Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Frystitogari fullur af Covid-sjúklingum í þrælahlekkjum

Frystitogari fullur af Covid-sjúklingum í þrælahlekkjum
Júlíus Geir­munds­son ÍS var kall­aður í land eftir alvar­legt hópsmit um borð.

Útgerð og skip­stjóri frysti­tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar ÍS eru sek um að hafa stofnað manns­lífum í hættu með því að  halda sjó þrátt fyrir að stærstur hluti áhafn­ar­innar hafi verið veikur. Þrátt fyrir end­ur­tekin til­mæli sótt­varna­yf­ir­valda hélt skip­stjór­inn ekki til hafnar til að láta skima fyrir veirunni og kom hinum  sjúku í skjól. Þvert á móti var haldið áfram í túrnum með þeim afleið­ingum að nán­ast allir úr áhöfn­inni veikt­ust. Þegar skipið hélt til hafnar, rúmum tveimur vikum eftir að veik­indin hófust, til að taka olíu voru menn loks­ins skimaðir. Þá voru nokkrir í raun óvinnu­færir. Einn, rúm­lega sex­tugur sjó­maður, var mjög veikur. Læknir lagði til að mann­inum yrði komið  á sjúkra­hús. Hann hafn­aði því og skip­stjór­inn féllst á vilja manns­ins og skipið sigldi úr höfn til hafs með illa hald­inn Covid-sjúk­ling um borð. Meðal þeirra sem smit­uð­ust snemma í túrnum var mat­sveinn­inn, sem veikur þurfti að ann­ast matseld. Menn geta velt fyrir sér hversu margar smit­leiðir.

Þegar kom á dag­inn á 21 degi að stærstur hluti áhafnar var smit­aður, var skip­inu strax snúið  til hafnar. Skipið var þrifið hátt og lágt á land­leið­inni af mönnum sem sumir hverjir voru með Covid og þurftu að standa tímunum saman í gufu­mekki og með lungna­sjúk­dóm. Skip­stjór­inn lagði hart að áhöfn­inni að tjá sig ekki við fjöl­miðla. Alið var á þrælsótta og menn máttu ekki segja frá með­ferð sem er nán­ast ómann­eskju­leg. Í sam­fé­lagi sem fyrir ára­tugum síðan setti vök­u­lög til að stöðva þræla­hald um borð í tog­urum á Íslandi ætti þetta ekki að vera mögu­legt. Nú birt­ist fólk það með afger­andi hætti að um borð í Júlíusi voru menn sem nutu ekki lág­marks­mann­rétt­inda og voru í senn hraktir og smáðir. Fár­veikir af lífs­hættu­legum lungna­sjúk­dómi var þeim gert að vinna í gufu­mekki með háþrýsti­dælur.

Gert að vinna í gufu­mekki með háþrýsti­dælur

Algjör þöggun var í fyrstu um ástandið um borð í Júlíusi Geir­munds­syni ÍS. Skip­stjór­inn hélt sínum mönnum í helj­ar­g­reipum, í orð­isns fyllstu merk­ingu. Blaða­maður Mannlífs reyndi allar leiðir til að fá stað­fest­ingu á orðrómi þess eðlis að skelfi­legt ástand væri um borð í skip­inu. Enginn vildi í fyrstu tala. For­svars­menn útgerð­ar­innar létu kvis­ast út að sótt­varna­læknir umdæm­is­ins hefði ekki talið ástæðu til að koma mönnum í land og undir lækn­is­hendur. Það átti sem sagt að varpa sök­inni af herðum Sveins Arn­ar­sonar skip­stjóra og Einars Vals Krist­jáns­sonnar fram­kvæmda­stjóra yfir á heil­brigð­is­yf­ir­völd á Vest­fjörðum. Súsanna Björg Ást­valds­dóttir læknir upp­lýsti þá í Mannlífi að  á þriðja degi í túrnum hefði hún lagt að útgerð­inni að koma með áhöfn­ina í land í skimun. Þegar Mannlíf birti þessa frétt brást Sjó­manna­sam­band Íslands hart við og for­dæmdi með­ferð­ina á mönn­unum. Hákon Blöndal, yfir­vél­stjóri á Júlíusi, for­dæmdi fram­göngu skip­stjóra og útgerðar á Facebook-síðu sinni. „Þetta er ljóta hel­vítis yfir­klórið og drullu­mokstur. Hérna er ekki öll sagan sögð og menn þurfa að taka sig saman í and­lit­inu og við­ur­kenna mis­tök. Við grun um Covid smit um borð ber skip­stjóra að hafa sam­band við land­helg­is­gæslu Íslands ….,“ skrif­aði hann. Eftir yfir­lýs­ingu Hákonar, sem var í fríi þennan túr, var sem þræla­hlekkirnir féllu af mönn­unum sem voru mis­not­aðir af útgerð sinni og skip­stjóra sem ekki reynd­ist starfi sínu vax­inn. Mál þeirra var tekið upp hjá verka­lýðs­fé­lagi þeirra sem áður hafði lítið aðhafst og rann­nsóknar kraf­ist.

Skip­stjóra og útgerð bar, lögum sam­kvæmt, þegar í stað að til­kynna um veik­indin og bregð­ast við þegar fyrsti mað­ur­inn féll í val­inn. Skip­stjór­inn átti að  gera allt sem þurfti til að koma mönnum sínum í skjól. Það gerði hann ekki og lét reka á reið­anum og lét áhöfn­ina til að vinna í umhverfi sem var lífs­hættu­legt vegna smita. Veikir menn unnu við erf­iðar aðstæður á hafi úti, hræddir um að missa plássin sín ef þeir létu sjúk­dóm­inn alræmda gera sig óvinnu­færa. Þeir sem bera stærsta ábyrgð í þessu máli eru Sveinn skip­stjóri, sem brást áhöfn sinni, og Einar Valur, fram­kvæmda­stjóri sem brást laun­þeg­unum og eig­endum Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar. Þessir tveir aðal­leik­arar í hryll­ings­sög­unni um Júlíus Geir­munds­son eiga það sam­eig­in­legt að forð­ast fjöl­miðla og svara ekki fyrir alvar­leg brot sín. Þessir menn ættu að sjá sóma sinn í því að biðj­ast und­an­bragða­laust fyr­ir­gefn­ingar á  afglöpum sínum.

„ Þetta er ljóta hel­vítis yfir­klórið“

Yfir­völdum ber skylda til þess að rann­saka þetta mál til hlítar og lög­sækja menn ef ástæða er til. Lögum sam­kvæmt er skip­stjóra falið nán­ast alræð­is­vald um borð í skipum. Ábyrgð skip­stjór­ans er í sam­ræmi við það. Lög­reglan á Ísafirði hefur ekki enn séð ástæðu til rann­sóknar máls­ins. Þar eru menn vænt­an­lega meira upp­teknir við hraða­mæl­ingar á Skut­uls­fjarð­ar­braut­inni. Skip­stjór­inn sem brást áhöfn sinni og útgerðin sem var að halda niðri kostn­aði með manns­líf undir verða að svara til saka. Er hugs­an­legt að hann hafi verið beittur þrýst­ingi af útgerð­inni til að halda fullu skipi af Covid-sjúk­lingum utan lækn­is­hjálpar. Gerðist þetta allt vegna van­þekk­ingar? Ótal spurn­ingar liggja í loft­inu. Rannsókn er óum­flýj­an­leg.

Fyr­ir­vari: Höfundur grein­ar­innar á nákom­inn ætt­ingja í áhöfn skips­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Slúður