Þrjú flutt á sjúkrahús

Við­bragðs­að­ilar voru komnir á vett­vang fljót­lega og farið var með þrjú af ung­menn­unum á Sjúkra­húsið á Akureyri; Aron, Sóleyju og vin þeirra. „Þaðan var svo flogið með okkur til Reykja­víkur sama kvöld, af því að læknar treystu mér ekki í bíl­ferð,“ segir Aron.

Aron telur að hann verði um tvær vikur að ná sér lík­am­lega. „Ég er með stórt gat og stóran skurð á enn­inu, neðri fram­tönn er brotin og ég er togn­aður víða um lík­amann og mar­inn sömu­leiðis,“ segir Aron. „Og von­andi jafn­langan tíma að ná mér and­lega.

Aron eftir slysið Mynd / Facebook

Þau þrjú sem flutt voru á Sjúkra­húsið fá áfalla­hjálp í dag að sögn Arons, hin þrjú fengu hana strax eftir slysið.

„Hin tvö sem flutt voru á spít­ala með mér eru betur farin, en tognuð víða um lík­amann. Vinur minn fór eflaust úr axl­ar­lið og aftur í hann og Sóley togn­aði víða um lík­amann,“ segir Aron.

Bústað­ur­inn eftir spreng­ing­una Mynd / Facebook

Áfallið erfiðasta sárið

Aron þakkar öllum við­bragðs­að­ilum fyrri þeirra störf og segir við­brögð þeirra fag­leg við erf­iðar aðstæður og vel hugsað um þau alla leið. „Síðan þykir okkur gott að tala opin­skátt um þetta því áfallið mun verða erf­ið­asta sárið til að gróa og það hjálpar að útskýra hvað gerð­ist,“ segir Aron og vill jafn­framt benda fólki á að hafa aðgát í nær­veru sálar, þar sem kjafta­sögur hafi farið á kreik um að þau hafi verið að fikta með gas eða annað. „Við komum ekki nálægt neinu grilli eða gasi, þetta var slys og ekk­ert okkar sem olli því með neinum hætti.“

Spreng­ingin varð í skúr við hlið­ina á her­berg­inu sem Aron og kærasta hans sváfu í og því fóru veggir á hlið og her­bergi þeirra á hvolf.

„Vina­hóp­ur­inn er þétt­ari en nokkru sinni fyrr.“

„Tækni­deildin hringdi í gær og var nokkuð viss um að þetta væri gas­spreng­ing og taldi lík­legt að það hafi verið gaskútur úr grilli sem sprakk,“ segir Aron.

Aron segir að þrátt fyrir áfallið þá hafi mark­miðið með sum­ar­bú­staða­ferð­inni náðst. „Vina­hóp­ur­inn er þétt­ari en nokkru sinni fyrr.“

Bústað­ur­inn eftir spreng­ing­una Mynd / Facebook
Bústað­ur­inn eftir spreng­ing­una Mynd / Facebook
Bústað­ur­inn eftir spreng­ing­una Mynd / Facebook
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