Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

,,Starfið veitir vellíðan og útrás“

,,Starfið veitir vellíðan og útrás“

Hún vissi ekk­ert hvað hún ætl­aði að verða þegar hún yrði stór en senni­lega hefur það að verða for­seti verið fjar­lægt í hennar huga. Hera Gríms­dóttir er í dag engu að síður for­seti iðn-og tækni­fræði­deildar Háskól­ans í Reykja­vík og hér segir hún okkur frá leið­inni þangað og fjöl­mörgum spenn­andi námstæki­færum.

„Ég ólst upp í Breið­holti, var frekar aktív sem barn, stund­aði íþróttir af kappi og var mikil félags­vera. Þá byrj­aði ég ung að vinna og hafði alltaf nóg að gera,“ segir Hera bros­andi. „Mig minnir að ég hafi byrjað að vinna í bíó og bak­aríi um helgar í 8. bekk ásamt því að æfa hand­bolta og hitta vin­ina reglu­lega. Ég fór svo í Mennta­skól­ann í Reykja­vík og var harð­á­kveðin í að fara í lækn­is­fræði eftir útskrift. Áður en ég valdi bygg­inga­verk­fræð­ina sem mína leið í líf­inu þá ferð­að­ist ég á eigin vegum í um tvö ár og ætli það hafi ekki verið einn besti skóli sem ég hef farið í. Það tók mig sem sagt þessi tvö ár að hætta við að fara í lækn­is­fræði en ég stend yfir­leitt við þær ákvarð­anir sem ég tek. Á þessu ferða­lagi vann ég þegar mig vant­aði pen­ing, t.d. í fata­búð í Þýska­landi, á veit­inga­húsi í Ósló og sem snjó­bretta­kenn­ari í Aust­ur­ríki og ferð­að­ist þess á milli. Á flakki mínu lenti ég alls í kyns ævin­týrum sem tæki langan tíma að segja frá en ég lærði að vera víð­sýn, sjálf­stæð og að bjarga mér. Eftir þennan tíma átt­aði ég mig á að áhugi minn lá í nýsköpun, að finna lausnir og að takast á við krefj­andi áskor­anir. Því valdi ég verk­fræð­ina og er með MSc-gráðu í bygg­ing­ar­verk­fræði með áherslu á fram­kvæmda­stjórnun sem og MBA-gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík.

Hera segir að henni leið­ist aldrei í vinn­unni Mynd / Hallur Karlsson

Hún segir að það hafi verið erfitt fyrir sig, tví­tugan stúd­ent­inn, að átta sig á því hvað hún vildi verða þegar hún yrði stór. „Ég hugsa að sú ákvörðun sé jafn­vel enn erf­ið­ari hjá ungu fólki í dag, þar sem nem­endur eru að útskrif­ast úr fram­halds­skólum yngri en áður og mögu­leik­arnir eru mun fleiri. Þegar vænt­an­legir nem­endur leita til mín þá spyr ég oft að því hvar þeir sjái fyrir sér að þau vilji vinna eftir 5-10 ár og velja nám út frá því. Það var í raun það sem ég gerði og ég sé ekki eftir því vali. Á þessum tíma vissi ég hins vegar ekki af tækni­fræð­inni sem þó hefur verið kennd í um fimm­tíu ár hér á landi. Tækni­fræði er í raun önnur leið að sama mark­miði og verk­fræðin þar sem útskrif­aðir tækni- og verk­fræð­ingar vinna sam­bæri­lega ef ekki sömu vinnu þegar út á vinnu­mark­að­inn er komið. Tækni­fræðin tekur hins vegar aðeins þrjú og hálft ár og þar er lögð áhersla á að hug­vit og verkvit mæt­ist en verk­fræðin tekur fimm ár. Því er mikil áhersla á hag­nýt verk­efni sem unnin eru með atvinnu­líf­inu til að leysa vanda­mál nútím­ans.“

„Á flakki mínu lenti ég alls kyns ævin­týrum sem tæki langan tíma að segja frá en ég lærði að vera víð­sýn, sjálf­stæð og að bjarga mér. Eftir þennan tíma átt­aði ég mig á að áhugi minn lá í nýsköpun, að finna lausnir og að takast á við krefj­andi áskor­anir.“

Aldrei leiðinlegt í vinnunni

Starfs­fer­ill Heru byrj­aði svo árið 2002 þegar hún hóf störf á verk­fræði­stof­unni Línu­hönnun, sem í dag heitir EFLA, fyrst sem sum­ar­starfs­maður. „Eftir útskrift hélt ég áfram hjá EFLU og vann hjá þeim til árs­ins 2011, lengst af á fram­kvæmda­sviði. Árið 2011 breytti ég svo alveg til og hóf störf hjá Össuri þar sem ég stýrði alþjóð­legum BIONICS-gervi­út­lima­verk­efnum sem og vinnu við að koma nýrri vöru­línu af spelkum á mark­að­inn.

