Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ein ástælasta sælgætisgerð landsins opnar ísbúð

Ein ástælasta sælgætisgerð landsins opnar ísbúð

Súkkulaði- og ísunn­endur eiga von á góðu því súkkulaði­gerðin Omnom ætlar að færa út kví­arnar og opna ísbúð.

Kjartan Gíslason, súkkulaði­gerð­ar­maður og annar stofn­enda Omnom.

„Við munum bjóða upp á nokkra ísrétti sem verða búnir til og afgreiddir á staðnum, svona eins konar milli­stig á milli dess­erta og bragð­a­refs og svo ætlum við að gefa pínu­litla smá­barna­ísa frítt með. Konceptið er frekar frjálst og opið og verður mögu­lega ekki alveg full­mótað þegar við opnum. Við ætlum bara að fara rólega af stað, vera með ein­hverja fjóra til fimm rétti á boðstólum til að byrja með, rétti sem við erum sjálf full­kom­lega sátt við og svo leyfum við þessu svo­lítið að þró­ast, sem gerir þetta auð­vitað bara skemmti­legt,“ segir Kjartan Gíslason, súkkulaði­gerð­ar­maður og annar stofn­enda Omnom.

„Við ákváðum að fagna afmæli lýð­veld­is­ins með pompi og prakt með opnun popup ísbúðar 17. júní. Henni var ótrú­lega vel tekið, svo nú ætlum við að taka þetta skref­inu lengra.“

Eigendur súkkulaði­gerð­ar­innar hafa í hyggju að opna ísbúð í húsa­kynnum Omnom að Hólma­slóð 4. „Hún kemur til með að hjá okkur hérna í verk­smiðj­unni, þar sem búðin var áður. Við lok­uðum henni end­an­lega í byrjun maí þegar ástandið var hvað verst í sam­fé­lag­inu og vorum að velta fyrir okkur hvað við ættum eig­in­lega að gera við rýmið. Þá kom upp sú hug­mynd að opna ísbúð. Við fengum bráða­birgða­leyfi hjá borg­inni til að gera það í sumar og ákváðum að fagna afmæli lýð­veld­is­ins með pompi og prakt með opnun popup ísbúðar 17. júní. Henni var ótrú­lega vel tekið, svo nú ætlum við að taka þetta skref­inu lengra.“

Hönnuðu búðina sjálf

Kjartan segir að upp­haf­lega hafi staðið til að opna nýju ísbúð­ina núna í ágúst og tengja opn­un­ina annað hvort við Hinsegin daga eða Menn­ing­arnótt en um leið og öll hátíð­ar­höld voru blásin af vegna sam­komu­tak­mark­ana hafi verið ákveðið að fresta opn­unni fram á haust. „Já, við erum núna að horfa til haustins, jafn vel sept­em­ber, í raun bara um leið og ástandið í þjóð­fé­lag­inu fer aftur að lag­ast.“

„Við ætlum bara að fara rólega af stað, vera með ein­hverja fjóra til fimm rétti á boðstólum til að byrja með, rétti sem við erum sjálf full­kom­lega sátt við.“

Spurður hver eigi heið­ur­inn að hönnun ísbúð­ar­innar svarar hann því til að hún sé að alfarið í höndum starfs­fólks­ins. „Við erum búin að end­ur­hanna rýmið að ein­hverju leyti og not­uðum svo þær inn­rétt­ingar og mublur sem fyrir voru og færðum til, þannig að ísbúðin og súkkulaði­gerðin verða í aðskildum rýmum. Við gerum þetta allt sjálf þannig að stemn­ingin er mjög afslöppuð og heim­il­is­leg,“ segir hann léttur í bragði.

„Síðan áttum við nokkrar ísvélar sem við keyptum not­aðar fyrir tveimur árum og höfum verið að prófa. Þannig að við erum alveg búin að vera pæla í þessu í smá tíma, en ástandið núna ýtti við okkur. Því þótt salan gangi almennt vel hjá fyr­ir­tæk­inu hrundi salan í sjálfri búð­inni þegar túrist­arnir hurfu og við urðum að loka henni og gera eitt­hvað við rýmið. Gátum ekki látið það standa autt. Ísbúð með dess­ert ívafi varð nið­ur­staðan.“

Kjartan tekur fram að fleiri komi að gerð sjálfs íss­ins en Omnom og því sé um sam­starfs­verk­efni að ræða. „Við gerum ekki ísinn sjálf. Hann er búinn til í sam­vinnu við góða sam­starfs­að­ila. Hins vegar notum við okkar súkkulaði í sósur, kurl og annað. Að því sögðu gæti alveg farið svo að við munum nota súkkulaðið í sjálfan ísinn líka þegar fram líða stundir. Það hefur þegar verið gert með góðum árangri í Michele Gaeta, ítölsku gelato-ísbúð­inni í Aðal­stræti, svo hver veit. Það verður bara að koma í ljós. Og ef við­tök­urnar verða góðar þegar við opnum getur vel verið að við förum að gera ísinn sjálf, græjurnar eru alla vega fyrir hendi.“

Útiloka ekki útflutning

Nú hefur verið ágæt eft­ir­spurn ef Omnom súkkulaði erlendis frá, kemur útflutn­ingur til greina? „Eins og staðan er núna þá hugsum við þetta fyrst og fremst sem ísbúð eða -sjoppu, ekki sem fram­leiðslu­vöru. Að minnsta kosti ekki á þessu stigi máls­ins. En við erum alls ekki að loka á þann mögu­leika. Það gæti bara orðið skemmti­legt.“

„Þótt salan gangi almennt vel hjá fyr­ir­tæk­inu hrundi salan í sjálfri búð­inni þegar túrist­arnir hurfu og við urðum að loka henni og gera eitt­hvað við rýmið … Ísbúð með dess­ert ívafi varð nið­ur­staðan.“

Eitt er þó víst segir hann. „Og það er að sú sköp­un­ar­gleði og til­rauna­starfs­semi sem hefur ein­kennt súkkulaði­fram­leiðsl­una hjá Omnom verður svo sann­ar­lega höfð að leið­ar­ljósi við gerð íss­ins, enda ís og súkkulaði frá­bær blanda sem býður upp á enda­lausa mögu­leika. Þetta verður bara spenn­andi og það verður gaman að geta boðið almenn­ingi aftur hingað til okkar, heim­sókn til Omnom er ávísun á skemmti­lega upp­lifun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni