Kristín Reynisdóttir varar alla aukaleikara og þá sérstaklega konur þar á meðal við gylliboðum Jóhannesar nokkurs innan fjölmennum hópi aukaleikara. Jóhannes þessi er sagður blekkja konur á þeim forsendum að honum vanti stelpu í auglýsingu. Að hennar sögn endar það þó yfirleitt með því að stúlkan fær senda mynd af typpinu hans. Aðrir innan hópsins kannast við kauða og taka undir með Kristínu.
„Ég vona að þetta meigi vera hérna inná, en ég vil vara ykkur öll við (sérstaklega ykkur stelpur) á þessum manni. Hann er semsagt að auglýsa eftir stelpum fyrir vefverslun sína (sem er algjört kjaftæði!) hann vill bara myndir af stelpum, en ég veit ekki almennilega ástæðuna fyrir því (eflaust er ástæðan sú að hann vilji fróa sér yfir myndunum). Hann hefur verið lengi í þeim business að biðja um myndir af stelpum og sendir síðan á stelpurnar typpa myndir. Endilega allir að vinsamlegast passa sig á honum,“ skrifar Kristín og birtir máli sínu til stuðnings samskipti á milli hans og stúlku. Þar segir hann við stúlku: „Ok væri gaman að sja fleyrri myndir af þer taka þetta eins og langt og þer liðir vel með“.
Stjórnandi hópsins, Halldóra Eyfjörð, segist alltaf vara við því að senda myndir á menn úti í bæ. Hún hafi bannað Jóhann af síðunni vegna svona hegðunar. „Ég bið ykkur stelpurnar mínar að senda aldrei myndir nema þið séuð hundrað prósent vissar að um casting fyrirtæki sé að ræða ef þið eruð í óvissu talið við mig ég mun finna útúr því og bara alls ekki senda myndir ef þið hafið einhverjar tilfinningar um að ekki sé allt í lagi með viðkomandi ,“ segir hún.































Athugasemdir