Ég ber afar hlýjan hug bæði til EFLU og Össurar og lærði mikið af veru minni hjá þeim. Það sem ég var hrifn­ust af var hvað ég var hvött til að hugsa út fyrir kass­ann, koma með nýjar hug­myndir en ég naut mín mjög í nýsköp­un­ar­um­hverf­inu enda ótrú­lega mikið af hæfi­leik­a­ríku fólki sem ég vann með.

Síðla árs 2015 tók ég svo við stöðu sem svið­stjóri yfir bygg­inga­sviði hér við Háskól­ann í Reykja­vík og hef verið þar síðan, í dag sem for­seti iðn- og tækni­fræði­deildar. Ferill minn hefur því verið ansi fjöl­breyttur, ein­kennst af ólíkum verk­efnum og umhverfi sem og stöð­ugum nýjum áskor­unum. Ég er ein af þeim sem hef verið svo lánsöm að hafa alltaf fund­ist gaman í vinn­unni og vinnan mín gefur mér mjög mikið, bæði vellíðan og útrás,“ segir Hera.

Hera Gríms­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Eftirspurn eftir fólki með tæknimenntun

„Að vera for­seti er bæði skemmti­legt, fjöl­breytt og krefj­andi. Engir dagar eru eins og það er óhætt að segja að mér leið­ist aldrei í vinn­unni. Iðn- og tækni­fræði­deild er ný deild við Háskól­ann í Reykja­vík, rétt rúm­lega eins árs og því í mörg horn að líta. Deildin hefur verið í miklum vexti og eru nú um 450 nem­endur hjá okkur. En almennt er afskap­lega gaman að vera for­seti og að vinna í háskólaum­hverf­inu, ég vinn með afar skemmti­legu og hæfi­leik­a­ríku fólki en einnig læri ég heil­mikið af nem­endum,“ segir hún og brosir.

,,En því fylgir líka mikil ábyrgð og traust að vera for­seti, því það er afar margt sem þarf að huga að þegar kemur að núver­andi og fram­tíð­ar­menntun nem­enda. Verkefni eiga eftir að verða mörg og krefj­andi með til­komu fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar og fylgja jafn­vel miklar breyt­ingar á störfum og tækni. Því er óhætt að segja að tækni­mennt­aðra ein­stak­linga fram­tíð­ar­innar bíði ótal úrlausn­ar­efni. Þessar hröðu breyt­ingar valda meiri eft­ir­spurn eftir fólki með sér­hæfða tækni­menntun og nýja gerð stjórn­un­ar­hæfni. Til að við­halda sam­fé­lag­inu þarf því ákveð­inn fjölda tækni­mennt­aðra á hverju sviði en til að geta bætt og þróað þarf að mennta enn fleiri en við höfum gert hingað til. Við í iðn- og tækni­fræði­deild Háskól­ans í Reykja­vík und­ir­búum nem­endur okkar til að takast á við þau fjöl­breyttu verk­efni sem bíða þeirra við kom­una út á vinnu­mark­að­inn.“

Hera Gríms­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Tekur mið af þörfum atvinnulífsins

Hera segir eitt af mark­miðum Iðn- og tækni­fræði­deildar HR sé að bjóða upp á hag­nýtt tækni­nám á háskóla­stigi sem hentar bæði þeim sem eru með iðn­menntun sem og stúd­ents­próf. ,,Það hefur verið í umræð­unni að lítið væri í boði fyrir iðn­mennt­aða ein­stak­linga og að leið þeirra inn í háskóla væri lokuð. Þetta er ekki alveg rétt því það er heil­mikið í boði fyrir ein­stak­linga með iðn­menntun sem bak­grunn en það hefur kannski ekki verið nægj­an­lega sýni­legt. Þegar ungt fólk velur sér sína leið í líf­inu þá er mik­il­vægt að það viti að það sé ekki að loka neinum dyrum og vert er að benda á að þeir sem hafa iðn­menntun sem bak­grunn og bæta svo við sig tækni­menntun á háskóla­stigi eru afar eft­ir­sóttir í atvinnu­líf­inu.

