Við Arnar kynntumst í gegnum sameiginlega vinkonu og smullum strax saman. Hann var frumlegur og fyndinn og mjög myndarlegur. Í stað þess að bjóða mér út að borða á fyrsta stefnumótinu bauð hann mér heim til sín í mat í ofboðslega flottan mat. Löngu seinna viðurkenndi hann fyrir mér að vinur hans, kokkur, hefði eldað matinn og látið sig hverfa skömmu áður en ég mætti á staðinn. Ég hefði nú samt fallið fyrir honum þótt maturinn hefði verið óætur.
Við upplifðum bæði eitthvað alveg sérstakt og sambandið þróaðist afar hratt. Það var eðlilegt skref að fara að búa saman eftir aðeins nokkrar vikur. Við vorum að verða þrítug og höfðum átt okkar sambönd við aðra en þarna varð klisjan um sálufélagann raunveruleg og sönn.
Lífsreynslusöguna má lesa í heild í nýjasta tölublaði Vikunnar.































Athugasemdir