Tækninám við iðn- og tækni­fræði­deild tekur ávallt mið af þörfum atvinnu­lífs­ins hverju sinni, með áherslu á öfl­uga og hag­nýta tækni­þekk­ingu sem nýt­ist vel frá fyrsta degi í starfi. Deildin hvílir á grunni Tækni­skóla Íslands sem sam­ein­að­ist Háskól­anum í Reykja­vík árið 2005. Þessi grunnur veitir HR sér­stöðu en við HR er lögð áhersla á að nem­endur öðlist verk­þekk­ingu, auk þess að þekkja og skilja fræðin. Hægt er að stunda nám í iðn-, bygg­inga- og tækni­fræði. Við munum að auki bjóða upp á nýjar styttri náms­brautir og fleiri tæki­færi fyrir umsækj­endur í iðn- og tækni­fræði­deild í haust.“

„Við erum alltaf að leita leiða til fjölga tæki­færum fyrir ein­stak­linga til að mennta sig á öllum ævi­skeiðum og til að auka tæki­færin fyrir umsækj­endur munum við m.a. bjóða upp á stöðu­próf í stærð­fræði og eðl­is­fræði inn í tækni­fræði­nám.“

Hera Gríms­dóttir
Mynd / Hallur Karlsson

Menntun á öllum æviskeiðum

„Við erum alltaf að leita leiða til fjölga tæki­færum fyrir ein­stak­linga til að mennta sig á öllum ævi­skeiðum og til að auka tæki­færin fyrir umsækj­endur munum við m.a. bjóða upp á stöðu­próf í stærð­fræði og eðl­is­fræði inn í tækni­fræði­nám,“ segir Hera og heldur áfram. „Stöðu­prófin eru ætluð fyrir þau sem telja sig hafa nægi­legan grunn án þess að hafa lokið til­skyldum fram­halds­skóla­ein­ingum og þau sem vilja rifja upp náms­efnið og sjá hvar þau standa áður en nám hefst. Fyrstu prófin verða haldin í sumar og nú þegar hefur verið opnað fyrir skrán­ingu í þau. Einnig eru nú ákveðin nám­skeið í iðn­fræði metin inn í nám í tækni­fræði við HR. Iðn­fræð­ingar sem hafa útskrif­ast með loka­próf úr Háskóla­grunni geta nú fengið metnar allt að 41 ECTS-ein­ingu úr iðn­fræði inn í tækni­fræði.“

Hera segir iðn­fræði vera hag­nýtt og gott nám sem veitir iðn­lærðum af bygg­inga-, véla- og raf­magns­sviði tæki­færi til að afla sér tækni­mennt­unar á háskóla­stigi. „Til að útskrif­ast sem iðn­fræð­ingur þarf nem­andi að hafa lokið sveins­prófi í iðn­grein á við­kom­andi sviði og veitir námið þá rétt til meist­ara­bréfs. Hægt er að stunda námið í fjar­námi og taka það sam­hliða vinnu. Starfs­svið iðn­fræð­inga eru fjöl­breytt og starfa þeir m.a. hjá verk­taka­fyr­ir­tækjum, á verk­fræði­stofum og hjá orku- og fram­leiðslu­fyr­ir­tækjum svo eitt­hvað sé nefnt.

HR er eini háskól­inn á Íslandi sem kennir bygg­inga­fræði og er námið sett upp sem verk­efna­miðað nám. Bygg­inga­fræð­ingar hafa breitt þekk­ing­ar­svið og vinna því við fjöl­breytt störf tengdum bygg­ing­ar­iðn­aði. Þeir starfa meðal ann­ars við hönnun mann­virkja og eft­ir­lit og stjórnun fram­kvæmda. Þekking þeirra á bygg­inga­ferli, efn­isvali og verk­efna­stjórnun er afar dýr­mæt.“

Hera Gríms­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Nemendur öðlast reynslu, þekkingu og færni

Hera segir tækni­fræð­ina henta vel þeim ein­stak­lingum sem vilja hag­nýta tækni­menntun sem býður upp á mikla mögu­leika, bæði í vel launuð störf í atvinnu­líf­inu og í áfram­hald­andi fram­halds­nám eða meist­ara­nám. „Námið, sem er stað­ar­nám, tekur aðeins þrjú og hálft ár og tækni­fræðin er lög­verndað starfs­heiti. Hægt er að velja á milli náms í bygg­ing­ar­tækni­fræði, raf­magns­tækni­fræði og vél- og orku­tækni­fræði. Í upp­hafi náms­ins fá nem­endur sterkan og góðan grunn, við það bæt­ist svo ýmis­konar sér­þekk­ing eftir fagsviðum sem fæst í gegnum verk­efna­kennslu og starfs­nám hjá fyr­ir­tækjum. Upp­bygg­ing náms­ins tekur mið af þörfum atvinnu­lífs­ins, með áherslu á hag­nýta tækni­þekk­ingu sem nýt­ist vel frá fyrsta degi í starfi. Slík þekk­ing er dýr­mæt þegar út á vinnu­mark­að­inn er komið og á hverju vori leita til mín fyr­ir­tæki eftir nýút­skrif­uðum tækni­fræð­ingum.

Upp­lýs­inga­tækni í mann­virkja­gerð er ný náms­braut við iðn- og tækni­fræði­deild Háskól­ans í Reykja­vík og hefst kennsla á henni í haust. Um er að ræða eins árs hag­nýtt diplóma­nám sem ætlað er að veita nem­endum hag­nýta þekk­ingu á sviði upp­lýs­inga­tækni í mann­virkja­gerð (e. BIM – Building Information Modeling). Í nám­inu öðl­ast nem­endur reynslu, þekk­ingu og færni í að leysa flókin og þver­fag­leg vanda­mál í mann­virkja­gerð og stjórna verk­efnum með upp­lýs­inga­lík­önum en stefnt er að því að innan fárra ára verði það meg­in­regla að nota upp­lýs­inga­líkön við bygg­ingu allra stærri opin­berra mann­virkja á Íslandi.

Að lokum skal svo nefna nám í rekstr­ar­fræði en námið er byggt á gömlum grunni rekstr­ar­iðn­fræði, sem var aðeins fyrir iðn­fræð­inga, en hefur nú verið opnað fyrir fleirum en aðeins þeim sem eru með diplóma­gráðu í iðn­fræði. Það er stutt og hag­nýtt rekstrar- og við­skipta­nám, sér­stak­lega sniðið að ein­stak­lingum á vinnu­mark­aði. Námið miðar að því að auka færni þeirra sem vilja koma að rekstri og stjórnun, þeirra sem eru í fyr­ir­tækja­rekstri eða hyggj­ast fara út í rekstur,“ segir Hera.

„Það er nú alltaf þannig að konur eru í minni hluta af okkar nem­endum sem og í okkar geira í atvinnu­líf­inu. Við erum því miður t.d. að sjá allt of fáar stelpur í raf­magns- og véla­tengdum fögum en hins vegar hefur verið mikil aukn­ing í bygg­ing­ar­tengd fög síð­ast­liðin ár.“

Láta hugvit og verkvit mætast

„Eitt af mark­mið­unum sem við í iðn- og tækni­fræði­deild höfum sett okkur er að byggja upp nám sem tekur mið af þörfum atvinnu­lífs­ins, með áherslu á hag­nýta tækni­þekk­ingu sem nýt­ist vel frá fyrsta degi í starfi,“ heldur hún áfram. „Ætli sam­nefn­ar­inn með öllum okkar náms­brautum sé ekki sá að láta hug­vit og verkvit mæt­ast og að útskrif­aðir nem­endur eru til­búnir að mæta kröfum atvinnu­lífs­ins hverju sinni. Tekju­mögu­leik­arnir eru miklir og mark­að­ur­inn hrein­lega kallar eftir iðn­mennt­uðu fólki með tækni­menntun á háskóla­stigi.

Það er nú alltaf þannig að konur eru í minni­hluta af okkar nem­endum sem og í okkar geira í atvinnu­líf­inu. Við erum því miður t.d. að sjá allt of fáar stelpur í raf­magns- og véla­tengdum fögum en hins vegar hefur verið mikil aukn­ing í bygg­ing­ar­tengd fög síð­ast­liðin ár. Það er sér­stak­lega gaman að segja frá því að meiri hluti nem­enda í bygg­inga­fræði eru konur í dag og hefur verið gríð­ar­leg aukn­ing á milli ára.

Það má velta því fyrir sér hvort það sé ekki eðli­legt að það séu ekki jöfn kynja­skipti þar sem áhugi stráka á tækni­námi er almennt meiri en hjá stelpum. En hver eru þá eðli­leg skipti og af hverju er þessi mikli munur? Mögu­leikar á að finna sér starfs­vett­vang í atvinnu­líf­inu eru nán­ast ótak­mark­aðir, bæði fyrir konur og karla. Langt mál þyrfti til að gefa meira en smá­vegis yfir­lit yfir þau störf sem koma til greina en hægt er að nefna t.d. nýsköpun, hönnun og stjórnun hjá verk­fræði­stofum, nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum, fram­leiðslu­fyr­ir­tækjum, orku­fyr­ir­tækjum, verk­tökum og stjórn­sýslu.

Mig langar ekki að hugsa til þess að ástæðan sé sú að stelpur séu hræddar við að velja sér tækni­nám því stelpur í dag geta allt. Held eða vona frekar að það stafi af því að þær séu enn að átta sig á þessum mögu­leika og að þær eigi alveg jafn­mikið erindi hingað til okkar í HR. Þó að ég líti oft frekar á mig sem ein­stak­ling á vinnu­mark­aði en sem konu þá eru ýmsir hlutir sem eru almennt ólíkir milli kvenna og karl­manna, þannig á það líka að vera. Fjöl­breyti­leiki er af hinu góða og ég vil hvetja stelpur í dag til að kynna sér tækni­nám,“ segir hún að lokum.

Texti: Unnur H. Jóhanns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina